Seiland Jumper |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Peysu fyrir börn með hringlaga berustykki og marglitu norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður. Húfum með marglitu norrænu mynstri og dúsk. Stærð 2-12 ára. Settið er prjónað úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS Children 30-5 |
|||||||||||||||||||
UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: MYNSTUR: Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Húfa: Sjá mynsturteikningu A.7. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 14. Í þessu dæmi er prjónuð 13. og 14. hver lykkja slétt saman ef fækka á lykkjum. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 14. hverri lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn inn í mynstur svo að ekki myndist gat. UPPHÆKKUN: Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu með norðursjó og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 7-7-8-8-9-9 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 14-14-16-16-18-18 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 21-21-24-24-27-27 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 28-28-32-32-36-36 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 35-35-40-40-45-45 sléttar lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið 42-42-48-48-54-54 brugðið lykkjur. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því. LEIÐBEININGAR-2 (á við um berustykki á peysu): Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og það verða fleiri umferðir á hæðina en 10 cm eins og gefið er upp í uppskrift, þá verður berustykkið allt of stutt og handvegur of lítill. Þetta er hægt að jafna til með því að prjóna 1 auka umferð í sléttprjóni með jöfnu millibili í einlitu einingunni á berustykki. ÚRTAKA-1 (á við um miðju undir ermi): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (á við um húfu): Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ---------------------------------------------------------- PEYSA: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Byrjun umferðar = miðja að aftan. HÁLSMÁL: Fitjið upp 84-88-88-96-96-100 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með norðursjór. Prjónið eina umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-4-4-6-6-4 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 78-84-84-90-90-96 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka eru 0-0-2-3-0-2 sléttar umferðir með norðursjór. Lesið LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2! Prjónið síðan A.1 hringinn (= 13-14-14-15-15-16 mynstureiningar með 6 lykkjum). Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð merktri með ör-1 í A.1 eru 117-126-126-135-135-144 lykkjur í umferð. Prjónið umferð eins og mynsturteikning sýnir og aukið JAFNFRAMT út 18 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 135-144-144-153-153-162 lykkjur. Haldið áfram með A.1 (nú er pláss fyrir 15-16-16-17-17-18 mynstureiningar með 9 lykkjum). Í umferð merktri með ör-2 í A.1 er aukið út um 21-24-24-27-27-30 lykkjur jafnt yfir = 156-168-168-180-180-192 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er A.2 prjónað hringinn (= 13-14-14-15-15-16 mynstureiningar með 12 lykkjum). Haldið áfram með A.2 og aukið út eins og mynsturteikning sýnir. Í umferð merktri með ör-3 í A.2 eru 208-224-224-240-240-256 lykkjur. Prjónið umferð eins og mynsturteikning sýnir og aukið jafnframt út um 4-0-12-0-12-8 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð = 212-224-236-240-252-264 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er A.3 prjónað hringinn (= 53-56-59-60-63-66 mynstureiningar með 4 lykkjum). Eftir A.3 mælist stykkið ca 17-17-18-19-20-21 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð með ljós beige þannig: Prjónið 31-33-35-36-38-40 lykkjur í sléttprjóni (= ½ bakstykki), setjið næstu 45-47-49-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 61-65-69-71-75-79 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 45-47-49-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 30-32-34-35-37-39 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (=½ bakstykki). Klippið frá þráðinn sem prjónað er með. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 134-142-150-158-166-174 lykkjur. Byrjið í annarri hlið á stykki, mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Prjónið A:4 hringinn og aukið jafnframt út um 2 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 136-144-152-160-168-176 lykkjur í umferð og 17-18-19-20-21-22 mynstureiningar með 8 lykkjum. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er A.5 prjónað hringinn = 17-18-19-20-21-22 mynstureiningar með 8 lykkjum). Endurtakið A.5 þar til stykkið mælist ca 13-17-20-23-26-29 cm frá skiptingu – stillið af að prjónaðar séu 2-4 umferðir með skógargrænn eftir umferð með “doppum". Prjónið A.6 hringinn (= 34-36-38-40-42-44 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 17-21-24-27-30-33 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt með skógargrænn þar sem aukið er út um 24-28-28-32-32-32 lykkjur jafnt yfir = 160-172-180-192-200-208 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju JAFNFRAMT því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 38-42-46-50-54-58 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 45-47-49-49-51-53 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 51-53-55-57-59-61 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi og 1 prjónamerki í miðju lykkju í umferð (= mitt ofan á ermi). Lesið allan kaflann áður en prjónað er áfram! Byrjið við prjónamerki mitt undir ermi og prjónið A.4 hringinn, en athugið að mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í heilli mynstureiningu mitt undir ermi. Byrjið með 3.-2.-1.-8.-7.-6. lykkju í A.4 og endurtakið A.4 hringinn eins langt og það nær. Mynstrið verður samhverft mitt undir ermi og lykkjan með prjónamerki í mitt ofan á ermi á nú að passa við 4. lykkju í A.4. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er A.5 prjónað hringinn, en stillið mynstrið af þannig að A.5 passi fallega yfir A.4 (lykkja með prjónamerki á að passa við staðsetningu með «doppu»). A.5 er síðan endurtekið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 3-3-5-5-7-6 cm millibili alls 5-6-5-6-5-6 sinnum = 41-41-45-45-49-49 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 12-16-20-24-28-31 cm frá skiptingu – stillið af að prjónaðar verði 2-4 umferðir með skógargrænn eftir eina umferð með ”doppur”, prjónið A.6 hringinn – byrjið umferð þannig að mynstrið passi fallega yfir doppurnar í A.5. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka er skipt yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt með skógargrænn þar sem fækkað er um 1 lykkju í öllum stærðum = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverri lykkju JAFNFRAMT því sem fellt er af. Ermin mælist ca 20-24-28-32-36-39 cm frá skiptingu undir ermi. Prjónið aðra ermi alveg eins. ---------------------------------------------------------- HÚFA: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Fitjið upp 104-112-112-120 lykkjur á hringprjón 2,5 með skógargrænn. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 96-104-104-112 lykkjur. Prjónið A.7 hringinn (= 12-13-13-14 mynstureiningar með 8 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka er prjónað í sléttprjóni með ljós beige til loka. Þegar stykkið mælist 15-16-17-17 cm eru sett 8 prjónamerki í stykkið með 12-13-13-14 lykkjur á milli hverra prjónamerkja. Í næstu umferð er lykkjum fækkað á eftir hverju prjónamerki – lesið ÚRTAKA-2 (= 8 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6-7-7-8 sinnum = 48 lykkjur eftir í umferð í öllum stærðum. * Prjónið 1 umferð slétt, í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 * = 24 lykkjur. Prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 12 lykkjur eftir í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 20-21-22-23 cm ofan frá og niður. DÚSKUR: Gerið einn dúsk með skógargrænn ca 4-5 cm að þvermáli og festið efst á húfu. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (38)
Eelke Keessen-Storm wrote:
Ik brei maat 9/10 jaar. In A2 heb ik bij pijl 3 de gevraagde 240 steken. Dan moet ik verder breien in het telpatroon en 12 steken meerderen. Nu klopt het telpatroon niet meer! Ik wil de punt precies boven de ster houden en dan heb ik 12 x een tussenruimte van 8 st ipv de gevraagde 7 st.
07.12.2023 - 22:14DROPS Design answered:
Dag Eelke,
Door het meerderen krijg je inderdaad de punt niet precies boven de ster. Het is niet zo dat het patroon dan niet klopt, maar dit hoort gewoon zo. Je zou dan een ander telpatroon moeten maken als je de punt boven de ster wilt hebben.
10.12.2023 - 16:32Marie wrote:
Ich habe eine Frage zum Ärmel - wenn ich erst 2cm stricke und dann alle 7 cm noch 5mal abnehme, komme ich auf 37cm ab der Teilung... Wenn ich insgesamt nur 5mal annehme komme ich auf 30 cm , aber nie auf 28cm ab der Teilung?! Stimmt da etwas in der Anleitung nicht oder was verstehe ich hier falsch?
29.10.2023 - 16:22DROPS Design answered:
Liebe Marie, Sie sind ja richtig, die letzte Abnahmen stricken Sie nach 30 cm, aber wenn die Ärmel 28 cm misst stricken Sie A.6 dh die letzte Abnahme strickt man in A.6, nach A.6 stricken Sie dann 4 cm Bündchen, so misst die Ärmel 36 cm. Viel Spaß beim stricken!
30.10.2023 - 16:40Gudrun Winkler wrote:
Was bedeutet "Läusemuster"? Oder "nach einer Laus"?
10.02.2023 - 17:34DROPS Design answered:
Liebe Frau Winkler, dies betrifft das Muster mit 1 Masche hellbeige und die anderen Maschen waldgrünn wie im A.5 oder bei den oberen Reihen in A.7 (1 Masche waldgrünn und die anderen 7 Maschen hellbeige). Viel Spaß beim stricken!
13.02.2023 - 08:48Allegra wrote:
Hi, the chart for the yoke pattern is no longer visible in this pattern. I’m halfway through the chart but can’t seem to find it here anymore! Help?! Thank you for such a beautiful pattern! Allegra
25.10.2022 - 01:08DROPS Design answered:
Hi Allegra, All the charts are at the bottom of the pattern. Happy knitting!
25.10.2022 - 06:58Sabrina Schmidt wrote:
Hallo. Ich stricke gerade den ersten Ârmel, Grösse 3/4. Ich beginne bei A.4 in jeder Runde mit der 2. Masche. Das habe ich verstanden aber dann kommen ja die Abnahmen. Verschiebt sich durch die Abnahmen das Muster? Stricke ich nach den Abnahmen einfach ganz normal weiter, also weiterhin immer bei der 2. Masche starten? Vielen Dank
12.03.2022 - 22:30DROPS Design answered:
Liebe Frau Schmidt, am Anfang und am Ende der Runde stricken Sie nicht ein komplett A.4, wenn Sie dann abnehmen werden das erste A.4 und das letzte A.4 auch abnehmen, dh das Muster stricken Sie wie zuvor in der Höhe, damit die Maschen nicht verschoben werden, aber es wird am Anfang/Ende der Runde immer weniger Maschen im Muster. Viel Spaß beim stricken!
14.03.2022 - 10:54Marit D Lyngstad wrote:
Skal man virkelig øke 32masker (str 9/10) når man begynner med vrangborden nede på genseren+
12.03.2022 - 18:35DROPS Design answered:
Hei Marit, Dette er anbefalt for at vrangborden ikke blir stram. God fornøyelse!
14.03.2022 - 07:47Inga Jespersen wrote:
Jeg stikker størrelse 2 år. Efter A 1 skal jeg begynde at tage ud, men hvor mange masker skal jeg tage ud hver gang?
06.12.2021 - 09:10Pia Sällemark wrote:
Mönster A1 och A2 har försvunnit från mönstret. Jag är mitt i A2. Hur ska jag kunna sticka klart?
23.08.2021 - 20:10DROPS Design answered:
Hej Pia. Jag ser de diagrammen här på min pc så de finns kvar. Kanske du kan prova en annan webläsare eller uppdatera sidan för att se de? Mvh DROPS Design
24.08.2021 - 09:38Icca wrote:
Står jag ska ha 40+60 c kabel eller 80.. Men fattar noll ska jag ha 100cm kabel eller 80 tanke på 40+60=100 eller en både 40 & 60cm eller 80
10.08.2021 - 17:25Anneke Ter Horst wrote:
Ik zou graag de wol willen bestellen maar wil graag de echte kleuren zien. Is het mogelijk kleur staaltjes toe te sturen? Alvast dank voor uw antwoord. Anneke
30.05.2021 - 17:19