Rivage Top |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónaður toppur með laskaínu úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri á ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-23 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.5, A.6 og A.7). ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 124 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 26) = 4,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma eins og útskýrt er að neðan. Aukið út á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt. Þ.e.a.s. aukið út um 2 lykkjur við hvert prjónamerki og alls 8 lykkjur í umferð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni á fram- og bakstykki og í gatamynstri á ermum. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og kanta að ermum. Fram- og bakstykki halda áfram í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Kantar á ermum eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 120-124-128-132-138-146 lykkjur á hringprjón 2,5 með Safran. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-26-22-38-32-44 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1= 126-150-150-170-170-190 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúin slétt). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð síðar þegar auka á út fyrir laskalínu. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, teljið 23 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 40-52-52-62-62-72 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 23 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 40-52-52-62-62-72 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á bakstykki. Fyrsta umferðin er prjónuð þannig: Aukið út fyrir LASKALÍNA á eftir prjónamerki – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 yfir næstu 21 lykkjur (= ermi), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerki, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta prjónamerki (= framstykki), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerki, prjónið A.1 yfir næstu 21 lykkjur (= ermi), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerki, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki í byrjun á umferð (= bakstykki), aukið út fyrir laskalínu á undan prjónamerki. Haldið svona áfram með mynstur í sléttprjóni á fram- og bakstykki og A.1 á ermum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT heldur útaukning áfram fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 25-25-31-31-37-37 sinnum við hvert prjónamerki (meðtalin útaukning sem er útskýrð í fyrstu umferð). Nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í sléttprjóni á fram- og bakstykki og í gatamynstri eins og mynsturteikning sýnir á ermum. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, haldið áfram með gatamynstur á ermum eins og útskýrt er að neðan: GATAMYNSTUR ERMI: STÆRÐ S og M: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, er næsta umferð prjónuð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 24 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.5 (= 13 lykkjur), prjónið A.6 yfir næstu 48 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.7 (= 8 lykkjur). Þegar síðasta umferð í A.5 til A.7 er eftir, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ L og XL: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, er næsta umferð prjónuð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 24 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.5 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 48 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.7 (= 8 lykkjur). Þegar síðasta umferð í A.5 til A.7 er eftir, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XXL og XXXL: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, er næsta umferð prjónuð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 24 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 48 lykkjurnar (= 4 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.5 (= 13 lykkjur), prjónið A.6 yfir næstu 72 lykkjur (= 6 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.7 (= 8 lykkjur). Þegar síðasta umferð í A.5 til A.7 er eftir, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Þegar allar útaukningar fyrir laskalínu er lokið eru 326-350-398-418-466-486 lykkjur í umferð. Haldið áfram með gatamynstur eins og útskýrt er að ofan þar til síðasta umferð í A.5 til A.7 er eftir. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar og síðasta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 4-1-2-0-4-3 lykkjur slétt, setjið næstu 65-71-81-85-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 98-104-118-124-144-152 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 65-71-81-85-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 94-103-116-124-140-149 lykkjur sem eftir eru slétt (= bakstykki). Berustykkið mælist nú ca 20-20-24-24-27-27 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Takið frá öll prjónamerki í stykkinu og klippið frá. Prjónið síðan fram- og bakstykki og kanta á ermum til loka hvert stykki fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 212-224-252-268-308-328 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-8-10-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5 cm millibili alls 5 sinnum í öllum stærðum = 232-244-272-288-328-348 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 28-30-28-30-29-31 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 2 cm til loka). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 56-60-68-72-80-84 lykkjur jafnt yfir = 288-304-340-360-408-432 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjónað er síðar dragist saman. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Toppurinn mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. KANTUR Á ERMUM: Setjið 65-71-81-85-89-91 lykkjur af þræði frá annarri hlið á stykki á sokkaprjón 2,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 73-79-89-95-99-103 lykkjur. Prjónið 6 umferðir garðaprjón hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hinn kantinn á ermi á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (55)
Ioanna wrote:
I would like to knit with No. 4 needles. How many stitches cast on ?
23.04.2024 - 11:23DROPS Design answered:
Dear Ionna, this pattern is worked with a tension of 24 sts x 32 rows stocking stitch = 10 x 10 cm, you can recalcualte the pattern with the help of your own tension and the finished measurements. Or take inspiration/help from top worked with a tension of 22-20 sts (see here) or with a tension of 19-18 sts here. Happy knitting!
23.04.2024 - 12:33Yvonne wrote:
Is het patroon van de trui met lange mouwen gelijk aan die met korte mouwen? Ik twijfel of ik korte of lange mouwen zal doen. Dan kan ik beginnen en als laatste besluiten of ik de mouwen lang ga maken.
14.04.2024 - 14:38DROPS Design answered:
Dag Yvonne,
Ja, beide patronen zijn, op de lengte van de mouwen na, verder gelijk aan elkaar.
15.04.2024 - 21:19Gudrun Liedtke wrote:
Wenn die Raglanzunahmen fertig sind ,werden die Maschen dann wieder rechts gestrickt? Und laufen die Umschläge nur innerhalb des Strickdiagramms weiter? Liebe Grüße Gudrun Liedtke
17.02.2024 - 18:33DROPS Design answered:
Liebe Frau Liedtke, wenn die Raglanzunahmen für Rumpf fertig sind, strickt man die Maschen rechts weiter, und bei den Ärmeln stricken Sie wie in A.5/A.7 gezeigt (damit nur Löcher bleiben, aber ohne weitere Zunahmen). Viel Spaß beim stricken!
19.02.2024 - 09:10Ines Helga Kerr wrote:
There is no chart 6 for size large. Am I missing something?
08.11.2023 - 17:17DROPS Design answered:
Dear Mrs Kerr, A.6 is not worked in L, see description of diagrams under LACE PATTERN SLEEVE: ... SIZE L and XL: . Happy knitting!
09.11.2023 - 08:12Rossana Savoldi wrote:
Buongiorno
19.07.2023 - 00:18Sirlin Marie wrote:
Bonjour, je suis en train de faire mon échantillon et je me pose la question de l\'aisance recommandée pour ce t-shirt afin de choisir au mieux la taille à tricoter. Cordialement, Marie
25.06.2023 - 18:13DROPS Design answered:
Bonjour Mme Sirlin, nous n'utilisons pas ce concept d'aisance, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma; c'est la façon la plus simple de choisir votre taille et de décider ainsi quel type d'aisance (plutôt serré ou plutôt lâche) vous préférez. Bon tricot!
26.06.2023 - 09:14Gabi wrote:
Guten Tag Wird bei der Grösse S Diagramm A5 noch einmal zugenommen? Habe leider zu viele Maschen auf der Nadel . Herzlichen Dank
08.06.2023 - 09:10DROPS Design answered:
Liebe Gabi, wenn A.2 bis A.4 einmal in der Höhe gestrickt wurden, wurde es nur 24 Mal für Raglan zugenommen; bei der 1. Reihe A.5 sollen Sie noch die letzte Raglanzunahmen stricken, so sind es 14 M in A.5 und 9 M in A.7. Viel Spaß beim stricken!
08.06.2023 - 09:56Toril wrote:
Jeg ser at mange har spurt om dette, men svarene forklarer ikke godt nok. Det gjelder de siste 10 omfarene i A5 og A7 (str L). Da er raglanøkning ferdig. Skal man lage kast og to sammen nedover på begge sider (erme og rygg/foran)? Hva med de fire maskene imellom (selve raglanøkningen og to masker mellom)? For de er jo utenfor diagrammet.. Presiserer at det kun gjelder de siste ti omganger etter at 31 økninger er ferdig.
06.06.2022 - 23:16Reidun wrote:
37 country flag Astrid wrote: Hei! Strikker i str M og ved A5-A7 er man være ferdig med raglan. På starten og slutten av ermene er det felling og hullmønster. På bildet ser det ut som det fortsett er hullmønster på starten og slutten av bak-og forstykket også, men ser ikke noe i oppskriften om det. Skal jeg da ordne hull, også felle rett etterpå der også? Slik at det blir hullmønster på hver side av merkemaskene.
20.05.2022 - 21:23DROPS Design answered:
Hei Reidun. Det ble gitt et svar til Astrid/10.06.2021. Om du har samme spørsmål som henne kan du se vårt svar som ligger under hennes spørsmål/ evnt se under. Eller hadde du et annet spørsmål? Slik står det i oppskrfiten: Det økes 2 masker ved hver merketråd og totalt 8 masker på omgangen. På neste omgang strikkes kastene rett slik at det blir hull = Hullmønster på hver side av "raglanlinjen", i tillegg kommer hullmønstret fra diagrammene. mvh DROPS design
23.05.2022 - 08:21Kasia wrote:
Tak zrobiłam, tylko nie rozumiem polecenia, żeby zacząć tył/ przód od jednej z nitek markerów czyli na środku 8 dobranych oczek pod rękawem ? "zaczynając okrążenie od jednej z nitek markerów"? Tzn. po 4 dobranym oczku pod rękawem?
07.05.2022 - 11:53DROPS Design answered:
Witaj Kasiu, dokładnie tak. Pozdrawiamy!
08.05.2022 - 15:32