Baby Talk |
||||
|
|
|||
Prjónaður galli án ermasauma og húfa fyrir börn í perluprjóni, garðaprjóni og hekluðum kanti. Settið er prjónað úr DROPS BabyMerino. Stærð á galla: 1 mán til 2 ára. Stærð á húfu: fyrriburar til 4 ára.
DROPS Baby 33-30 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring – á við um húfu): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. ÚTAUKNING (á við um galla): Aukið er út innan við 1 kantlykkju. Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. ÚRTAKA (á við um galla): Lykkjum er fækkað innan við 1 kantlykkju. Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Fyrstu eru prjónaðar 2 skálmar, síðan eru skálmarnar prjónaðar saman og prjónað er áfram fram og til baka upp að ermi. Síðan eru fitjaðar upp lykkjur fyrir ermi í hvorri hlið á stykki, framstykki og bakstykki er síðan prjónað til loka hvort fyrir sig. Axla- og ermasaumar eru saumaðir og heklaður er kantur í kringum opið á gallanum í lokin. Allur gallinn er prjónaður í perluprjóni. SKÁLM: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón til að fá pláss fyrir allar lykkjur. Fitjið upp 46-50-54-58 (66-70) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3 með litnum ljós lavender Baby Merino. Prjónið PERLUPRJÓN yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin á stykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 3.-4.-5.-5. (8.-8.) hverri umferð alls 11-11-12-14 (13-16) sinnum = 68-72-78-86 (92-102) lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-18-21-24 (29-34) cm fellið af 5 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir klofi (þ.e.a.s. fellið af lykkjur hvoru megin á stykki) = 58-62-68-76 (82-92) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra skálm á sama hátt. GALLI: Setjið báðar skálmarnar á sama hringprjón 3 með affellingarkant að hvorum öðrum = 116-124-136-152 (164-184) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 6 umferðir perluprjón, fram og til baka, með byrjun við miðju að framan. Prjónið síðan þannig: Fitjið upp 3 nýjar kantlykkjur að framan í lok 2 næstu umferða (fyrir kant) = 122-130-142-158 (170-190) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 32-34-37-41 (44-49) lykkjur inn frá hvorri hlið. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þær merkja framstykki og bakstykki. Nú eru auknar út lykkjur við miðju að framan (þ.e.a.s. í hvorri hlið á stykki) þannig að framstykkin komi yfir hvort annað: Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju að framan í hvorri hlið á stykki (= 2 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING! Aukið síðan út í 4. hverri umferð 3-2-0-3 (2-13) sinnum til viðbótar, síðan í 6. hverri umferð 8-11-16-17 (21-15) sinnum (= alls 12-14-17-21 (24-29) lykkjur fleiri í hvorri hlið á stykki) = 44-48-54-62 (68-78) lykkjur á hvoru framstykki = 146-158-176-200-218-248 lykkjur alls. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM OG LYKKJUM ER FÆKKAÐ AÐ FRAMAN FYRIR HÁLSMÁLI INNAN VIÐ 1 KANTLYKKJU AÐ FRAMAN JAFNFRAMT ÞVÍ SEM STYKKIÐ SKIPTIST OG FITJAÐAR ERU UPP LYKKJUR FYRIR ERMI. FÆKKIÐ LYKKJUM VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN FYRIR HÁLSMÁLI ÞANNIG: Prjónið yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 17-20-25-28 (32-34) cm frá prjónamerki. Fækkið síðan um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju að framan fyrir hálsmáli í hvorri hlið á stykki (= 2 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 20-24-27-31 (35-41) sinnum til viðbótar, síðan í 4. hverri umferð 2 sinnum (= alls 23-27-30-34 (38-44) lykkjur færri í hvorri hlið á stykki). HÉÐAN SKIPTIST STYKKIÐ OG FITJAÐAR ERU UPP LYKKJUR FYRIR ERMI ÞANNIG: HÆGRA FRAMSTYKKI: Þegar stykkið mælist 21-26-30-35 (40-43) cm frá prjónamerki, skiptist stykkið við 2 prjónamerkin og fram- og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. Stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Prjónið nú yfir lykkjur að fyrra prjónamerki (= hægra framstykki). Setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð. Fitjið nú upp lykkjur fyrir ermi í lok hverrar umferðar frá réttu þannig (ATH: Haldið áfram að fækka lykkjum innan við 1 kantlykkju að framan í byrjun á umferð eins og áður): Fitjið upp 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls 4-4-5-6 (7-8) sinnum, síðan 17-17-16-16 (18-20) lykkjur alls 1 sinni (= alls 33-41-46-52 (60-68) lykkjur fitjaðar upp fyrir ermi). Þegar allar lykkjurnar hafa verið fitjaðar upp og úrtökur hafa verið gerðar eru 54-62-70-80 (90-102) lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 45-53-62-70 (81-90) cm alls, mælt frá skálm að öxl. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið yfir síðustu lykkjurnar sem settar voru á þráð, fram að prjónamerki. Prjónið eins og hægra framstykki, nema gagnstætt – þ.e.a.s. fitjið upp lykkjur fyrir ermi í lok umferðar frá röngu. Haldið áfram að fækka lykkjum innan við 1 kantlykkju að framan í lok umferðar eins og áður fyrir hálsmáli. BAKSTYKKI: = 58-62-68-76 (82-92) lykkjur. Fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið fyrir ermar þannig: Fitjið upp 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls 4-4-5-6 (7-8) sinnum, síðan 17-17-16-16 (18-20) lykkjur alls 1 sinni (= alls 33-41-46-52 (60-68) lykkjur fitjaðar upp fyrri ermi í hvorri hlið á stykki) = 124-144-160-180 (202-228) lykkjur. Þegar stykkið mælist alls 44-52-61-69 (80-89) cm fellið af miðju 16-20-20-20 (22-24) lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig (= 54-62-70-80 (90-102) lykkjur eftir á öxl). Prjónið þar til stykkið mælist alls 45-53-62-70 (81-90) cm, mælt frá skálm að öxl, stillið af við framstykkin. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið sauma ofan á ermi/axlasauma með lykkjuspori frá réttu. Saumið saum undir ermum kant í kant í ystu lykkjubogana. Saumið skálmar saman innan við 1 kantlykkju og saumið 5 lykkjur sem felldar voru af á milli skálma saman. Saumið klauf upp þar sem fitjaðar voru upp 3 nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir kantlykkjur að framan og saumið þær 3 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki á gallanum. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með heklunál 2,5 með litnum ljós beige í kringum allt opið við miðju framan á gallanum þannig: UMFERÐ 1 (= frá röngu): Byrjið við miðju að framan neðst niðri á vinstra framstykki, heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju þar sem fitjaðar voru upp 3 kantlykkjur að framan, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* (passið uppá að kanturinn verði ekki stífur), haldið áfram að hekla kantinn í kringum gallann fram að horni þar sem úrtaka fyrir hálsmáli byrjaði á vinstra framstykki, heklið snúru þannig: 1 fastalykkja í hornið, heklið síðan loftlykkjur í ca 20-25 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju til baka í hverja loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju aftur í hornið á framstykki, heklið síðan í hring að næsta horni (þ.e.a.s. á hægra framstykki), heklið snúru, haldið áfram eins og áður í kringum afganginn af gallanum niður þar sem fitjaðar voru upp 3 kantlykkjur að framan, stillið af að endað sé með 1 fastalykkju. UMFERÐ 2 (= frá réttu): Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkja + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* (passið uppá að heklað sé yfir snúru þannig að snúran liggi undir kanti, þ.e.a.s. ekki hekla í lykkju í snúru), endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá fyrri umferð. Klippið frá og festið enda. Heklið með heklunál 2,5 með litnum ljós beige neðst í kringum báðar skálmar þannig: UMFERÐ 1: Byrjið við saum. Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, prjónið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkju + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkjur í byrjun á umferð. Heklið með heklunál 2,5 með litnum ljós beige neðst í kringum báðar ermar þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju neðst niðri á ermi, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* (passið uppá að kanturinn verði ekki stífur) og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkja + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Heklið síðan 1 snúru alveg eins og í horni á hægra og vinstra framstykki, að utan verðu á vinstra framstykki, undir ermi (þ.e.a.s. í hlið) og á innan verðu á hægra framstykki – passið uppá að bandið komi í sömu hæð og horn á framstykki. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÚFA: Fitjið laust upp (68) 80-92-96-104 (112-116) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum ljós lavender Baby Merino. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í (2) 2-3-3-3 (4-4) cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT því sem fækkað er um 8 lykkjur jafnt yfir = (60) 72-84-88-96 (104-108) lykkjur. Prjónið síðan PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (9) 10-11-11-13 (13-14) cm – prjónið stykkið í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umferð, fækkið um (6) 8-7-8-8 (8-9) lykkjur jafnt yfir. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð með sléttum lykkjum), (5) 5-5-5-5 (6-6) sinnum til viðbótar (= alls (6) 6-6-6-6 (7-7) úrtöku umferðir) = (24) 24-42-40-48 (48-45) lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Prjónið 1 umferð brugðið og endurtakið úrtöku í næstu umferð í 6/9, 12/18 mán og (2 - 3/4) ára (ekki er fleiri lykkjum fækkað í hinum stærðunum) = (12) 12-11-10-12 (12-12) lykkjur. Þræðið tvöfaldan þráð í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (86)
Aslaug Lockertsen wrote:
Ben:hvordan skal jeg felle de 5maskene? To og to sammen fem ganger eller to sammen,sette den ene tilbake,to sammen osv. Fem ganger,det blir tverrfelt og skjønner ikke da skrittet.
09.04.2024 - 21:36DROPS Design answered:
Hei Aslaug, Du feller av (sånn som når du feller av på slutten av arbeidet) 5 masker på begynnelsen av neste 2 pinnene. God fornøyelse!
10.04.2024 - 06:35Valérie wrote:
Bonjour, Je ne comprends pas le la couture à faire pour l'entre jambes... Auriez voys un schéma ? Merci par avance car j'arrive à la fin mais je suis bloquée par cette couture.
17.12.2023 - 15:41DROPS Design answered:
Bonjour Valérie, assemblez les mailles rabattues pour l'entrejambe sur le devant de l'ouvrage à celles rabattues pour l'entrejambe sur le dos de l'ouvrage, autrement dit, vous cousez les 10 mailles rabattues (5 m jambe gauche et 5 m jambe droite) côté devant aux 10 mailles rabattues côté dos (5 m jambe gauche et 5 m jambe droite). Bonne continuation!
18.12.2023 - 08:49Yani wrote:
Bij de laatste deel waar je aan de mouwen gaat beginnen en het werk verdeelt, moet je voor de mouwen 4 keer 4 steken bij zetten. Is dit in een keer 16 steken erbij of elke naald 4 steken erbij zetten? En hoe worden ze er het bij bijgezet wznt bij de tip staat aan de kantsteek met omslag.
17.10.2023 - 10:21DROPS Design answered:
Dag Yani,
Je zet er inderdaad elke naald 4 steken bij op, anders had er wel gestaan dat je 16 steken op moest zetten. Bij een van de video's kun je vinden hoe je steken opzet aan de zijkant.
18.10.2023 - 18:49Hashim wrote:
Bonjour Je suis arrivée à la combinaison et j'ai glissé les mailles des deux jamnbes sur la meme aiguille circulaire. Que voulez vous dire en placant les mailles rabattues les unes contres les autres? Où dois je placer le fil marqueur? Ensuite je dois tricoter 6 rgs en point de riz en aller et retour, en commencant par le milieu devant. Comment je reconnais le milieu devant? Merci pour votre support
27.05.2023 - 15:03DROPS Design answered:
Bonjour Hashim, vous devez avoir les 5 mailles rabattues à la fin de l'une des jambes contre les 5 mailles rabattues au début de l'autre jambe côte à côte. Vous placez votre fil marqueur le long/avant ce 1er rang, il va vous servir de repère pour mesurer la partie "combinaison". Le milieu devant est simplement la partie qui se trouve au milieu du devant (ouverture de la combinaison). Autrement dit, tricotez 1 des jambes sur l'endroit, puis tricotez l'autre jambe à suivre sur l'endroit, tournez et tricotez encore 5 rangs sur toutes les mailles. Bon tricot!
30.05.2023 - 10:29Isabel wrote:
(Strl.68/72) Når man skal måle forstykkene, måler man fra starten av hele arbeidet eller fra slutten av foten der forstykkene begynner? Har strikket høyre forstykke men synes armen allerede er stor nok, så skjønner ikke hvorfor jeg skal da legge opp til ermer på bakstykket også, da blir jo armen gigantisk. Jeg har målt arbeidet fra der benet slutter og opp til skulder, er da 62cm.
16.05.2023 - 13:17DROPS Design answered:
Hej Isabel, du starter på ærmerne når arb måler 21cm + et par pinde + 30 cm, så ærmegabet måler ca 62-52 = 10 cm hvilket stemmer fint med de mål du kan se i måleskitsen :)
17.05.2023 - 10:23Yani wrote:
Hallo! Ik ben bijna klaar met het eerste pijpje. Ik heb net alle steken erbij gedaan en zit aan 68 steken maar ik meet maar 13 cm en geen 15. Hoe moet ik verder gaan?
21.04.2023 - 13:01DROPS Design answered:
Dag Yani,
Je kunt, voordat je beide pijpen bij elkaar zet, gewoon verder breien met de bestaande steken tot een hoogte van 15 cm.
27.04.2023 - 08:10Yani wrote:
Hallo! Ik ben bijna klaar met het eerste beenje te breien alleen zit ik vast van het meerdere tot 68 steken. Daarna zou je 15cm moeten hebben maar ik heb maar 13cm? Moet ik doorbreien tot 15? Bedankt ;)
20.04.2023 - 17:41DROPS Design answered:
Dag Yani,
Na het meerderen brei je inderdaad door tot je de juiste lengte hebt bereikt.
20.04.2023 - 20:45Yani wrote:
Hallo! Superleuk pake, maar ik heb een vraagje. Hoe meerder je aan de binnenkant van een kantsteek? Dankje
17.04.2023 - 19:48DROPS Design answered:
Dag Yani,
Je meerdert zoals beschreven staat bij 'tip voor het meerderen' en je meerdert vlak naast de kantsteek. Dus tussen de kantsteek en de rest van het breiwerk.
17.04.2023 - 20:45Ingrid wrote:
Hei Strikker str 1-3 mnd. Under høyre forstykke er det beskrevet «NB: Det fortsettes å felle innenfor 1 kantmaske på starten av pinnen som før». Hva er «som før»? Felle på hver 2. eller 4.pinne?
14.02.2023 - 21:17DROPS Design answered:
Hei Ingrid, Det er spørs hvor du er i fellingene. Hvis du ikke er ferdig med å felle 2. hver pinne, fortsetter du å felle 2. hver. Hvis du er ferdig med disse, fortsetter du å felle 4. hver pinne. God fornøyelse!
15.02.2023 - 07:00Eva Reichle wrote:
Betrifft Häkelbordüre, 2. Runde in der Anleitung heisst es :1 Stäbchen in die 4. Luftmasche ab der Nadel, 1 feste Masche + 1 Luftmasche + 1 feste Masche überspringen, Meine Frage: wohin wird die feste Masche nach dem Stäbchen gehäkelt? Leider habe ich dazu keine Hinweis in den FAQ gefunden. Vielen Dank im Voraus für Ihre Antwort.
11.12.2022 - 13:27DROPS Design answered:
Liebe Frau Reichle, die nächste feste Masche nach dem Stächen/Pikot häkeln Sie um die Luftmasche nach dem Stäbchen) =1 feste Masche + 1 Luftmasche + 1 feste Masche überspringen, dann 1 feste Masche um die nächste Luftmasche häklen; Viel Spaß beim häklen!
12.12.2022 - 09:38