Precious Moments |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með laskalínu úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri. Stærð fyrirburar til 3/4 ára.
DROPS Baby 33-11 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónamerki í og sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir svo að ekki myndast göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur færri í hverri umferð með úrtöku). Öll úrtaka er gerð frá réttu! Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 50 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 8,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er í þessu dæmi prjónuð ca 7. og 8. hver lykkja slétt saman. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = Byrjið frá réttu og prjónið aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: (fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í síðustu umferð á undan kanti í hálsmáli eins og útskýrt er í uppskrift). <0 MÁNAÐA: 2, 5, 8, 11, 15 og 18 cm 0/1 MÁNAÐA: 2, 6, 10 ,14, 18 og 22 cm 1/3 MÁNAÐA: 2, 6, 10, 14, 18, 22 og 26 cm 6/9 MÁNAÐA: 2, 6, 10, 14, 18, 22 og 27 cm 12/18 MÁNAÐA: 2, 6, 10, 14, 18, 23 og 28 cm 2 ÁRA: 2, 6, 11, 16, 21, 26, 30 og 35 cm 3/4 ÁRA: 2, 7, 12, 17, 22, 27, 32 og 37 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, neðan frá og upp að handveg. Síðan eru ermar prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Að lokum eru fram- og bakstykki og ermar sett saman og haldið er áfram fram og til baka á hringprjón til loka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp (81) 99-111-117-129 (135-147) lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð (= (12) 15-17-18-20 (21-23) mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.1A og A.1B. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Í umferð merktri með ör-1 í A.1A (ranga) er fækkað um (3) 1-1-3-3 (1-1) lykkjur jafnt yfir – ekki er lykkjum fækkað yfir kanta að framan = (78) 98-110-114-126 (134-146) lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= (17) 22-25-26-29 (31-34) mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.B (= 2 lykkjur) og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Í umferð merktri með ör-2 í A.1A er aukið út um (3) 1-1-3-3 (1-1) lykkjur jafnt yfir = (81) 99-111-117-129 (135-147) lykkjur í umferð og mynstrið heldur áfram eins og áður. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca (12)15-18-18-18 (24-24) cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 4 lykkjur garðaprjón, (17) 21-24-24-28 (29-32) lykkjur brugðið, JAFNFRAMT er aukið út um (0) 0-1-1-1 (0-1) lykkju = (21) 25-29-29-33 (33-37) (= framstykki) fellið af (4) 4-4-6-6 (6-6) lykkjur fyrir handveg, prjónið (31) 41-47-49-53 (57-63) lykkjur brugðið, JAFNFRAMT er aukið út um (2) 0-2-0-0 (0-2) lykkjur jafnt yfir = (33) 41-49-49-53 (57-65) lykkjur (= bakstykki), fellið af (4) 4-4-6-6 (6-6) lykkjur fyrir handveg og prjónið (17) 21-24-24-28 (29-32) lykkjur brugðið, JAFNFRAMT er aukið út um (0) 0-1-1-1 (0-1) lykkju, endið með 4 lykkjur garðaprjón = (21) 25-29-29-33 (33-37) (= framstykki). Geymið stykkið og prjónið nú ermar. ERMI: Fitjið upp (30) 30-30-36-36 (36-42) lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið A.2 hringinn (= (5) 5-5-6-6 (6-7) mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er A.3A prjónað hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til (28) 32-32-36-36 (36-40) lykkjur (nú er pláss fyrir (7) 8-8-9-9 (9-10) mynstureiningar með 4 lykkjum) – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir). Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkjuna í umferð (= mitt undir ermi) og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með (2½) 3-2½-3-2½ (2-2 ½) cm millibili alls (3) 3-5-5-7 (9-10) sinnum = (34) 38-42-46-50 (54-60) lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca (12) 15-18-19-22 (25-29) cm, en endið eftir 3. eða 8. umferð í A.3A. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af (2) 2-2-3-3 (3-3) lykkjur fyrir handveg, prjónið (30) 34-38-40-44 (48-54) lykkjur slétt, fellið síðan af þær (2) 2-2-3-3-(3-3) lykkjur sem eftir eru fyrir handveg. Klippið frá og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjur) = (135) 159-183-187-207 (219-247) lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þegar A.3 er prjónað (bæði á fram-/bakstykki og ermum) er mikilvægt að halda áfram í mynsturteikningu þar sem mynsturteikning endaði á ermum): Prjónið 4 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.3A yfir næstu (16) 20-24-24-28 (28-32) lykkjur (= (4) 5-6-6-7 (7-8) mynstureiningar með 4 lykkjum), A.3 B (= 1 lykkja), setjið 1 prjónamerki (= framstykki), haldið áfram með A.3A yfir næstu (30) 34-38-40-44 (48-54) lykkjurnar, setjið 1 prjónamerki (= ermi), prjónið A.3A yfir næstu (32) 40-48-48-52 (56-64) lykkjur (= (8) 10-12-12-13 (14-16) mynstureiningar með 4 lykkjum), A.3B (= 1 lykkja) setjið 1 prjónamerki (= bakstykki), haldið áfram með A.3A yfir næstu (30) 34-38-40-44 (48-54) lykkjur, setjið 1 prjónamerki (= ermi), prjónið A.3A yfir næstu (16) 20-24-24-28 (28-32) lykkjur, A.3 B og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (= framstykki). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls (8 ) 10-11-12-14 (15-17) sinnum. Eftir síðustu úrtöku fyrir laskalínu eru (71) 79-95-91-95 (99-111) lykkjur í umferð. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um (13) 17-29-19-19 (19-27) lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA, að aukið eru felldar af síðustu lykkjurnar fyrir hnappagötum í þessari umferð = (58) 62-66-72-76 (80-84) lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca (22) 26-30-31-32 (39-41) cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman opið undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (38)
Francisca Muzard wrote:
Me encantan sus productos, son muy lindos y con muy buenas explicaciones para poder hacerlas. Muchas gracias por ayudarnos a hacer estas cosas tan bonitas .
29.05.2024 - 17:54Francisca Muzard wrote:
Estupendos y muy bonitos los productos que tienen y las lanas excelentes Gracias
03.05.2024 - 05:03Dorottya wrote:
Az ujja leírás nem jó, mert nem 38 cm hosszú az ujja, hanem 15...stb.Szerintem a szem számát írták oda.
15.03.2024 - 09:06Thifaine wrote:
Bonjour impossible d’avoir la version française je ne vois pas la liste déroulante
04.03.2024 - 21:13DROPS Design answered:
Bonjour Thifaine, le menu déroulant se trouve maintenant juste au-dessus de la partie écrite des explications, autrement dit, si vous avez le modèle en anglais par ex. juste au-dessus de: Pattern instructions. Bon tricot!
05.03.2024 - 09:41Bernard Berthet wrote:
BONJOUR Pourriez vous m adresser la version francaise svp merci
14.09.2023 - 10:44DROPS Design answered:
Bonjour Mme Berthet, volontiers, cliquez simplement sur le menu déroulant sous la photo pour sélectionner "français". Bon tricot!
14.09.2023 - 17:10Vivia wrote:
Der er en fejl i opskriften, hvor man skal stoppe efter 3. eller 8. omgang i A.3A i ermet, før man lukker af i næste omgang. Fordig, hvis jeg nu skal strikke efter A.3A så vil jeg have 5 glat masker i for og bag stykket, eller skal jeg strikke vrangmaskerne på flere omgange end hvad billedet viser. Den korrekte måde er “stop efter 1. eller 6. omgang” og luk af på næste omgang. - Så strikker jeg alle vrangmaskerne i samme pind, og det samsvarer med billedet.
07.07.2023 - 04:50Kim Berggren wrote:
Hur är det tänkt med avmaskningarna vid raglanen respektive kanten för raglanöppningen - Jag uppfattar det som att öppningens kanter ska maskas av i början och på slutet av varje varv - rätt eller fel? - ska då även ihoptagningen för raglansömmarna då också maskas av varje varv? Eller som det står i mönstret varannat varv? Men på själva tipset för avmaskningen står det som om den skulle maskas av varje varv - vilket sätt är det som gäller?
20.02.2023 - 15:40DROPS Design answered:
Hej Kim, du har alle masker på en rundpind, minsker på hver side af alle raglan overgange (det bliver ingen åbning i raglanovergangene), hele oket strikkes samtidigt :)
28.02.2023 - 15:42Caroline wrote:
Hej jeg er i gang med at strikke forstykke/ryg og er på den pind hvor der tages ud til ærmegab. Jeg har strikket forstykket, på vrangsiden, og taget ud til ærmegab og er nu igang med bagstykket. Her står der at det næste stykke (bagstykket) skal strikkes ret, selvom forstykket skulle strikkes vrang. Der er ingen billeder af bagstykket i opskriften, så jeg kan ikke se om der skal være et stykke uden glatstrik på bagstykket?
20.11.2022 - 20:50DROPS Design answered:
Hei Caroline. Her ser det ut som det er feil i den danske teksten. Har sammelignet med den norske, engelske og svenske teksten, og der skal det strikkes vrang på bakstykket også. Vi vil forandre den danske teksten asap, takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. mvh DROPS Design
21.11.2022 - 13:59Chris Whitehead wrote:
Are there any written instructions for this pattern. I'm terrible with graphs and I really love this.
13.11.2022 - 09:54DROPS Design answered:
Dear Chris, the pattern is only available in the format you see online. If you need help understanding the diagrams you may read the following lesson: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=19. Happy knitting!
13.11.2022 - 17:18Annick Brochet wrote:
Bonjour, j’ai tricoté le dos/devant, les manches mais je bloque au niveau du montage de ces morceaux. Je n’arrive pas à raccorder les morceaux entre eux pour continuer le haut du devant, le dos et l’autre côté. Depuis le nbre d’années que je tricoté cela ne m’était jamais arrivé,. Quelqu’7n aurait-il la gentillesse de m’aider svp ? Merci d'avance à tous et toutes.
02.10.2022 - 12:05DROPS Design answered:
Bonjour Mme Brochet, cette vidéo montre comment placer les manches au-dessus des mailles rabattues de l'emmanchure, les premiers rangs paraissent parfois un peu techniques, mais après quelques rangs, ce sera plus facile, vous pouvez vous aider d'une autre aiguille circulaire ou tricoter les premiers rangs avec la technique du magic loop (pour vous permettre de passer les manches plus facilement). Bon tricot!
03.10.2022 - 09:04