White Pearl |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað með gatamynstri, opi í hálsmáli að framan og ¾ langar trompetermar með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-2 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (á við um pils hluta á kjól): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri við prjónamerki og 4 lykkjur færri í umferð). ÚRTAKA-2 (á við um handveg): Fækkið lykkjum innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 3 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-3 (á við um hliðar á ermi): Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um hvora hlið á fram- og bakstykki og ermar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í stykkjum, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman í lokin. Prjónað er gatamynstur á bakstykki alveg eins og á framstykki, en án gataumferðar og opi að framan. Ef ekki er óskað eftir að hafa gatamynstur á bakstykki er prjónað sléttprjón yfir þessar lykkjur. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 109-117-123-133-143-153 lykkjur á hringprjón 4 með Paris. Prjónið A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur (1. umferð er prjónuð frá röngu og 5. umferð í A.1 á við um táknin 2 lykkjur slétt saman er einnig frá röngu. ATH: Síðasta lykkjan í 5. umferð er prjónuð slétt). Skiptið yfir á hringprjón 5 þegar A.1 hefur verið prjónað til loka. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5-5-5-5-6-6 cm setjið 2 prjónamerki í stykkið þannig: Teljið 26-29-31-35-39-43 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, teljið 57-59-61-63-65-67 lykkjur, setjið 1 prjónamerki (nú eru 26-29-31-35-39-43 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! ÚRTAKA VIÐ PRJÓNAMERKI: Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 4 cm millibili alls 12 sinnum = 61-69-75-85-95-105 lykkjur. GATAMYNSTUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 46-47-48-46-47-49 cm byrjar gatamynstur við miðju að framan. Síðasta úrtaka við prjónamerki er eftir í öllum stærðum þegar A.2 byrjar og umferðin er prjónuð þannig: Prjónið 13-17-20-25-30-35 lykkjur í garðaprjóni og sléttprjóni eins og áður, prjónið A.2 (= 39 lykkjur), prjónið síðan þær 13-17-20-25-30-35 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur (munið eftir síðustu úrtöku við prjónamerkin). ÚTAUKNING Í HLIÐUM: Jafnframt þegar stykkið mælist 55-55-55-55-56-56 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKKNING. Aukið svona út með 3-3-3-4-4-4 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 67-75-81-91-101-111 lykkjur. HANDVEGUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 62-63-64-65-66-67 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón á hæðina yfir ystu 6-6-7-9-11-13 lykkjurnar í hvorri hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni og gatamynstri eins og áður). Eftir 4 umferðir garðaprjón í hvorri hlið er fækkað um 3-3-4-6-8-10 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 1-4-5-7-9-11 sinnum. GATAMYNSTUR HELDUR ÁFRAM: Jafnframt þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 alls 1-1-1-2-2-2 sinnum á hæðina yfir sömu 39 lykkjurnar, en í síðustu umferð í síðustu endurtekningu með A.3 (ranga) er felld af miðjulykkjan í umferð fyrir opi mitt að framan og hvor hluti er prjónaður fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: Byrjið frá réttu og prjónið nú eins og áður með 3 kantlykkjur í garðaprjóni að handveg, haldið áfram með úrtöku fyrir handveg ef úrtöku er ekki lokið, prjónið sléttprjón og síðan A.4A yfir ystu 19 lykkjur við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 77-78-79-81-82-84 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu), setjið ystu 7-7-8-8-9-9 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að klippa þráðinn frá eru lykkjurnar prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn. Prjónið áfram og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og síðan 1 lykkju 3 sinnum = 15-16-16-17-17-18 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 82-84-86-88-90-92 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Kjóllinn mælist ca 82-84-86-88-90-92 cm frá öxl og niður. HÆGRA FRAMSTYKKI: Byrjið frá réttu og prjónið þannig: Prjónið A.4B yfir fyrstu 19 lykkjur við miðju að framan, prjónið sléttprjón eins og áður, haldið áfram með úrtöku fyrir handveg ef úrtöku er ekki lokið og haldið áfram með 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg. Þegar stykkið mælist 77-78-79-81-82-84 cm (stillið af að næsta umferð sé frá réttu), setjið ystu 7-7-8-8-9-9 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að þurfa ekki að klippa þráðinn frá eru lykkjurnar prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn. Prjónið áfram og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og síðan 1 lykkju 3 sinnum = 15-16-16-17-17-18 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 82-84-86-88-90-92 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. BAKSTYKKI: Fitjið upp 109-117-123-133-143-153 lykkjur á hringprjón 4 með Paris. Prjónið A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur alveg eins og á framstykki. Skiptið yfir á hringprjón 5 þegar A.1 hefur verið prjónað til loka. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 5-5-5-5-6-6 cm setjið 2 prjónamerki í stykkið þannig: Teljið 26-29-31-35-39-43 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, teljið 57-59-61-63-65-67 lykkjur, setjið 1 prjónamerki (nú eru 26-29-31-35-39-43 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! ÚRTAKA VIÐ PRJÓNAMERKIN: Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 4 cm millibili alls 12 sinnum = 61-69-75-85-95-105 lykkjur. GATAMYNSTUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 46-47-48-46-47-49 cm byrjar gatamynstur mitt að aftan. Síðasta úrtaka við prjónamerkin er eftir í öllum stærðum þegar A.5A byrjar og umferðin er prjónuð þannig: Prjónið 13-17-20-25-30-35 lykkjur í garðaprjóni og sléttprjóni eins og áður, prjónið A.5A (= 39 lykkjur), prjónið síðan þær 13-17-20-25-30-35 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur (munið eftir síðustu úrtöku við prjónamerkin). ÚTAUKNING Í HLIÐUM: Jafnframt þegar stykkið mælist 55-55-55-55-56-56 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-3-3-4-4-4 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 67-75-81-91-101-111 lykkjur. HANDVEGUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 62-63-64-65-66-67 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón á hæðina yfir ystu 6-6-7-9-11-13 lykkjur í hvorri hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni og gatamynstri eins og áður). Eftir 4 umferðir garðaprjón í hvorri hlið eru felldar af 3-3-4-6-8-10 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 1-4-5-7-9-11 sinnum. GATAMYNSTUR HELDUR ÁFRAM: Jafnframt þegar A.5A hefur verið prjónað til loka, endurtakið A.5B á hæðina yfir sömu 39 lykkjur til loka. HÁLSMÁL: Jafnframt þegar stykkið mælist 80-82-84-86-88-90 cm fellið af miðju 27-27-29-29-31-31 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í gatamynstri þegar fellt er af fyrir hálsmáli eru prjónaðar í sléttprjóni. Fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun á næstu umferð frá hálsi = 15-16-16-17-17-18 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 82-84-86-88-90-92 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina alveg eins. ERMI: Prjónið neðan frá og upp. Fitjið upp 69-71-73-73-75-77 lykkjur á hringprjón 4 með Paris. Prjónið A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (1. umferð er prjónuð frá röngu og 5. umferð í A.1 á við um táknin 2 lykkjur slétt saman einnig frá röngu. ATH: Síðasta lykkjan í 5. umferð er prjónuð slétt). Skiptið yfir á hringprjón 5 þegar A.1 hefur verið prjónað til loka. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ÚRTAKA Í HLIÐUM: Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-3. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 11-11-11-9-9-9 sinnum í hvorri hlið = 47-49-51-55-57-59 lykkjur. GATAMYNSTUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 10 cm er prjónað A.6A yfir miðju 15 lykkjurnar (aðrar lykkjur halda áfram í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður) – teljið frá miðju á stykki hvar mynstrið byrjar. Þegar A.6A hefur verið prjónað til loka, endurtakið A.6B á hæðina yfir sömu 15 lykkjurnar til loka. ÚTAUKNING Í HLIÐUM: Jafnframt þegar stykkið mælist 26-26-26-21-21-21 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 4-5-6-7-8-10 sinnum í hvorri hlið = 55-59-63-69-73-79 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 37-36-36-34-34-33 cm (A.6B heldur áfram mitt á ermi eins og áður). Fellið nú af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3-3-3-4-5-7 sinnum í hvorri hlið. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 43-44-45-45-46-46 cm. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið = 27 lykkjur aftur. Fellið af. Ermin mælist ca 44-45-46-46-47-47 cm ofan frá og niður. Prjónið aðra ermi á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn þannig að það verða 2 umferðir brugðið á móti hvor annarri á öxlum. Saumið hliðarsauma frá handveg og niður – saumið kant í kant í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur. Saumið ermasauma alveg eins. Setjið ermar í undir kant með garðaprjóni meðfram handveg. Saumið fallega niður þannig að kantur með garðaprjóni verði sýnilegur meðfram handveg. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu mitt að framan og prjónið upp ca 74 til 88 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan), á hringprjón 4 með Paris. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (22)
Anna Maria Vocale wrote:
Salve ma nel modello non si capisce bene se è a maglia legaccio ho a maglia rasata?
30.05.2024 - 18:46DROPS Design answered:
Buonasera Anna Maria, il modello è lavorato a maglia rasata. Buon lavoro!
30.05.2024 - 19:56Maggy wrote:
Ich komme mit der Strickschrift 4B nicht zurecht, wie strickt man zwischen 2 Maschen 1 Umschlag?
23.11.2023 - 18:51DROPS Design answered:
Liebe Maggy, stricken Sie einfach 1 Umschlag, z.B. bei der 1. Reihe A.4B stricken Sie: 4 Maschen rechts, 1 Umschlag, 1 Masche wie zum Rechtsstricken abheben, 1 Masche rechts, die abgehobene Masche über die gestrickte ziehen, usw... Viel Spaß beim stricken!
24.11.2023 - 07:40Anette Höhn wrote:
Kann ich Vorder-und Rückteil in Runden bis zum Armausschnitt zusammenstricken oder empfiehlt es sich, die Teile getrennt zu stricken und zusammen zu nähen
18.03.2022 - 11:24DROPS Design answered:
Liebe Frau Höhn, wahrscheinlich können Sie bis zum Armausschnitt in Runden stricken, dann brauchen Sie nur das Muster und die Anleitung so anzupassen. Viel Spaß beim stricken!
18.03.2022 - 15:31Lillian wrote:
Kan jeg ikke strikke denne model kortere som en lang bluse/tunika. Hvilke indtagninger skal evt. springes over. Eller hvad kan jeg gøre ? Tak for jeres dejlige hjemmeside, som jeg bruger meget.
10.04.2021 - 15:54DROPS Design answered:
Hej Lillian, Se måleskitsen nederst i opskriften, så kan du følge længde-målene i den mindste størrelse :)
12.04.2021 - 14:36Isabelle wrote:
Bonjour. Un grd merci pour votre reponse precedente. Votre aide m'a ete precieuse. Pourriez vous m'aider pour l'arrondi des manches. Les instructions disent de rabattre de chaque cote 1x3m, 2x2m et 3x1m. Cela veut dire qu'en tout j'aurai rabattu 20m de maniere symetrique des 2 cotes? ( mais alors je n'arrive pas au 27m finales) Ou bien dois je faire rang 1: 3m; rang 2: 2m; rang 3: 2m; rang 4: 1m; rang 5:1m, rang 6: 1m. D'avance je vous remercie
08.02.2020 - 13:40DROPS Design answered:
Bonjour Isabelle, l'arrondi des manches doit être symétrique effectivement, rabattez bien 2 m de chaque côté jusqu'à ce que la manche mesure 45 cm puis encore 1 x 3 m de chaque côté, la manche doit mesurer 46 cm, la hauteur est ici plus importante que le nombre de mailles restantes, nos stylistes vont vérifier le nombre de mailles indiqué, merci. Bon tricot!
10.02.2020 - 08:12Isabelle wrote:
Bonjour, je suis arrivee au niveau devant gauche. Je me trouve donc avec 29 mailles ( pour une taille L ) apres avoir fait les diminutions pour les emmenchaures. Je dois glisser 8 mailles et en rabattre en tout 7 . Il me reste donc 14 mailles. Or dans les explications il devrait m'en rester 16. Je ne vois pas ou est mon erreur. Si quelqu'un peut m'aider. Un tout grand merci :-)))
22.01.2020 - 08:09DROPS Design answered:
Bonjour Isabelle, je tombe juste sur 16 mailles en L: 123 m pour commencer, 75 m après les diminutions, 81 m après les augmentations, 63 m après les emmanchures (9 m de chaque côté) - 1 m rabattue au milieu = 62 m/2= 31 m pour chaque côté - 8 m en attente - 7 m rabattues pour l'encolure = 16 m. En espérant que ces informations vous aident. Bon tricot!
22.01.2020 - 10:07Crette wrote:
Je ne comprends pas comment faire les emmanchures Je dois faire les 6 premières mailles au point mousse? Metci beaucoup pour votre reponse
19.07.2019 - 22:16DROPS Design answered:
Bonjour! Vous devez tricoter 2 côtes mousse en hauteur au-dessus des 6 mailles (6 mailles de chaque cote sont tricotees endroit par les 4 rangs), ensuite vous commencez a diminuer des mailles de chaque cote de votre ouvrage selon les explications. Bon tricot!
22.07.2019 - 21:33Sonia wrote:
Il numero di maglie del campione è errato: 10 x10 cm. = 17 m. x 22 ferri.
15.04.2019 - 19:58DROPS Design answered:
Buongiorno Sonia. Abbiamo corretto le indicazioni per il campione. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!
16.04.2019 - 09:10Strickoma wrote:
Sind im Diagramm Hin- und Rückreihen oder nur die Hinreihen gezeichnet?
07.04.2019 - 23:26Strickoma answered:
Habe die Antwort gerade selbst gefunden
07.04.2019 - 23:33Sandra wrote:
Es hermoso este modelo, estoy ansiosa de empezarlo lo antes posible. Gracias c compratir Santiago de Chile
18.03.2019 - 03:01