Mistletoe Kisses Jacket |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 217-8 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 93 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 3,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftri ca 3. og 4. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Aukið er út jafnt yfir eins og útskýrt er í ÚTAUKNING-1, en í umferð með stjörnu-2 og stjörnu-5, aukið út með því að prjóna 2 lykkjur í eina lykkju í stað þess að slá uppá prjóninn. Þ.e.a.s. í umferð með stjörnu-2 (rétta) er aukið út með því að prjóna 1 lykkju slétt í fremri og aftari lykkjubogann og í umferð með stjörnu-5 (ranga) er aukið út með því að prjóna 1 lykkju brugðið í fremri og aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur að framan mælist ca 6-6-4-6-5-4 cm frá neðst á fram- og bakstykki. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9½-8½-8½-9-9½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Að lokum er kantur að framan prjónaður. KANTUR AÐ FRAMAN: Fitjið upp 93-97-101-107-109-115 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 4,5 með litnum hveiti. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið nú stroff þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkja snúin slétt og endið með 1 kantlykkja garðaprjón. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * prjónið 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja snúin brugðið, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 9 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 6 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur þar til 6 lykkjur eru eftir og aukið jafnframt út 24-26-28-28-32-38 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1, prjónið síðustu 6 lykkjur eins og áður, snúið og fellið af fyrstu 6 lykkjur, prjónið brugðnar lykkjur til baka frá röngu yfir allar lykkjur = 105-111-117-123-129-141 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki innan við 1 lykkju í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir (= 17-18-19-20-21-23 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka og aukið jafnframt jafnt yfir í hverri umferð með stjörnu – sjá ÚTAUKNING-2. Stjarna-1: Aukið út 24-30-30-30-30-36 lykkjur jafnt yfir með uppslætti = 129-141-147-153-159-177 lykkjur. Stjarna-2: Aukið út 30-30-30-30-30-30 lykkjur jafnt yfir með því að prjóna 2 lykkjur í eina lykkju = 159-171-177-183-189-207 lykkjur. Stjarna-3: Aukið út 30-30-30-30-30-30 lykkjur jafnt yfir með uppslætti = 189-201-207-213-219-237 lykkjur. Stjarna-4: Aukið út 30-36-30-30-30-30 lykkjur jafnt yfir með uppslætti = 219-237-237-243-249-267 lykkjur. Stjarna-5: Aukið út 24-30-30-30-36-36 lykkjur jafnt yfir með því að prjóna 2 lykkjur í eina lykkju = 243-267-267-273-285-303 lykkjur. Nú er útaukning í stærð S og M lokið. Haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan. Í stærð L, XL, XXL og XXXL er eftir ein útaukning. Stjarna-6: Aukið út 24-18-36-36 lykkjur jafnt yfir með því að gera uppslátt = 291-291-315-339 lykkjur. Allar stærðir: Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 22-24-25-26-28-30 cm frá prjónamerki. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 37-40-43-43-49-52 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 48-54-60-60-60-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-12-12-12 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 73-79-85-85-97-103 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 48-54-60-60-60-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-12-12-12 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið síðan síðustu 37-40-43-43-49-52 lykkjur (= vinstra framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 159-171-183-195-219-231 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstri eins og áður með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið með hveiti til loka. Þegar stykkið mælist 26-26-27-28-28-28 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 28-30-32-32-36-38 lykkjur jafnt yfir = 187-201-215-227-255-269 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju snúið slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. UMFERÐ 2 (ranga). Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * prjónið 1 lykkju brugðið snúið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja snúið brugðið, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 48-54-60-60-60-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-12-12-12 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-60-66-72-72-78 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi, mitt í 6-6-6-12-12-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 3-3-3-6-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram hringinn með mynstri þar til A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Prjónið síðan áfram með litnum hveiti til loka. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3½-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 9-11-13-15-14-17 sinnum = 36-38-40-42-44-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-36-35-34-33-31 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfalt uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsi verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju framan á kanti að framan með smáu spori. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki með hringprjón 4,5 og litnum hveiti og prjónið upp 95-115 lykkjur innan við 1 kantlykkju garðaprjón meðfram fram- og bakstykki og alveg upp að kanti í hálsi (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1 lykkju). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið nú stroff þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju snúið slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (ranga). Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * prjónið 1 lykkju brugðið snúið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja snúið brugðið, og endið með 1 kantlykkja garðaprjón. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til kantur að framan mælist 1 ½ cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Fellið nú af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið síðan áfram með stroff þar til kantur að framan mælist alls 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Saumið kant í hálsi við kant að framan innan við 1 kantlykkju garðaprjón á kanti að framan og innan við affellingarkant í kanti í hálsi. Saumið saman hlið á kanti að framan við kant í hálsmáli innan við kantlykkju í garðaprjóni í kanti að framan og innan við affellingarkant í kanti í hálsmáli. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp 95-115 lykkjur með hringprjóni 4,5 og litinn hveiti (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1 lykkju) frá réttu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, með byrjun frá þar sem lykkjur voru felldar af í kanti í hálsmáli og niður meðfram vinstra framstykki. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið nú stroff þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju snúið slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (ranga). Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * prjónið 1 lykkju brugðið snúið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja snúið brugðið, og endið með 1 kantlykkja garðaprjón. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til kantur að framan mælist 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Saumið saman hliðar á kanti að framan við kant í hálsmáli innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á kanti að framan og innan við affellingarkant í kanti í hálsmáli. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (18)
Gun Penhoat wrote:
I read the questions and comments and found the answer that talks about an extra stitch in the main color when starting the purl row. Is this an errata in the pattern as this is the first I see about having to add an extra stitch in the main color. The chart doesn't show this and nowhere in the pattern do I find this mentioned. It isn't practical to have to unravel when you knit in light colors while you try to figure out where you're going wrong.
01.02.2023 - 21:40DROPS Design answered:
Dear Mrs Penhoat, there is no mistake in the pattern, you should repeat the 6 sts in the diagram reading right towards left and always end with the first stitch in diagram from RS / work the first stitch in diagram + repeat the 6 sts in diagram reading left towards right from WS. Happy knitting!
02.02.2023 - 09:27Gun Penhoat wrote:
Again, thank you so much for the quick answer! Does that mean that both knit and purl rows are read from right to left? I read the purl row left to right and then the pattern reads 1 edge stitch, 1 Main, 1 contrast, 1 Main, 1 contrast, 2 Main.
01.02.2023 - 17:16DROPS Design answered:
Dear Mrs Penhoat, diagram is read from right side from the right towards the link and from wrong side from the left towards the right, so when you work the wrong side rows, work the first stitch in A.1 (on the right hand side = the one you end with from RS) then repeat diagram from the left towards the right, on the first row with pattern you will have then 2 sts Main on each side inside the edge stitches. Happy knitting!
02.02.2023 - 09:23Gun Penhoat wrote:
I thought it would be plain sailing now when I got my question about increases answered, but no ... I'm stuck again. I have 141 stitches and went on to Row 6 and (purl) where the contrast starts. 1 edge stitch, then A1 starts with 1 Main color, and continues with 1 contrast, 1 Main, 1 contrast, 3 Main (the pattern row starts over with 1 Main so this becomes 3 Main), 1 contrast, I Main, 1 contrast etc.., I end up with 3 not 2 Main stitches before the edge stitch . Where am I going wrong?
01.02.2023 - 15:47DROPS Design answered:
Dear Mrs Penhoat, work your 141 sts as follwos: 1 edge stitch, repeat the 6 sts a total of 23 times (over the next 138 sts), ending with 1 Main, then work the next stitch as the first = 1 Main (so that there are now 2 Main inside the edge stitches on each side) and end with 1 edge stitch in garter stitch. Happy knitting!
01.02.2023 - 17:07Gun Penhoat wrote:
Thank you so much for clarifying!
31.01.2023 - 23:03Gun Penhoat wrote:
Thank you so much for the quick reply! I still have a question though ... am I right in thinking that there are 5 ROWS of MAIN COLOR before the different colored A1 chart actually starts?
31.01.2023 - 18:13DROPS Design answered:
Dear Gun, the 5 starting rows in the main colour are part of A.1. You immediately start working A.1 after the purl and decrease row, but the beginning of A.1 is 5 rows of the main colour. After these five rows, you will start changing colours as explained in the diagram. Happy knitting!
31.01.2023 - 23:00Gun Penhoat wrote:
I have finished the rib and done the decrease 6 on the right-side row + increased to 111 stitches. Then I purled and decreased 6 on this purl row. When I look at the chart I now see 5 ROWS in MAIN COLOR before the chart itself. The third row of the 5 is an increase row. However, when I read the description it says to start the A1 chart with 18 (I'm knitting the 2nd size) repeats of the 6 stitch pattern, after the purl (with the decreased 6 stitches) row. HELP, PLEASE!
31.01.2023 - 11:58DROPS Design answered:
Dear Mrs Penhoat, just increase on 3rd row as stated for your size = there are now 141 sts on needle after this increase round, and now work A.1 as before: 1 edge st in garter st, repeat A.1 until 2 sts remain (there are now enough room for 23 repeats of A.1), work the first stitch in A.1 and end with 1 edge stitch in garter stitch. And continue like this, ie everytime you will increase, you will repeat A.1 more times in width but repeat A.1 until the last 2 sts and end with the first st in A.1 + 1 edge st in garter stitch. Happy knitting!
31.01.2023 - 17:33Jenny Douglas wrote:
I have a further question. Should the garter stitch on each edge be worked in main colour or can you use the same colour as the stitch next to it?
04.12.2022 - 19:44DROPS Design answered:
Dear Mrs Douglas, you can work the edge stitches with the main colour used on the row. Happy knitting!
06.12.2022 - 10:13Jenny Douglas wrote:
Regarding the "extra" stitch from A1, prior to the garter stitch. This is first stitch from A1. Row 6 is a purl row and after A1, the final two stitches will be a Wheat purl and a Wheat garter stitch. Following the chart, Starting row 7 I have a garter stitch, then a Wheat knit then a Brown knit, but this does not match the pattern. Should I add the extra stitch from A1 at the beginning of knit rows and the end of purl rows? Should extra stitch be from left hand side of chart?
04.12.2022 - 12:54DROPS Design answered:
Dear Mrs Douglas, on the 6th row (from WS) work first the 1st stitch in A.1 (= wheat), then repeat A.1 reading from the left towards the right) = there are 2 sts with wheat inside edge sts, then on row 7 (from RS), work A.1 (read from the right towards the left) starting with 1 st with wheat, then end with first st A.1 (= 1 st with wheat), pattern is now symmetrical. Happy knitting!
06.12.2022 - 09:45Åse Engseth wrote:
I str L er antall masker 291 iflg oppskriften når du deler av til bol og armer når jeg summerer alle delenes masker. Jeg sitter imidlertid med 267 masker, som er riktig iflg mønster etter økning nr 5. Jeg må bare rekke opp det jeg har strikket for det er ikke nok masker når arbeidet måler 25 cm fra merket, og hvordan skal man få resterende mønster til å passe da? Skuffet....
17.04.2022 - 19:45Irene Mentz wrote:
Hej jeg vil lige høre hvad er bryst mål i de forskellige størrelser. str. S og str M og Str L
02.06.2021 - 15:02DROPS Design answered:
Hej Irene, du finder måleskitsen, med mål på blusen i de forskellige størrelser, nederst i opskriften. Du tager bredden: 49-53-57-60-68-72 i aktuel størrelse og ganger med 2 :)
02.06.2021 - 15:46