Summer Treasure |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð taska með röndum, hekluð í hring frá miðju og út úr DROPS Paris.
DROPS 186-10 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (A.2 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar). LITAMYNSTUR: Þegar skipt er um lit í byrjun á umferð er keðjulykkjan í lok fyrri umferðar hekluð með nýja litnum. Þegar heklað er með tveimur litum í einni umferð er heklað þannig: Heklið síðasta stuðulinn með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin með nýja litnum, heklið síðan næsta stuðul. Þegar heklað er með tveimur litum í einni umferð (þegar heklað er í hring), leggið þráðinn á þeim lit sem ekki er heklað með yfir lykkjurnar frá fyrri umferð og heklið utan um þráðinn þannig að hann sjáist ekki innan í lykkjunum, þráðurinn fylgir þar með áfram hringinn. RENDUR (hringur): Uppfit + UMFERÐ 1: apríkósa UMFERÐ 2: kórall UMFERÐ 3: natur UMFERÐ 4: kórall UMFERÐ 5: apríkósa UMFERÐ 6: skærbleikur UMFERÐ 7: púðurbleikur UMFERÐ 8: bleikvínrauður UMFERÐ 9: dökk þveginn UMFERÐ 10: sinnep UMFERÐ 11: apríkósa UMFERÐ 12: dökk þveginn UMFEÐR 13: * 1 stuðull með dökk þveginn, 1 stuðull með natur *, heklið frá *-* hringinn alla umferðina. UMFERÐ 14: spray blár ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá miðju og út. Heklaðir eru 2 hringir, síðan er hlið á töskunni hekluð fram og til baka. Að lokum er hliðin og hringirnir heklað saman. HRINGUR: Heklið 6 loftlykkjur með heklunál 3,5 og litnum apríkósa Paris og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Heklið RENDUR (hringur) og LITAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan og mynstur A.1 alls 6 sinnum hringinn í umferð (A.2 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Í 7. og 9. umferð er heklað þannig: UMFERÐ 7: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hvorn af fyrstu 2 stuðlum, 1 FJÓRBRUGÐINN STUÐULL – sjá útskýringu í mynsturteikningu – í kringum SÍÐUSTU fastalykkju frá 4. umferð, 1 fastalykkja í hvern af næstu 5 stuðlum, 1 fjórbruðinn stuðull í kringum fyrstu fastalykkju frá 4. umferð, * 1 fastalykkja í hvern af næstu 5 stuðlum, 1 fjórbrugðinn stuðull í kringum sömu fastalykkju eins og fyrri fjórbrugðnu stuðlum, 1 fastalykkja í hvern af næstu 5 stuðlum, heklið 1 fjórbrugðinn stuðul í kringum næstu fastalykkju frá 4. umferð, * heklið frá *-* alls 4 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hvern af næstu 5 stuðlum, 1 fjórbrugðinn stuðull í kringum sömu fastalykkju eins og fyrri fjórbrugðnu stuðlum, 1 fastalykkja í hvern af næstu 5 stuðlum, 1 fjórbrugðinn stuðull í kringum sömu fastalykkju og FYRSTI fjórbrugðni stuðull í umferð, 1 fastalykkja í hvern af næstu 3 stuðlum, endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð = 12 fjórbrugðnir stuðlar og 5 fastalykkjur á milli hverra. UMFERÐ 9: Heklið 1 loftlykkju, * 1 fastalykkja í hvern af fyrstu/næstu 14 stuðlum, 2 ÞRÍBRUGÐNIR STUÐLAR SAMAN – sjá mynsturteikningu *, heklið frá *-* alls 6 sinnum (síðasti þríbrugðni stuðull er heklaður í kringum fyrsta fjórbrugðna stuðul í umferð), endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð = 6 þríbrugðnir stuðlar saman og 14 fastalykkjur á milli þar sem heklað er saman. Þegar öll mynsturteikning A.1 og A.2 hefur verið hekluð saman eru 120 fastalykkjur í umferð og stykkið mælist ca 20 cm að þvermáli. Klippið frá og festið enda. Heklið 1 hring til viðbótar alveg eins. HLIÐ Á TÖSKU: Heklið 78 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum spray blár Paris. Loftlykkjuumferð á að mælast 43 cm. Heklið síðan rendur og mynstur þannig: UMFERÐ 1: Heklið með litnum spray blár: 1 loftlykkja til að snúa við með, heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju (= 78 fastalykkjur + 1 loftlykkja). UMFERÐ 2: Heklið með litnum dökkur þveginn: 1 loftlykkja til að snúa við með, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. UMFERÐ 3: Heklið með litnum bleikvínrauður: 3 loftlykkjur til að snúa við með, heklið 1 stuðul í næstu fastalykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, * heklið 1 stuðul með litnum sinnep í næstu fastalykkju, 1 stuðull með litnum bleikvínrauður í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* þar til eftir eru 2 fastalykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn sinnep og heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 stuðull í síðustu fastalykkju. Síðar á að þræða tvinnuðu snúruna í gegnum götin í hvorri hlið. UMFERÐ 4: Heklið með litnum bleikvínrauður: 3 loftlykkjur til að snúa við með, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 loftlykkju, * heklið 1 stuðul með litnum sinnep í næsta stuðul, 1 stuðull með litnum bleikvínrauður í næsta stuðul *, heklið frá *-* fram að næstu loftlykkju í umferð. Skiptið yfir í litinn sinnep og heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í síðasta stuðul. Síðar á að þræða tvinnuðu snúruna í gegnum götin í hvorri hlið. UMFERÐ 5: Heklið með litnum dökkur þveginn: 1 loftlykkja til að snúa við með, 1 fastalykkja í hverja lykkju (heklið 1 fastalykkju um 2 loftlykkjur í umferð). UMFERÐ 6: Heklið með litnum spray blár: 1 loftlykkja til að snúa við með, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju. Klippið frá. Heklið meðfram annarri skammhliðinni með litnum spray blár frá réttu þannig: Festið enda með 1 fastalykkju, heklið 3 loftlykkjur, heklið 7 stuðla meðfram kanti. Heklið alveg eins meðfram hinni skammhliðinni. Klippið frá og festið enda. HEKLAÐ SAMAN: Þegar heklað er saman er það gert með litnum spray blár. Heklið nú stykkin saman í gegnum bæði lögin í síðustu umferð á hringnum og síðustu umferð í hlið á tösku. Leggið 2 stykkin með rönguna að hvorri annarri. Heklið frá réttu og byrjið í hringnum sem snýr að þér: * Heklið 1 fastalykkju í fyrust/næstu fastalykkju í hringinn og í hlið í ysta stuðul (sem var heklaður á öðrum enda í hlið á töskunni) *, heklið frá *-* alls 3 sinnum (þ.e.a.s. heklaðar hafa verið 3 fastalykkjur um sama stuðul og 1 fastalykkja í fyrstu af 3 fastalykkjum á hringnum), heklið síðan 1 fastalykkju í næstu fastalykkju í hringnum og fyrstu/næsta fastalykkju í hlið á tösku. Heklið svona fram og til baka í næsta stuðul í hinni hliðinni á töskunni. * Heklið 1 fastalykkju í næstu fastalykkju í hringnum og um hlið á ysta stuðul (sem var heklaður á hinum endanum á hlið á tösku) *, heklið frá *-* alls 3 sinnum (þ.e.a.s. það hafa verið heklaðar 3 fastalykkjur um sama stuðul og 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum á hringnum). Nú hafa allar lykkjur verið heklaðar meðfram hlið á tösku og nú eru eftir 36 fastalykkjur í hringinn. Haldið síðan áfram með 1 fastalykkju í hverja af þeim 36 fastalykkjum sem eftir eru í hringnum. Klippið frá og festið enda. Heklið nú hinn hringinn á töskunni alveg eins, nema nú er heklað í fyrstu loftlykkjuumferð sem var hekluð í hlið á tösku. ATH. Passið uppá að 2 hringirnir séu staðsettir samhverft miðað við hvorn annan, þannig að mynstrið verði alveg eins í báðum hliðum á töskunni. TVINNUÐ SNÚRA OG SKÚFAR: Klippið 4 þræði ca 2 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Gerið 3 tvinnaðar snúrur til viðbótar = 4 tvinnaðar snúrur. Þræðið 2 snúrur frá ytri hlið á tösku og í gegnum eitt af götum á annarri hlið á töskunni. Hnýtið stóran hnút til að festa snúrurnar á innanverðri töskunni. Endurtakið í hinni hliðinni og festið 2 síðustu tvinnuðu þræðina alveg eins í hinum tveimur götunum. Gerið 1 stóran og þykkan skúf í litnum skær bleikur og annan stóran skúf í litnum bleikvínrauður. Klippið 60 þræði ca 18 cm langa, hnýtið einn þráð (ca 20 cm langan) um miðjuna og leggið alla þræðina saman tvöfalda við hnútinn, vefjið með nýjum þræði (ca 20 cm langan) 3 sinnum utan um alla þræðina ca 2 cm niður frá miðju. Hnýtið þráðinn og stingið þræðinum með niður í skúfinn, klippið frá. Heklið með 2 þráðum þannig: Festið 2 þræði með fastalykkju um þráðinn á toppnum á skúfnum, heklið loftlykkjur í 6 cm. Klippið frá. Gerið hinn skúfinn alveg eins. Festið skúfana í aðra hlið á töskunni með því að þræða hekluðu loftlykkjuumferðina í gegnum töskuna og hnýtið hnút. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (32)
Dolfin wrote:
Bonjour, J'ai fait l'échantillon et j'obtiens toujours plus que 10 cm, même avec un crochet 3 je suis à 12,5 cm de large... je ne comprends pas pourquoi j'ai autant d'écart. Pouvez-vous m'aider parce que du coup mon sac va être, encore une fois, trop grand.
11.11.2023 - 18:10DROPS Design answered:
Bonjour Mme Dolfin, essayez avec un crochet 2,5 et/ou bien essayez de resserrer vos mailles un peu plus, on a toutes une façon différente de crocheter, mais si vous n'avez pas l'échantillon, vous ne pourrez pas avoir les bonnes mesures finales, et votre sac sera toujours trop grand (pensez à vérifier la hauteur aussi, essayez de "tirer" un peu moins vos brides en hauteur si c'est un problème). Bon crochet!
13.11.2023 - 07:44Dolfin wrote:
Bonjour, J'utilise la même laine et le même crochet qu'indiqués et mon cercle fait 26cm et non pas 20, cela me semble un gros écart. Le sac fait-il vraiment 20 cm ? Mon échantillon est bon. Merci pour votre réponse.
15.09.2023 - 07:46DROPS Design answered:
Bonjour Mme Dolfin, aviez-vous bien le bon échantillon? Vous devez avoir 18 brides en largeur et 10,5 rangs de brides en hauteur pour 10 x 10 cm - pensez à bien resserrer vos mailles en hauteur ou essayez de moins les étirer si besoin. Bon crochet!
15.09.2023 - 08:32Loretta wrote:
Buongiorno volevo chiedere se le prime tre catenelle sostituiscono la prima magia alta e una catenella sostituisce la prima maglia bassa dei giri.grazie
06.06.2023 - 22:45DROPS Design answered:
Buongiorno Loretta, se necessario, queste indicazioni vengono riportate direttamente nelle spiegazioni. Buon lavoro!
07.06.2023 - 08:23Loretta wrote:
Buongiorno non capisco il giro 4 dove devo lavorare le 5 maglie nel punto basso segnalato nel rigo 2 o attorno alle catenelle del rigo 3 e allora perché ho messo un segnapunti nel rigo 2. Grazie
05.06.2023 - 16:39DROPS Design answered:
Buongiorno Loretta, nel giro 3 deve lavorare 5 maglie nella magliadel giro precedente; il segnapunti al giro 2 serve ad indicare dove lavorare il simbolo a "rombo" del giro 4. Buon lavoro!
07.06.2023 - 08:32Marie wrote:
Merci pour tous ces tutos très bien expliqués, votre site est une mine d'or. Jusqu'ici je suis parvenue à venir à bout de toutes les difficultés mais j'ai un problème avec le rang 7 du côté du sac. Si je suis les explications écrites, il ne me reste que 2 mailles serrées à la fin du rang et non 3. Si on compte la 1ere en l'air au début, ne faut-il pas faire 1 seule maille serrée et non 2 avant la 1ere quadruple bride ?
03.06.2022 - 19:01DROPS Design answered:
Bonjour Marie, le 7ème tour est le même que celui dessiné dans le diagramme; chaque diagramme à répéter commence par 2 mailles serrées et se termine par 3 mailles serrées, autrement dit, vous devez toujours avoir 5 mailles serrées entre les quadruples brides: 2 ms au début du tour, 5 ms entre chaque et 3 ms à la fin du tour, avant la maille coulée. Peut-être que ce rang sur le diagramme pourra mieux vous aider? Bonne continuation!
07.06.2022 - 08:07Anna Maria wrote:
Non capisco bene il giro 4.ho capito che devo fare 5 punti alti nella m. bassa segnata nel secondo giro, ma cosa significa anche di lavorare attorno alla catenella del terzo giro? Grazie
21.12.2021 - 16:09DROPS Design answered:
Buonasera Anna Maria, in quel punto deve lavorare ATTORNO alla maglia e non NELLA maglia. Buon lavoro!
05.03.2022 - 22:22Luna wrote:
Ik kan het patroon niet meer vinden van de tas, hoe moet ik dit nu doen?
16.03.2021 - 07:51DROPS Design answered:
Je kunt het patroon uitprinten met de knop 'Afdrukken' onderaan de materialenlijst. (p.s.: Vorige week was er een probleem met het laden van afbeeldingen op de site, wellicht was dat de reden dat je het patroon even niet kon vinden...)
22.03.2021 - 20:58Sara wrote:
Scusatemi, ho capito come fare. Non occorre rispondere alla mia domanda precedente. Grazie
03.01.2021 - 10:13Sara wrote:
Non capisco il giro 4: in particolare, nella descrizione dice di lavorare le varie maglie nella maglia indicata nel secondo giro (capisco di lavorare le 5 maglie indicate tutte in questa maglia del secondo giro) , ma poi dice anche di lavorare attorno alla catenella del terzo giro: cosa vuol dire in termini pratici? Cosa devo lavorare attorno alla catenella del terzo giro? Grazie.
03.01.2021 - 08:30Anke wrote:
Die Kordel sind fertig und von der Aussenseite gefädelt und verknotet. Aber was mache ich mit den anderen Ende der Kordel,werden diese auch verknotet?
25.11.2020 - 21:14DROPS Design answered:
Liebe Anke, die Anleitung wurde soeben etwas umformuliert, um es deutlicher zu machen, wie die Kordeln befestigt werden. Sie haben ja pro Seite 2 Löcher. Es werden jeweils 2 Kordeln pro Loch von außen nach innen durchgefädelt und auf der Innenseite verknotet. Das machen Sie an beiden Seiten der Tasche. Viel Spaß mit dieser schönen Tasche!
27.11.2020 - 09:02