Butterfly Queen |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð ferningspeysa með gatamynstri úr DROPS Flora. Stærð S - XXXL.
DROPS 186-11 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. HEKLLEIÐBEININGAR (á við um A.4): Fyrsta fastalykkja í byrjun á umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju. Fyrsti þríbrugðni stuðull í byrjun á umferð er skipt út fyrir 5 loftlykkjur. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Heklið 5 loftlykkjur, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkjubogi, heklið 1 fastalykkju um næsta loftlykkjuboga + 1 loftlykkjuboga (= 1 mynstureining færri), haldið áfram með mynstur eins og áður þar til eftir er 1 loftlykkjubogi + 1 fastalykkja frá fyrri umferð, hoppið yfir þessar lykkjur og endið með 1 tvíbrugðinn stuðul í fyrstu loftlykkju í byrjun á fyrri umferð (= 1 mynstureining færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá miðju aftan á baki og út eins og ferningur, síðan er heklað áfram fram og til baka á framstykki. Ermar eru heklaðar fram og til baka út frá fram- og bakstykki, síðan er saumað saman undir ermum. PEYSA: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Flora og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1b alls 4 sinnum í umferð – mynsturteikning A.1a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.1b. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar öll mynsturteikning A.1a og A.1b er lokið er klippt frá og næsta umferð byrjar umloftlykkjuboga á milli síðustu stuðlahópa sem voru heklaðir og þráðurinn er festur með 1 keðjulykkju í þennan loftlykkjuboga. Heklið nú áfram hringinn eftir mynsturteikningu A.2 þannig: * Heklið A.2b, endurtakið A.2c alls 6 sinnum á breidd, A.2d *, heklið frá *-* alls 4 sinnum í umferð – mynsturteikning A.2a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.2b/c/d. Þegar öll mynsturteikning A.2a og A.2b hefur verið hekluð til loka mælist ferningurinn ca 36 x 36 cm. Nú eru 4 horn loftlykkjubogar (1 stuðull + 6 loftlykkjur + 1 stuðull) og 14 loftlykkjubogar meðfram hvorri hlið á ferning. LESIÐ ALLAN KAFLANN Á FRAM- OG BAKSTYKKI ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM! Heklið nú þannig: * Heklið A.3b um hornboga, endurtakið A.3c þar til eftir er 1 loftlykkjubogi á undan horni, heklið A.3d um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* alls 4 sinnum í umferð – mynsturteikning A.3a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.3b/c/d. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm x 36-38-40-42-44-46 cm er heklaður handvegur þannig: Heklið A.3 eins og áður fram að fyrsta horni, heklið um loftlykkjuboga í horni eins og áður. Nú eru heklaðar loftlykkjur fram að miðju á næstu hlið (þ.e.a.s. mitt á milli fyrsta og annars horns) þannig: Heklið 1 loftlykkju fyrir hverja loftlykkju/fastalykkju sem hoppað er yfir. Síðan er mynstur heklað eins og áður fram að miðju á milli 3. og 4. horns. Nú eru heklaðar loftlykkjur fram að 4. horni þannig: Heklið 1 loftlykkju fyrir hverja loftlykkju/fastalykkju sem hoppað var yfir, heklið um loftlykkjuboga í horni og síðan út umferðina eins og áður. Í næstu umferð er heklað A.3 eins og áður aftur yfir allar lykkjur og síðan út umferðina eins og áður (þ.e.a.s. að mynstrið passi yfir handveg þannig að umferðin verði rétt). Haldið áfram með A.3 hringinn (endurtakið 9 umferð á hæðina) þar til ferningur mælist 68-70-72-74-76-78 cm x 68-70-72-74-76-78 cm (þ.e.a.s. ca 16 cm frá handveg í öllum stærðum) – passið uppá að endað sé eftir umferð með stuðlahópum. Klippið frá og setjið 1 prjónamerki í stykkið (á milli fyrsta og annars horns). FRAMSTYKKI: Heklað er fram og til baka á milli fyrsta og annars horns. ATH! Framstykkin eru hekluð án útaukningar. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið A.4a um hornið, endurtakið A.4b þar til eftir er 1 loftlykkjubogi á undan horni, heklið A.4c um þennan loftlykkjuboga og um hornið. Haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu og endurtakið A.4 á hæðina þar til umferð með stuðlahópum hefur verið hekluð alls 2 sinnum á hæðina, síðan eru einungis endurteknar umferðir með loftlykkjubogum þar til stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm frá prjónamerki, heklið síðan umferðir með stuðlahópum 1 sinni í öllum stærðum. Stykkið mælist ca 21-22-23-24-25-26 cm frá prjónamerki. Klippið frá og festið enda. Heklið alveg eins í hinni hlið á stykki (þ.e.a.s. heklið fram og til baka á milli þriðja og fjórða horns. ERMI: Ermin er hekluð beint út frá handveg á fram- og bakstykki. Heklað er fram og til baka, ofan frá og niður og saumað saman í lokin. Byrjið mitt undir ermi og heklið þannig: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið A.4a um fyrsta loftlykkjubogann, endurtakið A.4b alls 15-16-17-18-19-20 sinnum á breidd (stillið af að það verði jöfn skipting á A.4b meðfram handveg, þ.e.a.s. það verður annað hvort að hekla 2 loftlykkjuboga um sama loftlykkjuboga eða hoppa yfir 1 loftlykkjuboga), heklið A.4c um síðustu 2 loftlykkjubogana. Haldið áfram með A.4 fram og til baka – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm (stillið af að næsta umferð sé hekluð með loftlykkjum/fastalykkjum) fækkið um 1 mynstureiningu á hvorri hlið – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 8-8-8-6-6-6 cm millibili alls 3-3-3-4-4-4 sinnum = 12-13-14-15-16-17 loftlykkjubogar með 6 loftlykkjum eftir síðustu úrtöku. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 28 cm í öllum stærðum – endið eftir eina umferð með loftlykkjubogum. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina alveg eins í hinni hliðinni á stykki. FRÁGANGUR: Saumið saman sauma undir ermum, saumið í ystu lykkju og passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (85)
Sunny wrote:
I\'m wondering, is this pattern considered easy, intermediate or difficult
02.04.2024 - 16:41DROPS Design answered:
Dear Sunny, I would not call it easy, as you would need to be able to follow a diagram, and do several different stitches/stitch combinations to do teh back-pattern. However, once you got through the center-back motif, there isn't much shaping, so probably I would call this an intermediate piece. Happy Crafting!
02.04.2024 - 23:52Ann Gentleman wrote:
I really want to make the Butterfly Queen jacket but despite trying to understand the schematic drawing I cannot see how to start and finish each row. This needs its own video, so if you can't supply this, please tell me if you know of anyone who has succeeded with this pattern, apart from the scientific person who devised the chart. I'm really upset that this is so difficult and I'm not a beginner!
23.08.2023 - 14:17DROPS Design answered:
Dar Mrs Gentleman, the beginning of rounds are explained in the diagram, for ex. work A.1 a (see matching symbol for each round), beginning with 4 chains on first round, and on 2nd round (2 different symbols) and finishing with 1slip stitch in the 3th chain from beg of round. You can also find some finished projects on Ravelry. Happy crocheting!
23.08.2023 - 16:38Miranda wrote:
Ich habe die Jacke gestern das erste Mal ausgeführt und viel Lob kassiert. Danke für das schöne Muster wenn es auch recht kompliziert ist.
21.08.2023 - 09:58Daniela wrote:
In lingua italiana c'è un errore nella legenda, il ventaglietto nero non è "4 cat., 3 m.alte" ma "3 maglie alte,4 cat.,3 m.alte” come nelle altre lingue
29.06.2023 - 13:11DROPS Design answered:
Buonasera Daniela, abbiamo corretto la legenda. Buon lavoro!
06.07.2023 - 16:52Connie Bach wrote:
Desuden er der et tegn ^ som jeg ingen forklaring finder på ! Det tegn < er jo ikke det samme
11.04.2023 - 15:49Connie Bach wrote:
Nederst i opskriften ? Små videoer der er urelevante i denne opskrift ! Jeg finder intet der fortæller om hvordan man skal gøre Intet på YouTube feks. ?
11.04.2023 - 15:46DROPS Design answered:
Hej Connie, < tegnet betyder 3 luftmasker uanset hvordan det vender. Vi skriver en video på ønskelisten og håber at vi kan få den lagt ud så hurtigt som muligt :)
13.04.2023 - 12:00Connie Bach wrote:
Mega svær at følge den her opskrift ! Findes der dog ikke en video et sted, hvor man lige kan få lidt hjælp ? Diagrammerne er jo totalt uforståelige og runderne virker forkerte !
11.04.2023 - 13:03DROPS Design answered:
Hej Connie, jo vi har en video, du finder den nederst i opskriften, her kan du helt sikkert se hvordan det skal se ud :)
11.04.2023 - 15:33Irene wrote:
Just to let you know, I can confirm that I made a mistake when working the pattern and now understand where I have gone wrong. There is no need for you to respond but I thank you for all the lovely patterns produced. Many thanks
12.02.2023 - 18:33Irene wrote:
Hello, I have completed the butterfly up to the end of diagram 2 A2b/c/d, but my work is not lying flat when I lay it on a flat surface, it is forming a dish shape. /will this correct itself as I proceed or have I done something wrong please.
12.02.2023 - 17:33DROPS Design answered:
Dear Irene, if the center is higher or risen compared to the rest of the garment when laying flat, then there is an issue with gauge; the center was worked more tightly than the rest of the garment. You could try to correct this by blocking the garment (wet it slightly, and let it dry and block it). Happy crocheting!
13.02.2023 - 00:27Irene wrote:
Hello, I have completed the butterfly up to the end of diagram 2 A2b/c/d, but my work is not lying flat when I lay it on a flat surface, it is forming a dish shape. /will this correct itself as I proceed or have I done something wrong please.
12.02.2023 - 17:31DROPS Design answered:
Dear Irene, if the center is higher or risen compared to the rest of the garment when laying flat, then there is an issue with gauge; the center was worked more tightly than the rest of the garment. You could try to correct this by blocking the garment (wet it slightly, and let it dry and block it). Happy crocheting!
13.02.2023 - 00:27