Weekend Wander |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð húfa, hálsskjól og vettlingar úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með áferðamynstri.
DROPS 204-34 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.1. Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.3. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 128 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 6,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 12. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 11. og 12. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um vettlinga): Fækkið þannig (byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki): 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Endurtakið í hinni hliðinni. ATH: Prjónið eins margar lykkjur af mynstri A.1 eins og pláss er fyrir á framhlið á vettlingi á milli úrtöku í hvorri hlið. Að innanverðu á vettling er prjónað sléttprjón eins og áður. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 96-104 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þráð Alpaca + 1 þráð Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 88-92 lykkjur. Prjónið A.1 (= 4 lykkjur) hringinn í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17-19 cm – stillið af að endað sé eftir 1. eða 3. umferð í mynsturteikningu, byrjar úrtaka. Prjónið sléttar lykkjur fram að fyrstu brugðnu lykkjunni. Setjið eitt prjónamerki hér. Þetta er núna byrjun á umferð. Byrjið umferð með ör í A.2 og prjónið mynsturteikningu hringinn í umferð. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 44-46 lykkjur í umferð. Prjónið nú 2 og 2 lykkjur slétt saman = 22-23 lykkjur. Prjónið 2 umferðir slétt. Prjónið síðan síðustu lykkjurnar 2 og 2 slétt saman þar til 11-12 lykkjur eru eftir í umferð. Húfan mælist ca 24-26 cm. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjurnar, herðið að og festið vel. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 148-156 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 128-136 lykkjur. Prjónið nú mynstur A.1 hringinn í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 19-21 cm – stillið af að endað sé eftir 2. eða 4. umferð í mynsturteikningu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 148-156 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Hálsskjólið mælist ca 22-24 cm. Klippið frá og festið enda. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 40-44 lykkjur á hringprjón 3 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 1 þræðir). Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 36-40 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á stykki. Prjónamerkið fylgir með í stykkinu. Prjónið mynstur þannig: 2-3 lykkjur, A.1 (= 16 lykkjur), prjónið sléttar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er mynsturteikningin endurtekin á hæðina. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við fyrstu lykkjuna í umferð fyrir þumal (= 2 lykkjur fleiri) – sjá ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu hvoru megin við útauknu lykkjurnar í annarri hverri umferð alls 5 sinnum = 46-50 lykkjur. Setjið nú 11 þumallykkjur á þráð. Prjónið sléttprjón og A.1 síðan hringinn JAFNFRAMT er fitjuð upp 1 ný lykkja aftan við þumal í næstu umferð = 36-40 lykkjur. Þegar vettlingurinn mælist ca 22 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú eru eftir ca 4-5 cm að loka máli), setjið 2 prjónamerki í stykkið þannig: Færðu prjónamerkið í byrjun á umferð um 1 lykkju fram, þ.e.a.s. 1 lykkja frá hægri til vinstri. Settu nýtt prjónamerki eftir 18-20 nýjar lykkjur. Nú eru 18-20 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Haldið nú áfram með eins margar lykkjur af mynstri A.1 og er pláss fyrir á framhlið á stykki og prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur færri) – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 2-3 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umferð 4 sinnum = 8-8 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 4-4 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. ÞUMALL: Setjið til baka 11 þumallykkjur af þræði á sokkaprjón 4. Prjónið að auki upp 4-5 lykkjur aftan við þumal = 15-16 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til sjálfur þumallinn mælist ca 5½-6 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú eru eftir ca ½ cm að loka máli). Prjónið 2 umferðir slétt JAFNFRAMT eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umferðum. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 40-44 lykkjur á hringprjón 3 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 1 þræðir). Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 36-40 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á stykki. Prjónamerkið fylgir með í stykkinu. Prjónið mynstur þannig: 18-21 lykkjur slétt, A.1 (= 16 lykkjur), 2-3 lykkjur slétt. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er mynsturteikningin endurtekin á hæðina. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við fyrstu lykkjuna í umferð fyrir þumal (= 2 lykkjur fleiri) – sjá ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu hvoru megin við útauknu lykkjurnar í annarri hverri umferð alls 5 sinnum = 46-50 lykkjur. Setjið nú 11 þumallykkjur á þráð. Prjónið sléttprjón og A.1 síðan hringinn JAFNFRAMT er fitjuð upp 1 ný lykkja aftan við þumal í næstu umferð = 36-40 lykkjur. Þegar vettlingurinn mælist ca 22 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú eru eftir ca 4-5 cm að loka máli), setjið 2 prjónamerki í stykkið þannig: Færðu prjónamerkið í byrjun á umferð um 1 lykkju fram, þ.e.a.s. 1 lykkja frá vinstri til hægri. Settu nýtt prjónamerki eftir 18-20 nýjar lykkjur. Nú eru 18-20 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Haldið nú áfram með eins margar lykkjur af mynstri A.1 og er pláss fyrir á framhlið á stykki og prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur færri) – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 2-3 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umferð 4 sinnum = 8-8 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 4-4 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. ÞUMALL: Setjið til baka 11 þumallykkjur af þræði á sokkaprjón 4. Prjónið að auki upp 4-5 lykkjur aftan við þumal = 15-16 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til sjálfur þumallinn mælist ca 5½-6 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú eru eftir ca ½ cm að loka máli). Prjónið 2 umferðir slétt JAFNFRAMT eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umferðum. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (10)
Ana Ramirez wrote:
Jeg vil prøve å lage luen. Det står at man strikker fra vrangbord 88 masker. Men luen skal være 54/56 i størrelse. Bør jeg legge til mer masker?
18.12.2023 - 16:04DROPS Design answered:
Hej Ana, nej du skal tage ind som der står - du skal have 19 masker i mønster på 10 cm, hvis du har det, vil hue sidde lidt stramt som på billedet. Vil du have den større, så skal du evt strikke efter den større størrelse :)
19.12.2023 - 14:49BrittMari wrote:
Stickar mössan var snäll förklara intagningarna tack
20.11.2023 - 22:01DROPS Design answered:
Hej BrittMari Se svar nedan. Mvh DROPS Design
22.11.2023 - 14:09Britt-Mari wrote:
Hej,! Stickar mössan och ska börja intagningarna. Har jag förstått rätt : Börjar vid pilen med att sticka ihop två aviga sen två räta varvet ut, ska sen följande varv stickas utan intagningar och nästa två räta stickas samman ? Men sen då ? Tacksam för svar
20.11.2023 - 21:58DROPS Design answered:
Hej. Du stickar varvet med pil i diagram A.2 såhär: "2 maskor aviga tillsammans, 2 räta maskor" - detta upprepas varvet ut. De nästa 5 varv stickas enligt diagrammet (1 avig, 2 räta) och där är det inga minskningar. Nästa varv efter det stickar du "2 räta maskor tillsammans, 1 rätmaska" - detta upprepas varvet ut. De sista 2 varv i diagrammet stickas alla maskor räta utan minskningar. Fortsätt sedan enligt beskrivningen. Mvh DROPS Design
22.11.2023 - 14:09Gabriella Gazzola wrote:
Vorrei lavorare il cappello e lo scaldacollo Modello n° z-87350. Vorrei acquistare 50 g di filatoDROPS KID-SILK di Garnstudio colore n° 06 foschia blu da lavorare insieme a 150 g di filato Alpaca. Quale colore mi consigliate di abbinare in sostituzione del grigio perla non disponibile? Vorrei che risultasse un insieme dal colore delicato ma non banale, è per una ragazzina. Le quantità vanno bene? Grazie
23.09.2023 - 17:33DROPS Design answered:
Buonasera Gabriella, lo potrebbe abbinare al 2917 o 2918 di Alpaca: chieda al suo rivenditore DROPS di fiducia di scattarle delle foto dei diversi abbinamenti, così potrà scegliere meglio. Buon lavoro!
25.09.2023 - 23:13Lucile Lefloch wrote:
Bonjour, Concernant le tour de cou, arrivé à la hauteur souhaitée ne faut-il pas prendre l'aiguille circulaire 3,5 plutôt que 4,5 ? Merci pour votre réponse
23.10.2022 - 17:35DROPS Design answered:
Bonjour Mme Lefloch, pour le tour de cou, on utilise une aiguille circulaire 5,5 + une aiguille circulaire 4,5 - ainsi, on va tricoter les côtes du début et de la fin avec les aiguilles 4,5 (elles seraient beaucoup trop serrées avec des 3,5). Bon tricot!
24.10.2022 - 08:44Montserrat wrote:
He hecho el conjunto con 3 ovillos Drops Baby Merino color 22 y 2 ovillos Drops Kid-Silk color 01. Resultado mut agradable i elegante.
26.12.2021 - 12:15Montserrat wrote:
Buenas , estoy haciendo la muestra para hacer el gorro con las agujas del 3'5, me salen 10 centímetros, 28 puntos. Estoy hecha un lio no se con que agujas trabajar para que me salga el trabajo bien para la talla M.
16.11.2021 - 11:32DROPS Design answered:
Hola Montserrat, tienes que hacer tu muestra con las agujas 4,5 (2 hilos= 1 Alpaca + 1 Kid-Silk). Saludos!
17.11.2021 - 08:33Aubrey wrote:
I am interested in making this hat, but can't tell the purpose of using two types of yarn simultaneously. Is it for color variation or thickness? Can this project be made with just one strand of yarn? Or are two essential?
03.10.2021 - 07:07DROPS Design answered:
Dear Aubrey, we are using two different yarn in this piece to combine the qualities of the two yarns (softnes, silkiness, durability, halo effect, etc). You can use different yarns or even one yarn, but the result will be different, and you will have to make sure to do a gauge swatch and check your stitch/row count. Happy Stitching!
03.10.2021 - 12:27Bernadette wrote:
Bonjour, concernant le bonnet "Lovely Weekend Wander" comment dois-je procéder pour diminuer 12 m à intervalles réguliers alors que j'ai 104 mailles ? Merci beaucoup pour votre aide. Cordialement Bernadette
10.08.2020 - 15:06DROPS Design answered:
Bonjour Bernadette, vous pourrez trouver ici, une leçon qui explique comment répartir des diminutions. Bon tricot!
10.08.2020 - 16:46Julia wrote:
Mönstret säger "Sticka mönster så här: 2-3 rätmaskor, A.1 (= 16 maskor), sticka rätmaskor över de resterande maskorna på varvet." för vänster vante, men visst är det A.3 som menas?
02.06.2020 - 15:12DROPS Design answered:
Hej Julia. Ja det stämmer, detta har nu rättats i texten. Mvh DROPS Design
04.06.2020 - 13:24