White Comfort Jacket |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Snow og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með djúpu v-hálsmáli og vösum. Stærð XS - XXL.
DROPS 213-29 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. MÆLING: Öll mál á breiddina eru gerð þegar stykkið liggur flatt án þess að strekkja á því. Öll mál á lengdina eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi, annars kemur peysan til með að verða of síð við notkun. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli innan við 4 kantlykkjur í perluprjóni (A.1). Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan 4 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan A.1, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 kantlykkjur í A.1 eins og áður (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á eftir 4 kantlykkjum þannig: Prjónið 4 kantlykkjur í A.1 eins og áður, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, til skiptis í byrjun og í lok umferðar eins og útskýrt er í uppskrift. Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð, prjónið uppsláttinn snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykki, framstykki og ermar er prjónað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman á öxlum, ermar eru saumaðar í og saumar undir ermum og hliðarsaumar eru saumaðir í eitt niður að klauf í hvorri hlið. Kraginn er saumaður saman mitt að aftan og saumaður að hálsmáli aftan í hnakka. Að lokum eru prjónaðir tveir vasar sem saumaðir eru á framstykkin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 35-37-41-43-47-51 lykkjur á prjón 12 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið A.1 fram og til baka á 4 prjóna (= 1. umferð = rétta). Skiptið yfir á prjón 15. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm – sjá MÆLING, fellið af 3-3-4-4-5-6 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 29-31-33-35-37-39 lykkjur eftir. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 71-74-77-80-83-86 cm fellið af miðju 5-5-7-7-7-9 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá hálsmáli = 11-12-12-13-14-14 lykkjur eftir. Þegar 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 74-77-80-83-86-89 cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Bakstykkið mælist ca 74-77-80-83-86-89 cm frá öxl og niður. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 21-22-24-25-27-29 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan við miðju að framan) á prjón 12 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið A.1 fram og til baka í 4 umferðir (1. umferð = rétta). Skiptið yfir á prjón 15. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu lykkjurnar (= kantur að framan), prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkjur í garðaprjóni að hlið. Haldið áfram fram og til baka svona. Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli og fækkið um 1 lykkju eftir 4 kantlykkjur að framan – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 3-3-4-4-4-5 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af 3-3-4-4-5-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun á fyrstu umferð frá röngu. Eftir allar úrtökur fyrir v-hálsmáli og handveg eru 15-16-16-17-18-18 lykkjur eftir í umferð. Prjónið áfram með 4 kantlykkjum að framan í A.1, sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið. Þegar eftir er 1 umferð þar til stykkið mælist 74-77-80-83-86-89 cm, prjónið sléttar lykkjur frá röngu yfir fyrstu 11-12-12-13-14-14 lykkjurnar, haldið síðan áfram með A.1 yfir 4 kantlykkjur að framan. Snúið stykkinu, prjónið A.1 yfir 4 kantlykkjur að framan og fellið af þær 11-12-12-13-14-14 lykkjur sem eftir eru með sléttum lykkjum frá réttu. Klippið frá. Framstykkið mælist ca 74-77-80-83-86-89 cm frá öxl og niður. Prjónið síðan kant í hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: = 4 lykkjur. Haldið eftir lykkjum á prjóni 15. Setjið 1 prjónamerki. Haldið áfram með A.1 fram og til baka þar til kantur í hálsmáli mælist ca 8 til 11 cm frá prjónamerki – leggið kant í hálsmáli meðfram hálsmáli að miðju aftan í hnakka til að ákveða lengdina, strekkið aðeins á kantinum. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 21-22-24-25-27-29 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan við miðju að framan) á prjón 12 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið A.1 fram og til baka í 4 umferðir (1. umferð = rétta). Skiptið yfir á prjón 15. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð og haldið áfram með A.1 yfir 4 síðustu lykkjurnar (= kantur að framan). Haldið áfram fram og til baka svona. Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli og fækkið um 1 lykkju eftir 4 kantlykkjur að framan – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 3-3-4-4-4-5 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af 3-3-4-4-5-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun á fyrstu umferð frá réttu. Eftir allar úrtökur fyrir v-hálsmáli og handveg eru 15-16-16-17-18-18 lykkjur eftir í umferð. Prjónið síðan með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið við handveg, sléttprjón og 4 kantlykkjum að framan í A.1. Þegar eftir er 1 umferð þar til stykkið mælist 74-77-80-83-86-89 cm, prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Haldið áfram með A.1 yfir 4 kantlykkjur að framan og prjónið sléttar lykkjur frá röngu yfir þær 11-12-12-13-14-14 lykkjur sem eftir eru. Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 11-12-12-13-14-14 lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu og prjónið A.1 yfir 4 kantlykkjur að framan. Klippið frá. Framstykkið mælist ca 74-77-80-83-86-89 cm frá öxl og niður. Prjónið síðan kant í hálsmáli á sama hátt og á hægra framstykki. ERMI: Fitjið upp 17-17-18-19-19-20 lykkjur á prjón 10 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið A.1 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið í 3 cm. Skiptið yfir á prjón 15 og prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-8-8 cm, aukið út um 1 lykkju í byrjun á umferð – sjá ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu til skiptis í lok umferðar og í byrjun á umferð með 5-4-3½-3½-2½-2½ cm millibili alls 4-5-5-5-6-6 sinnum í hvorri hlið = 25-27-28-29-31-32 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 45-45-42-42-40-38 cm. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi – prjónamerkin merkja hvar botninn á handveg byrjar. Prjónið síðan með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til öll ermin mælist 49-49-48-48-47-47 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina ermina á sama hátt. Á mynd höfum við brotið aðeins uppá ermarnar. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í og saumið botninn á handveg – prjónamerkin sem sett voru í eiga að passa við hliðar á fram- og bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur, en endið sauminn þegar eftir eru ca 25 til 30 cm neðst niðri í hvorri hlið á framstykki/bakstykki (= klauf). Saumið kanti í hálsi saman mitt að aftan með lykkjuspori, en passið uppá að saumurinn snúi inn. Saumið kragann við hálsmál aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan – efsta talan er saumið ca 1 til 2 cm fyrir neðan þar sem v-hálsmálið byrjar og næsta tala er saumuð ca 12 til 14 cm fyrir neðan efstu tölu. ATH: Til að tölurnar sitjið fallega í hnappagatinu, hneppið hverja tölu í gegnum lykkju í hægri kanti að framan, þ.e.a.s. ekki er fellt af fyrir hnappagötum. VASI: Fitjið upp 15-15-17-17-19-19 lykkjur á prjón 15 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur þar til vasinn mælist ca 23-23-23-25-25-25 cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Felið af með sléttum lykkjum frá réttu. Vasinn mælist ca 26-26-26-28-28-28 cm á hæðina. Prjónið hinn vasann á sama hátt. Saumið einn vasa á hvort framstykki, ca 11-13-15-15-17-19 cm frá neðri kanti og ca 5-5-6-7-7-8 cm inn frá miðju að framan (mátið e.t.v. peysuna og stillið staðsetningu vasa eftir eigin ósk. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (10)
Corina wrote:
Hi, I would like to know how much Drops Snow should be used for size XS if I decided to only use this yarn in needle size 10? Would 700g be enough?
14.12.2023 - 17:26DROPS Design answered:
Dear Corina, to get the correct finished measurements for your size as in the chart, you should have the correct tension; if you like to get with another tension you will have to recalculate the whole piece following your own tension; you can also find similar patterns with the correct tension, see here for example. Happy knitting!
15.12.2023 - 08:11Astrid Rui wrote:
Hva menes med å legge opp med 1 tråd i hver kvalitet?
14.09.2021 - 21:29DROPS Design answered:
Hei Astrid. Denne jakken strikkes med 2 kvaliteter, 1 tråd DROPS Snow og 1 tråd DROPS Brushed Alpaca Silk. Når du legger opp, legger du opp med 1 tråd Snow og 1 tråd Brushed Alpaca Silk = 2 tråder. mvh DROPS design
15.09.2021 - 15:28Amanda Marcucci wrote:
Morning! How many balls of yarn are required? Im using Eskimo.
04.12.2020 - 13:04DROPS Design answered:
Dear Mrs Marcucci, DROPS Snow is the new name for DROPS Eskimo so that you will find matching amount of yarn for each size in grams, eg. 550 g DROPS Snow/Eskimo /50 g a ball = 11 balls DROPS Snow/Eskimo + 100 g /25 g the ball DROPS Brushed Alpaca Silk = 4 balls in size XS. Happy knitting!
04.12.2020 - 16:30Alison wrote:
Pattern says to use 1 stand of each quality (2 strands) but not clear if this is just for the edges or whole garment and also whether it means 2 strands one of eAch type of wool? Not sure If there will be enough wool. I have bought the drops wools specified for the pattern
10.08.2020 - 20:15DROPS Design answered:
Hi Alison, The whole garment is worked with 1 strand of each quality. Happy knitting!
11.08.2020 - 07:15Margareta Westling wrote:
Fått svar från er att jag ska använda rundstickor nr.10,12 och 15 till mönster 213-29.Men går det inte att använda vanliga stickor i aluminium och i så fall vilka mm. ska jag använda. Mvh Margareta Westling
21.05.2020 - 11:09DROPS Design answered:
Hej Margareta. Ja du kan använda vanliga parstickor istället om du hellre vill det. Det är samma nr du ska använda på parstickor dvs 10.00, 12.00 och 15.00 mm. Mvh DROPS Design
22.05.2020 - 08:10Jo Ann wrote:
Hallo. Könnte man an die jacke eine Kapuze anstricken? Und wenn ja wie viele Maschen müsste ich am Hals aufnehmen? Dankeschön
19.05.2020 - 08:48DROPS Design answered:
Liebe Jo Ann, wir können leider nicht jede Anleitung nach jedem indiviudellen Wunsch umrechnen aber hier finden Sie Modellen, die Sie inspierieren können. Gern wird Ihnen Ihr DROPS Laden weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!
19.05.2020 - 09:11Margareta Westling wrote:
Ska sticka kofta nr.213-29 och undrar om Drops Eskimo ljusrosa och Drops brushed Alpacka Silk dovt rosa passar ihop .Vidare hittar inte dom sticknr.ni föreslår när jag går in på Drops stickor.Har massa stickor hemma så vad motsvar Drops nummer vanliga stickor?
14.05.2020 - 17:54DROPS Design answered:
Hei Margaretha. Personlig syns jeg Drops Eskimo ljusrosa og Drops Brushed Alpacka Silk dovt rosa passer fint sammen, men dette er en personlig smak. Usikker på hva du mener med vanlige pinner. Vi har standard pinner størrelser som brukes i hele strikkeverden. I denne oppskrifter en det oppgitt str. 10,12 og 15 og dette finner du i vårt sortiment, se underDROPS Basic Rundpinne 60 eller 80 cm str 10, 12 og 15. God Fornøyelse!
18.05.2020 - 14:24Karen wrote:
Hvilke pinde skal jeg beregne strikke fast hed
23.04.2020 - 20:45DROPS Design answered:
Hej Karen, du skal bruge pind nr 15 til at få 7 masker glatstrik i bredden. God fornøjelse!
24.04.2020 - 09:56Marcin wrote:
Nice pattern!
31.01.2020 - 11:08Kersti H-B Lycke wrote:
Kose plagg
02.01.2020 - 14:11