Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= 1 loftlykkja | |
= byrjið hér | |
= 4 loftlykkjur, tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð | |
= 1 keðjulykkja | |
= stuðull í lykkju | |
= stuðull um hringinn/loftlykkjuboga | |
= heklið um þennan hring | |
= 1 fastalykkja með litnum hvítur | |
= 1 fastalykkja með litnum sinnep | |
= 1 fastalykkja með litnum ljós ísblár | |
= 1 fastalykkja með litnum sprey blár |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Sweet Fedora |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður hattur með kanti í marglitu mynstri úr DROPS Paris.
DROPS 190-35 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta stuðli í umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í þriðju loftlykkju í byrjun á umferð. Fyrstu fastalykkju í umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. LITAMYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.4. Mynsturteikning sýnir liti í mynstri. 1 rúða = 1 fastalykkja. LITASKIPTI: Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðustu fastalykkju fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin með nýja litnum, heklið síðan næstu fastalykkju. Með þessu verða falleg skil þegar skipt er um lit. Þegar heklað er með tveimur litum, leggið þráðinn á þeim lit sem ekki er heklað með yfir lykkjurnar frá fyrri umferð og heklið utan um þráðinn þannig að hann sjáist ekki innan í lykkjunum, þráðurinn fylgir þar með áfram hringinn. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Byrjað er með flötum, sporöskjulaga toppi, síðan er heklað niður yfir hattinn (kúluna) áður en heklaður er kantur í marglitu mynstri og að lokum er heklað barð. TOPPUR Á HATTI: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Byrjið við ör mitt í A.1 og heklið með heklunál 3 með litnum hvítur þannig: 4 loftlykkjur, tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, heklið 14 loftlykkjur, heklið 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju frá heklunálinni. Nú hefur verið hekluð ein loftlykkjuröð með lykkju á hvorum enda. Næsta umferð er hekluð þannig: 1 keðjulykkja í fyrstu á 10 loftlykkjum í röðinni, 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli), 1 stuðull í hverja og eina af 9 næstu loftlykkjum, heklið A.2 um lykkjuna (byrjið með 1. umferð í mynsturteikningu), heklið 1 stuðul í hverja af 10 loftlykkjum (þ.e.a.s. á gagnstæðri hlið þar sem heklaðir voru 10 stuðlar í byrjun), heklið A.3 um lykkjuna í hinni hliðinni og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Haldið svona áfram með mynstur þar til heklaðar hafa verið alls 6 umferðir. A.1 til A.3 hefur nú verið heklað til loka og það eru 104 stuðlar í umferð í báðum stærðum. Heklið síðan kant efst í kringum hattinn eins og útskýrt er að neðan. KANTUR EFST Í KRINGUM HATTINN: Heklið 1 stuðul með 1 stuðul í hvern stuðul og 4 stuðla í loftlykkjuboga mitt í A.2 (heklið 1 stuðul bæði í fyrstu og síðustu loftlykkju og 2 stuðlar í miðju loftlykkju), en í þessari umferð er einungis heklað í fremri lykkjubogann (lykkjuboginn sem er næst þér) = 108 stuðlar í umferð. Setjið 1 prjónamerki á milli 2 stuðla mitt í A.2 (= miðja framan á hatti) og látið prjónamerkin fylgja áfram með í stykkinu. Heklið 1 umferð til viðbótar með stuðlum, en nú er hver stuðull heklaður bæði í gegnum stuðul frá fyrri umferð (í gegnum bæði fremri og aftari lykkjubogann) og að auki í gegnum lykkjuliðinn sem er sýnilegur á röngu á stykkinu. Þetta gerir aðeins meiri merktan kant í kringum efsta hluta á hattinum. Heklið síðan kúluna á hattinum eins og útskýrt er að neðan. KÚLA Á HATTI: Heklið stuðla í hring með 1 stuðul í hvern stuðul (heklið í gegnum báða lykkjubogana). JAFNFRAMT í 1. umferð er aukið út um 1 stuðul við miðju að framan með því að hekla 2 stuðla í síðasta stuðul á undan prjónamerki. Aukið svona út alls 4-8 sinnum í S/M: Í annarri hverri umferð og í L/XL: Í hverri umferð = 112-116 stuðlar. ATH: Þegar aukið er út eru heklaðir 2 stuðlar til skiptis í fyrsta stuðul eftir prjónamerkið og síðasta stuðul á undan prjónamerki. Þegar stykkið mælist 6-7 frá kanti efst er heklað LITAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan (= 28-29 mynstureiningar með 4 lykkjum) og lesið LITSKIPTI. ATH: Í 2. og 7. umferð er heklað í aftari lykkjubogann frá fyrri umferð. JAFNFRAMT í síðustu umferð í A.4 er aukið út um 0-4 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur í 1 lykkju) = 112-120 fastalykkjur. Þegar A.4 hefur verið heklað til loka er heklað barð með litnum hvítur eins og útskýrt er að neðan. BARÐ: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 1: * Heklið 1 stuðul í hverja af 7-7 fyrstu fastalykkjum, 2 stuðlar í næstu fastalykkjur *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 126-135 stuðlar. UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul. UMFERÐ 3: * Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 8-8 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 140-150 stuðlar. UMFERÐ 4: * Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 9-9 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 154-165 stuðlar. UMFERÐ 5: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul. UMFERÐ 6: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul = 154-165 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda. Barðið mælist ca 5 cm. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (27)
Eeva wrote:
Hei! Tein hatun kärkiosan ja nyt siirryn yläosan reunukseen. Kun virkkaan seuraavaa pylväskerrosta ottaen koukulle edellisen kerroksen silmukasta etuosan se "raita" jää taakse eli nurjalle puolelle. Onko sen tarkoitus jäädä hatun sisään ja vain tukea reunaa vai virkkaanko silmukan takaosaan jolloin "raita" jää näkyviin? Ystävälllisesti, Eeva
12.06.2024 - 19:59Estrella wrote:
"Trabajar 1 vuelta más de puntos altos, pero ahora trabajar cada punto alto a través del punto alto de la vuelta anterior (a través del bucle del frente y del bucle posterior) y, adicionalmente, a través del bucle del punto visible en el lado revés de la pieza" Qué quiere decir "el bucle del punto visible en el lado revés de la pieza "?
22.10.2023 - 01:55DROPS Design answered:
Hola Estrella, tienes que trabajar en el 3º bucle en el punto que se forma por detrás del punto. Debería sobresalir ligeramente como un pliegue por el lado revés de la labor.
23.10.2023 - 00:24Liisa PF wrote:
Hei! Kysymys 1: Kun lasken piirrosten A1, A2, A3 silmukat yhteen saan 94 pylvässilmukkaa (10+36+48). Ohjeessa lukee, että pitäisi olla 104 pylvästä? Mistä tulee 10 pylvästä lisää? Kysymys 2: Mitä tarkoittaa "työn nurjan puolen silmukkakaari" kohdassa "virkkaa kaikki pylväät sekä edellisen kerroksen pylvääseen että työnnurjan puolen kerroksen silmukkakaareen? Löytyisikö tästä kuvaa / videota?
17.10.2023 - 09:08Susan wrote:
Hallo, ich hab eine Frage zum Rand oben um den Hut, in der Anleitung heißt es „ Noch 1 Runde mit Stäbchen häkeln, jedoch nun jedes Stäbchen in beide Maschenglieder des Stäbchens der Vor-Runde und zusätzlich in das Maschenglied, das auf der Rückseite der Arbeit sichtbar ist, einstechen.“ In welches Maschenglied auf der Rückseite muss ich noch einstechen? In das hintere Maschenglied von der Vorreihe, bei der ich in das vordere Maschenglied eingestochen habe? Vielen Dank
29.06.2023 - 15:21DROPS Design answered:
Liebe Susan, bei der vorrigen Runde haben Sie nur in das vordere Maschenglied gehäkelt jetzt häkeln Sie 1 Stäbchen in die beiden Maschenglieder von dieser vorrigen Runde (= dh wie "normal") aber auch in das hintere Maschenglied, das bei der vorrigen Runde nicht gehäkelt wurde), so bekommen Sie eine kleine "Biese". Viel Spaß beim häkeln!
29.06.2023 - 15:37Karin Sellberg wrote:
Hej! Jag virkar sweet fedora by drops design nr 190-35.Nu har jag helt kört fast och behöver er hjälp!Det stårVirka 1 varv till med stolpar, men nu virkas varje stolpe både genom stolpen från föregående varv (genom både främre och bakre maskbågen) och dessutom genom maskledet som är synligt på avigsidan av arbetet. Detta ger en lite markerad kant runt översta delen på hatten. \r\n\r\nHur gör jag och vad är maskledet? Jag får inte ihop det....
18.06.2023 - 11:07Annika Prisell wrote:
Hej! Kommer detta mönster att bli på en video där du visar hur man virkar denna underbara hatt
25.08.2022 - 20:05DROPS Design answered:
Hei Annika. Vi har ingen planer om å lage en video til denne hatten, men noterer ned ditt ønske på vår liste :) Om du er usikker på noen av teknikkene som er brukt i denne hatten er det flere hjelpevideoer som du kan ta en titt på (se under diagrammene). Om du allerede har begynt å hekle denne hatten, men står fast, send oss et spørsmål med beskrivelse av hva du ikke forstår (og str. du hekler), så skal vi hjelpe deg så godt vi kan. mvh DROPS Design
29.08.2022 - 10:30Porcher wrote:
Bonjour je voudrais faire le modèle drops design 190-35 le chapeau Fedora mais je ne comprends pas le départ ;dessus du chapeau en commençant a la flèche au milieu A1, crocheter 4 ml 1mc dans la 4eme maille en l air ,crocheter 14ml,1mc dans la 4eme ml,mais si je regarde le diamgramme la fleche se trouve au mlieu, tour suiant 1mc dans la 1ere des 10mlalors que au dessus il dise 14ml je ne comprends pas c 'est pour une commande et j aimerais bien le faire merci pour votre réponse nathalie
25.07.2021 - 15:50DROPS Design answered:
Bonjour Mme Porcher, vous commencez par la flèche et le premier rang de mailles en l'air (= à gauche dans A.1) puis vous allez crocheter la chaînette (A.1, où on va faire les brides de chaque côté plus tard) et vous terminez par le rond de mailles en l'air (à droite dans A.1) - votre base est terminée, crochetez maintenant 1 m dans la 1ère des 10 ml (= le v dans le diagramme) puis 3 ml (= 1ère bride) et continuez ainsi: brides en haut de A.1, A.2 autour de la boucle, brides sous la chaînette de A.1, A.3 autour de la boucle, 1 mc dans la 3ème ml de A.1. Bon crochet!
26.07.2021 - 09:01CRISTINA CARDOZO wrote:
Estoy realizando el sombrero, pregunto que puedo hacer para que me quede mas rigido cuando lo termine? Gracias y saludos cordiales
22.06.2021 - 22:14DROPS Design answered:
Hola Cristina, puedes colocar un alambre de acero delgado a lo largo de la orilla del ala. Trabajar 1 punto bajo en cada punto alto en toda la vuelta, trabajando, AL MISMO TIEMPO, alrededor del alambre de acero. Esto se hace para que el sombrero quede más rígido a lo largo de la orilla. Ajustar la longitud del alambre de acuerdo a las medidas deseadas del ala. Retorcer los extremos del alambre de acero juntamente y esconderlos en los puntos. Cortar y asegurar el hilo. Buen trabajo!
23.06.2021 - 12:56VINCENZA wrote:
Buonasera, vorrei sapere se è possibile realizzare questo modello in raffia. Grazie
15.06.2021 - 20:10DROPS Design answered:
Buonasera Vincenza, può realizzarlo con il filato che desidera, tenendo conto della corrispondenza del campione. Buon lavoro!
15.06.2021 - 21:41Ildikó wrote:
Kedves Drops Design! Ha ki akarom váltani az A.4 jelű mintát és csak színnel horgolom, akkor elég 50 g C fonal vagy többre lesz szükségem? Köszönöm a segítséget.
30.03.2021 - 15:47DROPS Design answered:
Kedves Ildikó! nagy valószínűséggel elég lesz 50 grammal több fonal, de a felhasznált fonalmennyiség is több tényezőtől függ, pl. attól, mennyire horgol szorosan. Ha biztosra akar menni, 2 plusz gombolyagot szerezzen be, a maradékból mindig lehet valami apróságot készíteni :-). Sikeres kézimunkázást kívánok!
30.03.2021 - 19:50