Classic comfort |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, vösum og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.
DROPS 210-3 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 95 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið þeim 87 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 25) = 3,5. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca aðra hverja og 3. hverja lykkju og 3. og 4. hverja lykkju slétt saman, ekki er lykkjum fækkað yfir kanta að framan. Ef auka á út þá er í þessu dæmi aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir til skiptis ca 3. og 4. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma eins og útskýrt er að neðan. Öll útaukning er gerð frá réttu og aukið er út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) eins og útskýrt er í uppskrift. AUKIÐ ÚT UM 4 LYKKJUR ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir lykkjun með prjónamerki (laskalínu lykkjan), sleppið ekki lykkjum af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, en bíðið með að lyfta lykkjunni af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, sleppið síðan lykkjunni af vinstri prjóni (= 4 lykkjur fleiri). Setjið 1 prjónamerki í miðju af þessum 5 lykkjum (í næstu útaukningu). AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir lykkjunni með prjónamerki (laskalínu lykkjan), sleppið ekki lykkjunum af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, sleppið síðan lykkjunni af vinstri prjóni (= 2 lykkjur fleiri). Setjið 1 prjónamerki í miðju af þessum 3 lykkjum (að næstu útaukningu – á einungis við um stærð L). ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri við prjónamerki). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9½-8-8½-8-8½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir framstykki, bakstykki og ermar. Framstykkin og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Að lokum eru prjónaðir vasar sem eru saumaðir á. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 95-99-103-105-109-111 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með Melody. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Þegar stroffið hefur verið gert til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 25-25-25-27-27-29 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 70-74-78-78-82-82 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 14-15-16-16-17-17 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljð 10 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 18-20-22-22-24-24 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 10 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 14-15-16-16-17-17 lykkjur eftir síðasta prjónamerki á framstykki. Prjónið nú og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan: Byrjið frá réttu og prjónið sléttprjón fram og til baka með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu, aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Þ.e.a.s. aukið út fyrst 4 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki (= alls 16 lykkjur fleiri í umferð). Haldið svona áfram og aukið út fyrir laskalínu í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 5-6-7-7-9-9 sinnum á hæðina = 150-170-190-190-226-226 lykkjur. Haldið áfram með útaukningu í 4. hverri umferð, nema nú er einungis aukið út um 2 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki í, eins og útskýrt er að ofan (= alls 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 2 lykkjur við hvert prjónamerki alls 1-1-1-2-0-1 sinnum á hæðina. Eftir síðustu útaukningu eru 158-178-198-206-226-234 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður, þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við háls. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 27-30-32-34-38-40 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 30-34-40-40-42-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 44-50-54-58-66-70 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 30-34-40-40-42-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 27-30-32-34-38-40 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvort fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 114-126-134-146-162-174 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 31-34-36-39-43-46 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðum á fram- og bakstykki). Nú eru 52-58-62-68-76-82 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Nú skiptist fram- og bakstykki við prjónamerki þannig að bakstykkið er prjónað sér og framstykkin eru prjónuð hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 52-58-62-68-76-82 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið, þar til bakstykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 27-29-31-35-39-41 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 79-87-93-103-115-123 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 70-73-76-79-82-85 cm frá öxl og niður. HÆGRA FRAMSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð): = 31-34-36-39-43-46 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið og 4 kantlykkjum í garðaprjóni við miðju að framan þar til framstykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm frá skiptingu (stillið af eftir bakstykki). Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 16-17-19-20-22-23 lykkjur jafnt yfir = 47-51-55-59-65-69 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. VINSTRA FRAMSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð): = 31-34-36-39-43-46 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan og 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hlið þar til framstykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm frá skiptingu (stillið af eftir hægra framstykki). Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 16-17-19-20-22-23 lykkjur jafnt yfir = 47-51-55-59-65-69 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. ERMI: Setjið 30-34-40-40-42-42 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-12 lykkjum undir ermi = 38-42-48-50-52-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-8-10-10-12 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 12-6-4-3-3-3 cm millibili alls 3-5-7-8-8-8 sinnum = 32-32-34-34-36-38 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 37-35-34-32-31-29 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-16-18-18-18 lykkjur jafnt yfir = 48-48-50-52-54-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 42-40-39-37-36-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. VASI: Fitjið upp 22-22-24-24-26-26 lykkjur á hringprjón 8 með Melody. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar vasinn mælist 13-13-14-14-15-15 cm, skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 11-11-13-13-13-13 lykkjur jafnt yfir = 33-33-37-37-39-39 lykkjur. Prjónið síðan stroff, þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Vasinn mælist ca 18-18-20-20-22-22 cm á breiddina og 17-17-18-18-19-19 cm á hæðina. Prjónið hinn vasann á sama hátt. Saumið einn vasa á hvort framstykki, beint yfir stroff í neðri kanti og ca 5-5-6-7-7-8 cm in frá miðju að framan (mátið e.t.v. peysuna og stillið vasana af fyrir staðsetningu að eigin ósk). FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma á peysu – byrjið efst undir ermi og saumið í kant í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur, en endið sauminn þegar eftir eru ca 12 cm neðst í hvorri hlið (= klauf). Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (41)
Britt-Inger Kindstrand wrote:
Är sticknumren samma som vanliga,svenska stickor?
19.03.2024 - 13:31Roo Rees wrote:
Like the pattern, not the gauge. Instead of 3sts to the inch with size 11 needles, I prefer 5 or 6 sts to the inch with no larger than size 8 needles. Is it possible to convert pattern?
27.08.2023 - 18:08DROPS Design answered:
Dear Roo, since you are changing the gauge of the pattern you will need to recalculate the whole pattern; see how to do this here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=25&cid=19. Happy knitting!
28.08.2023 - 01:02Gudny Bjorgvinsdottir wrote:
Mig langar svo að prjóna þessa í garni á prjóna 4 og 4 1/2. Hvernig geri ég það.
04.08.2023 - 18:54DROPS Design answered:
Blessuð Guðný. Þessi peysa er prjónuð úr garni í garnflokki D á prjóna nr 8 og er með 14 umferðir og 12 lykkjur = 10 x 10 cm. Ef þú prjónar peysuna úr garni sem tilheyrir garnflokki B á prjóna nr 4 þá ertu með 22 umferðir og 20 lykkjur = 10 x 10 cm. Best er að gera prufu og sjá hversu margar umferðir og lykkjur eru í 10 x 10 cm. Síðan þarf að aðlaga lykkjufjöldann að lykkjufjölda með því garni sem skipta á út fyrir. Það þarf að reikna þetta vel út. Gangi þér vel.
21.08.2023 - 11:36Katleen wrote:
De zakken van deze vest hebben 2x2 kantsteek in het tricotsteek gedeelte. Is het de bedoeling om deze rand om te vouwen bij het aannaaien van de zakken zodat de breedte overeenkomt met de rand in boordsteek ? Hoe kan je de zakken dan best aannaaien want de video laat een eenvoudiger versie zijn ? Graag uw advies.
26.02.2023 - 00:56DROPS Design answered:
Dag Katleen,
De zak wordt met de boordsteek naar boven op het pand genaaid en het begin van de zak komt vlak boven de boord van het pand. De zak wordt zoals op de video aan het kledingstuk genaaid. Als de zak erop genaaid is zie je dus nog een stukje van de kantsteken.
26.02.2023 - 19:03Neuss wrote:
Guten Tag liebes Drop-Team, warum wird angegeben, das Rumpfteil zu teilen und Rücken-und Vorderteils separat zu stricken? Bei anderen Jacken mit nahezu identischen Maßen wird das nicht vorgeschlagen. Liebe Grüße Ursula Becker
28.10.2022 - 10:47DROPS Design answered:
Liebe Frau Neuss, das ist eine Entscheidung der Designerin; manchmal geben die Nähte an den Seiten auch etwas mehr Halt. Viel Spaß beim stricken!
28.10.2022 - 13:22Maria Luz wrote:
Se puede hacer el cuerpo de esta chaqueta , la espalda y los delanteros sin costura de los lados o es que queda mejor con costura? Gracias espero me aclaren esta duda, pretendía hacerla todas las partes unidas.
10.10.2022 - 16:46DROPS Design answered:
Hola Maria Luz, el cuerpo de este patrón no tiene costura; la mayoría se trabaja todo junto, a excepción de las aberturas en la parte inferior. Si no se quieren aberturas se pueden mantener la espalda y los delanteros juntos en la parte inferior de la labor, evitando la costura.
17.10.2022 - 00:20Anita wrote:
Denne jakken har en veldig fin økning for raglan -dette kom som en overraskelse da jeg begynte å strikke den. Hva med et bilde som viser slike fine detaljer…?
28.03.2022 - 18:44Sofia wrote:
Uppdatera gärna mönstret så att det framgår att knapphålen ska påbörjas när man stickar halskanten. Jag tror det är lätt hänt att man missar beskrivningen ovanför och inte förstår att man själv behöver ha koll på när knapphålen ska påbörjas. Jag själv upptäckte det först när jag var klar med oket att jag inte gjort några knapphål. Sedan är det lite oklart hur ni tänker er att knapparna ska vara lika stora eftersom det första knapphålet blir mindre än de andra.
26.02.2022 - 16:27Lia Van DIJK wrote:
Waarom wordt het damesfiets 210/3 Van boven naar beneden gebreid?
10.01.2022 - 22:15Claudia wrote:
Liebes Drops Team, Gibt es eine Video für diese raglanzunahme, die ich so nicht verstehe? Vielen Dank
17.12.2021 - 04:43DROPS Design answered:
Liebe Claudia, ja genau: dieses Video zeigt, wie man diese Raglanzunahmen strickt, dh wie man 4 oder 2 Maschen zunimmt. Viel Spaß beim stricken!
17.12.2021 - 08:34