Crisp Air Jacket |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki og norrænu mynstri úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-13 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu og prjónið 14-15-16-16-17-18 lykkjur slétt framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 28-30-32-32-34-36 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-45-48-48-51-54 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 56-60-64-64-68-72 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið slétt út umferðina (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni), snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið út umferðina (kantar að framan eru prjónaðari í garðaprjóni). Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. KANTUR AÐ FRAMAN: Fyrstu og síðustu 5 lykkjurnar í umferð eru prjónaðar í garðaprjóni og þegar prjónað er mynstur A.2/A.3 eru kantar að framan prjónaðir í mynstri A.1. Þegar prjónað er mynstur A.5/A.6 eru kantar að framan prjónaðir í mynstri A.4. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) mínus kanta að framan (= 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 29) = 3,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9-8-8½-9 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-112-116-120-124-132 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með litnum sægrænn. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn. Prjónið stroff frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til stykkið mælist 3 cm. Setjið prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki prjóna upphækkunina, farðu beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur fram og til baka þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – sjá KANTUR AÐ FRAMAN, A.2 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, A.3 yfir næstu lykkju, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, JAFNFRAMT í hverri umferð með stjörnu er aukið út þannig: STJARNA-1: Aukið út 29-31-33-35-37-41 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 137-143-149-155-161-173 lykkjur (nú er pláss fyrir 21-22-23-24-25-27 mynstureiningar A.2 með 6 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! STJARNA-2: Aukið út 42-42-48-48-48-48 lykkjur jafnt yfir = 179-185-197-203-209-221 lykkjur (nú er pláss fyrir 28-29-31-32-33-35 mynstureiningar A.2 með 6 lykkjum). STJARNA-3: Aukið út 48-54-54-60-60-60 lykkjur jafnt yfir = 227-239-251-263-269-281 lykkjur (nú er pláss fyrir 36-38-40-42-43-45 mynstureiningar með 6 lykkjum). STJARNA-4: Aukið út 29-42-45-48-52-60 lykkjur jafnt yfir = 256-281-296-311-321-341 lykkjur (nú er pláss fyrir 49-54-57-60-62-66 mynstureiningar A.2 með 5 lykkjum). STJARNA-5: Aukið út 27-34-43-44-50-54 lykkjur jafnt yfir = 283-315-339-355-371-395 lykkjur (nú er pláss fyrir 34-38-41-43-45-48 mynstureiningar A.2 með 8 lykkjum). Þegar 1 umferð er eftir í mynsturteikningu, mælist stykkið ca 22 cm frá prjónamerki. Nú er prjónað áfram mismunandi eftir stærðum þannig: Í stærð S er hoppað yfir næsta kafla og prjónað er áfram frá kafla með Allar stærðir – sjá útskýringu að neðan. Stærð M, L, XL, XXL og XXXL: Prjónið nú áfram með mynstur A.5 yfir A.2, A.6 yfir A.3 og kanta að framan í garðaprjóni með þeim lit sem sýndur er í A.4. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, mælist stykkið ca 24 cm frá prjónamerki og niður. Stærð M er nú lokið (ef stykkið er styttra en 24 cm, prjónið áfram með litnum sægrænn að réttu máli). Í stærð L, XL, XXL og XXXL prjónið fram og til baka með sægrænn, sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 27-28-29-30 cm frá prjónamerki, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 27-28-29-30 cm (frá prjónamerki).Aukið út 0-11-19-27 lykkjur jafnt yfir = 339-366-390-422 lykkjur. Allar stærðir: Síðasta umferð á berustykki er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 45-49-52-57-62-68 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 56-64-70-74-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 81-89-95-104-114-126 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 56-64-70-74-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 45-49-52-57-62-68 lykkjur sem eftir eru á prjóni (= vinstra framstykki). Prjónið síðan ermar og fram- og bakstykki hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 187-203-219-238-262-286 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Í stærð S er prjónað áfram eins og útskýrt er að neðan og í stærð M, L, XL, XXL og XXXL er hoppað yfir næsta kafla og prjónað er áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að neðan. Stærð S: Nú eru 187 lykkjur í umferð. Prjónið nú mynstur þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og mynstur A.4 yfir lykkjur í kanti að framan, prjónið A.5 yfir hverja einingu A.2 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, A.6 yfir næstu lykkju og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni og mynstur A.4 yfir lykkjur í kanti að framan. Haldið svona áfram fram og til baka þar til mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina. Haldið áfram eins og útskýrt er að neðan. Allar stærðir: Haldið áfram fram og til baka með litnum sægrænn, sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með ca 7 cm millibili alls 4 sinnum = 203-219-235-254-278-302 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29 cm aukið út 37-41-45-50-54-58 lykkjur jafnt yfir = 240-260-280-304-332-360 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni ( 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið yfir á 1 númeri grófari prjóna ef affellingarkanturinn verður stífur. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 56-64-70-74-76-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 nýja lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 64-72-80-84-88-92 lykkjur. Í stærð S er mynstrið prjónað eins og útskýrt er að neðan, í hinum stærðunum er prjónað áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að neðan. Stærð S: Byrjið umferð á undan 8 nýjum lykkjum undir ermi og prjónið A.2 yfir hverja einingu A.1 (frá berustykki). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að neðan. Allar stærðir: Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn með litnum sægrænn. Þegar stykkið mælist 4-4-4-3-3-3 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 11-14-17-18-19-20 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Þegar ermin mælist 37-36-34-33-31-29 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Aukið út 6-8-10-8-10-8 lykkjur jafnt yfir = 48-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið yfir á 1 númeri grófari prjóna ef affellingarkanturinn verður stífur. Ermin mælist ca 41-40-38-37-35-33 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (9)
Vladi Angeliki wrote:
Je vous remercie de votre réponse rapide. Je me demandais s'il fallait faire une taille au dessus mais un deuxième échantillon m'a rassurée. Je continue mon ouvrage qui est de plus en plus joli.
23.06.2020 - 18:59Vladi Zelina wrote:
Bonjour! Je suis embrouillée avec les mesures du gilet. Si 20 mailles donnent 10 cm, les 304 mailles devraient donner 150 cm au lieu de 122 cm indiqué pour la taille XL.
23.06.2020 - 13:10DROPS Design answered:
Bonjour Mme Zelina, les 304 mailles se tricotent en côtes avec les petites aiguilles = il faut plus de mailles qu'en jersey avec les grandes aiguilles - en XL vous terminez par 254 mailles soit 127 cm / 2 - les bordures des devants = env. 61 cm. Bon tricot!
23.06.2020 - 16:21Inkeri K-L wrote:
When will this jacket be published? It’s my favourite, the yarns are waiting😘😙
20.08.2019 - 19:17Johanna H wrote:
Lovely colours. I really want to make this!!!
07.07.2019 - 18:28Bullermor wrote:
Flot, skønne farver også.
19.06.2019 - 23:44Doris wrote:
1A, gefällt mir beides, Jacke und Pulli :-)
17.06.2019 - 10:28Ellis wrote:
My vote, elegant, colourband can be repeated on hips
09.06.2019 - 21:20Gabriele wrote:
Da stimmt Alles!Wird auf alle Fälle gestrickt!
06.06.2019 - 09:19Ángela wrote:
Favorece ese canesú
05.06.2019 - 20:21