DROPS Fabel uni colour 75% Ull, 25% Polyamide |
638.00 kr /50g |
Panta | |
DROPS Fabel 75% Ull, 25% Polyamide |
682.00 kr /50g |
Panta | |
DROPS Fabel long print 75% Ull, 25% Polyamide |
726.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Fabel uni colour 75% Ull, 25% Polyamide 638.00 kr /50g Panta |
|
DROPS Fabel print 75% Ull, 25% Polyamide 682.00 kr /50g Panta |
|
DROPS Fabel long print 75% Ull, 25% Polyamide 726.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
November Sky |
|
|
|
Prjónuð peysa með laskalínu og röndum úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmál. Stærð S - XXXL.
DROPS 218-35 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR: Prjónað er til skiptis 1 umferð með litnum sandur og 1 umferð með litnum grár. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 222 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 37. Í þessu dæmi er aukið út á eftir 37. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Byrjið nákvæmlega á undan lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið við bæði prjónamerkin. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu í hverri umferð með litnum sandur þannig: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og ermar. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð til að koma í veg fyrir göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í sléttprjón. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón og skipt er yfir á sokkaprjóna eftir þörf þegar lykkjum hefur fækkað. BERUSTYKKI: Fitjið upp 120-136-140-152-164-168 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum grár. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 12 cm. Prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Setjið eitt prjónamerki í stykkið hér – þetta prjónamerki er notað þegar tekin eru mál. Setjið 4 prjónamerki í stykkið (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Fyrsta prjónamerkið er sett í 1. lykkju í umferð (= byrjun á umferð, á milli bakstykkis og ermi), annað prjónamerkið er sett í 22.-22.-24.-24.-25.-25. lykkju í umferð, þriðja prjónamerkið er sett í 61.-69.-71.-77.-83.-85. lykkju í umferð og fjórða prjónamerkið er sett í 82.-90.-94.-100.-107.-109. lykkju í umferð. Á milli lykkja með prjónamerki í, eru nú 20-20-22-22-23-23 lykkjur á hvorri ermi og 38-46-46-52-57-59 lykkjur á framstykki og bakstykki ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir á hringprjón 3 og litinn sandur. Prjónið sléttprjón, RENDUR og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, í hverri umferð með litnum sandur þar til aukið hefur verið út fyrir laskalínu alls 26-28-32-36-40-44 sinnum á hæðina = 328-360-396-440-484-520 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón og rendur þar til stykkið mælist 21-23-25-26-28-30 cm frá prjónamerki við háls. Nú á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar frá byrjun á umferð (við 1. prjónamerki) þannig: Prjónið fyrstu 2-1-1-1-3-5 lykkjur í umferð (þessar lykkjur tilheyra bakstykki), setjið næstu 70-76-86-94-99-103 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 7 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið næstu 94-104-112-126-143-157 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 70-76-86-94-99-103 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 7 nýjar lykkjur í hlið undir ermi og prjónið fram að byrjun á umferð (= afgangur af bakstykk). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. Takið frá prjónamerki í stykkinu. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 202-222-238-266-300-328 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi – látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og röndum (byrjun á umferð er hægt að færa að prjónamerki í hlið, en þá verður að klippa þráðinn frá ef rendurnar eiga að vera réttar). Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4-4½-4½-4-4-3½ cm millibili alls 5-5-5-6-6-7 sinnum = 222-242-258-290-324-356 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 29-29-29-30-30-30 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og grár. Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT því sem aukið er út um 6-10-6-6-0-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 í útskýringu að ofan = 228-252-264-296-324-360 lykkjur. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 3 cm í öllum stærðum. Skiptið til baka yfir á hringprjón 3 og fellið af með sléttum lykkjum. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 70-76-86-94-99-103 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 77-83-93-101-106-110 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn í röndum eins og áður. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 7 lykkjum sem prjónaðar voru upp undir ermi. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 2½-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 12-13-16-20-21-23 sinnum = 53-57-61-61-64-64 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 37-36-35-34-33-31 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og litinn grár, prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 1-1-1-1-0-0 lykkjur jafnt yfir = 52-56-60-60-64-64 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 6 cm í öllum stærðum. Skiptið til baka yfir á sokkaprjóna 3 og fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið inn stroffið efst í hálsmáli að röngu. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé ekki saumaður í hverja lykkju – gerið aðeins lengri og lausari saum, þannig að saumurinn verði teygjanlegur. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (13)
Monique De Weert wrote:
Klopt het dat de raglan in iedere naald gemeerderd wordt? Of 1 nld meerderen en volgende naald gewoon tricot? Dus 88 nld raglan ipv 44?
04.04.2024 - 06:10DROPS Design answered:
Dag Monique,
Je meerdert inderdaad op iedere naald. Dat betekent dus dat je bij de raglanlijnen zowel omslagen maakt alsook de omslagen van de vorige naald gedraaid breit.
04.04.2024 - 20:19Linda wrote:
Do you think Fabel gray and silver fox is a good combination for November Sky?
22.12.2022 - 19:42DROPS Design answered:
Dear Linda, you are welcome to contact your DROPS store for any help choosing the best matching colours, they will help you even per mail or telephone. Happy knitting!
23.12.2022 - 08:28Hege Glad wrote:
Hei Jeg er nå ferdig med raglandelen, men synes det er så rart at jeg skulle øke til raglan på hver pinne. Det er jo vanlig å øke på annenhver. Da jeg var ferdig med økinga måtte jeg jo strikke nesten like langt en gang til før riktig lengde. Mvh Hege Glad
17.03.2022 - 12:13DROPS Design answered:
Hej Hege. "RAGLAN: Det økes til raglan på hver omgang med fargen sand.." dvs det ska ökas på annenvher pinne eftersom fargen sand stickas på annanvher pinne. Mvh DROPS Design
17.03.2022 - 14:34Kachelhoffer Claudine wrote:
Bonjour, Je tricote le pull 218_35, avec une autre laine que celle proposée. Mon échantillon est correct.je fais les augmentations du raglan , comme indiqué , c’est à dire tous les deux rangs . Je dois augmenter 32 fois donc tous les 2 rangs ( chaque rang sable ) , mais je n’arrive de loin pas aux 25 cm’ de hauteur du raglan ...où est l’erreur . Dois je continuer sans augmenter pour arriver aux 25 cm? Merci de me repondre Cordialement Claudine Kachelhoffer
28.09.2021 - 16:46DROPS Design answered:
Bonjour Mme Kachelhoffer, si votre échantillon est juste en hauteur, vous devez avoir 20 cm lorsque toutes les diminutions du raglan sont terminées, continuez comme avant, mais sans augmenter jusqu'à ce que l'empiècement mesure 25 cm à partir du marqueur placé après le col. Bon tricot!
29.09.2021 - 07:31Sunniva wrote:
Strikket denne modellen i Panduro bomullsgarn å kr.22.90 Genseren ble nydelig. Beholdt høy hals. Strikket uten økning i midjen, og ermene ble sttikket rett ned, som ballongermer - hvor jeg felte av med to masker sammen, før vrangbord. Vrangbord = 1 m r og 1 m vr - endene på 20 omg.
06.04.2021 - 16:24Berrit wrote:
I am hoping that I am supposed to measure along the raglan line to get to the desired length before arms are separated. Not measuring straight down, right? I am also confused that according to the measurement drawing I have to knit an XL, when usually everything I wear is an M.
13.01.2021 - 22:08DROPS Design answered:
Hi Berrit, Sorry, but the measuring is straight down the yoke not along the raglan-line. Happy knitting!
14.01.2021 - 07:33Karin wrote:
Ik heb maat XL gemaakt maar hij valt erg klein uit. Proeflapje was juist!
01.01.2021 - 12:50Isa wrote:
Il est assez incompréhensible que ce modèle sorti en octobre soit proposé dans un coloris (fabel 651) supprimé quelques semaines après... C'est d'autant plus dommage que ce coloris était très réussi.
23.12.2020 - 09:35DROPS Design answered:
Bonjour Isa, bonne nouvelle: cette couleur sera de nouveau en stock tout bientôt! Bon tricot!
05.02.2021 - 15:05Helma wrote:
Heb ik voor een trui November Sky gebreid met Drops Fabel maat S slechts 300 gram wol nodig?
13.11.2020 - 13:13DROPS Design answered:
Dag Helma,
Ja, de hoeveelheid garen klopt. Het is heel dun garen, dus het loopt heel erg uit. Bij andere patronen in deze stekenverhouding heb je ook een vergelijkbare hoeveelheid garen nodig.
14.11.2020 - 10:06Shaniqwa wrote:
Bts
04.11.2020 - 12:46