Spanish Sonata |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Kjóll með laskalínu, A-formi og gatamynstri, prjónaður ofan frá og niður úr Muskat. Stærð S - XXXL.
DROPS 178-47 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚTAUKNING-2: Prjónið fram að 2 lykkjum á undan prjónamerki á hlið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið í hinni hliðinni (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 122 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 10,1. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 10. hverja lykkju. LASKALÍNA: ÚTAUKNING Í ANNARRI HVERRI UMFERÐ: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Byrjið á 1 lykkju á undan A.1A, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.1A-A.1C (aukið út um 2 lykkjur fyrir laskalínu í mynsturteikningu), prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að ekki myndist gat. ÚTAUKNING Í FJÓRÐU HVERRI UMFERÐ: UMFERÐ 1: Byrjið 1 lykkju á undan A.1A: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.1a-A.1c, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, Endurtakið á undan og á eftir næsta A.1a-A.1c. UMFERÐ 2: Uppslátturinn er prjónaður slétt, svo að það myndist gat. UMFERÐ 3: Byrjið 2 lykkjum á undan A.1A: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.1A-A.1C, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð – ekki er aukið út um lykkjur, en gataumferðin heldur áfram eins og áður. Endurtakið á undan og á eftir næsta A.1A-A.1C. UMFERÐ 4: Uppslátturinn er prjónaður slétt, það eiga að myndast göt. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 2 lykkjur þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 3 lykkjur snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri). Fækkið um 1 lykkju þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. KJÓLL: Fitjið upp118-122-122-126-126-134 lykkjur á hringprjón 3,5 með Muskat. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í næst síðustu umferð í garðaprjóni er aukið út um 12-12-16-16-20-24 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir) = 130-134-138-142-146-158 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið mynstur þannig: Prjónið 19-20-21-22-23-26 sléttar lykkjur (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, A.1A (= 7 lykkjur), A.1B (= 12 lykkjur), A.1C (= 6 lykkjur) (= hægri ermi), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 38-40-42-44-46-52 sléttar lykkjur (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, A.1A, A.1B, A.1C (= vinstri ermi), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 19-20-21-22-23-26 lykkjur slétt (= hálft bakstykki). Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið = 138-142-146-150-154-166 lykkjur. Nú er aukið mismunandi út á fram- og bakstykki og ermum. Á fram og bakstykki er aukið út í annarri hverri umferð alls 14-16-17-25-32-34 sinnum og í lokin í 4. hverri umferð 4-5-6-3-0-0 sinnum. Á ermi er aukið út í annarri hverri umferð (útaukningar eru teiknaðar inn í mynsturteikningu A.1) 21-25-28-30-32-34 sinnum. Í hvert skipti sem A.1A til A.1C hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er haldið áfram með 2 fleiri mynstureiningum af A.1B á milli A.1A og A.1C. Þegar aukið hefur verið út alls 21-25-28-30-32-34 sinnum á ermum og 18-21-23-28-32-34 sinnum á framstykki og bakstykki eru 67-75-81-85-89-93 lykkjur á hvorri ermi, 76-84-90-102-112-122 lykkjur á framstykki og bakstykki = 286-318-342-374-402-430 lykkjur alls. Berustykkið mælist nú 17-20-22-23-24-25 cm frá hálsmáli við miðju að framan og niður. Ef málið passar ekki þá verður að halda áfram með mynstur á ermum og sléttprjón á fram- og bakstykki að réttu máli. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 38-42-45-51-56-61 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 67-75-81-85-89-93 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 76-84-90-102-112-122 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 67-75-81-85-89-93 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið síðustu 38-42-45-51-56-61 lykkjur (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 168-184-200-224-248-272 lykkjur á fram- og bakstykki. Haldið áfram í sléttprjóni. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING-2! Aukið svona út í ca 6.-7.-6.-7.-10.-15. hverri umferð 15-14-16-13-10-7 sinnum = 228-240-264-276-288-300 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjón þar til stykkið mælist 36-35-35-36-37-38 cm. Prjónið nú 4 umferðir garðaprjón. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið mynsturteikningu A.2 (= 19-20-22-23-24-25 mynstureiningar 12 lykkjur í fyrstu umferð). Í næst síðustu umferð í A.2 (umferð með stjörnu) er aukið út um 3-5-3-5-1-3 lykkjur jafnt yfir = 307-325-355-373-385-403 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.3A (= 7 lykkjur), A.3B (= 6 lykkjur) þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, A.3C (= 6 lykkjur). Þegar öll mynsturteikning A.3a til A.3c hefur verið prjónuð til loka á hæðina, prjónið mynstureiningu 1 sinni til viðbótar á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið aftur til baka yfir á hringprjón 4 og fellið af með sléttum lykkjum. ERMI: Setjið til baka lykkjur af þræði á sokkaprjón 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 75-83-91-95-101-107 lykkjur. Setjið 1 lykkju mitt í nýjar lykkjur = mitt undir ermi. Haldið áfram með A.1B, þær lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri mitt undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 3 cm byrjar úrtaka undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið um 2 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í annarri hverri umferð 0-0-0-4-5-6 sinnum og 1 lykkja hvoru megin við prjónamerki í 5.-3.-2.-2.-2.-2. umferð 7-10-13-5-4-3 sinnum = 61-63-65-69-73-77 lykkjur. Lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 15-13-12-10-10-9 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu) skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 4 og fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (30)
Anja Meier wrote:
Hallo, habe eine Frage zu den Ärmeln Stricke in xxxl Muss ich rechter Ärmel A1A,A1B,A1C in der Reihenfolge am anfang stricken danach die 52 re Maschen, danach den Ärmel spiegelverkehrt stricken. Also dann A1C,A1B,A1A? An sich sieht das Kleid schön aus. Nur die Anleitung ist sehr schwer zu deuten. Wirft viele Fragen auf
04.03.2024 - 15:16DROPS Design answered:
Liebe Frau Meier, das Lochmuster lesen Sie für beide Ärmel gleich, A.1A zeigt wie das Lochmuster beginnt, A.1B wird dann gestrickt bzw wiederholt, und A.1C zeigt wie das Muster endet, so werden beide Ärmel gleich. Viel Spaß beim Stricken!
04.03.2024 - 15:44Teresa wrote:
W schemacie A2 między 3. a 4. sekwencją ażuru są dodatkowe dwa rzędy oczek prawych (rzędy 29-32). Tak zrobiłam, nie podobało mi się, po spruciu pomijam 2 rzędy. O ile można wnioskować coś ze zdjęcia, tych rzędów na fotografii nie widać. Czy schemat A2 nie ma błędu?
02.06.2023 - 08:41DROPS Design answered:
Witaj Tereso, faktycznie schemat wydaje się nielogiczny. Zadam pytanie do działu projektów i jeśli w schemacie jest błąd, we wzorze pojawi się korekta. Bardzo dziękuję za zwrócenie uwagi na problem. Dziękujemy za zainteresowanie naszymi wzorami i pozdrawiamy serdecznie!
02.06.2023 - 09:16Tina wrote:
Jeg skjønner ikke hvordan jeg skal øke på bolen. Hvilke masker er det som tilsvarer økningene på bolen? De maskene som er før A.1A er jo til ermene, men hvor skal jeg øke til bolen? Dette var en vanskelig oppskrift.
24.05.2023 - 20:28DROPS Design answered:
Hej Tina, økningen på bolen er kastet som er beskrevet under RAGLAN: ØKNING PÅ HVER 2.OMGANG: Det økes til raglan på hver side av A.1 i hver overgang mellom bol og ermer slik: Start 1 maske før A.1A, lag 1 kast om pinnen, strikk 1 maske rett, strikk A.1A-A.1C (det økes 2 masker til raglan i diagrammene), strikk 1 maske rett, lag 1 kast om pinnen. På neste omgang strikkes kastene rett slik at det blir hull.
25.05.2023 - 07:49Tove Enid wrote:
Hei. Jeg oppdaget feil i mønster A.3C og A.3B. A.3C må være på 7 masker og A.3B må være på 5 masker. Hvis ikke stemmer ikke mønsteret. Dermed står det også feil i teksten under BOL. \r\nMed hilsen Tove.
07.07.2022 - 10:16Grancea Mariana wrote:
Das KLeid ist Spanisch Sonate.Wenn Sie in der Anleitung ueber dieses Kleid sprechen, sagen Sie,: Jedes Mal, wenn A1A bis A1C x in der Hoehe gestrickt wurden, werden 2 Rapporte mehr von A1B zwischen A.1 A und A1C gestrickt. Bitte, was meinen Sie damit. Ich glaube, dass ich eine erfahrene Strickerin bin, aber dieser Satz weis ich nicht wie ich machen sollte. Koenten Sie mir erkleren ? Mit Vielen Dank im Voraus M.Grancea
13.06.2022 - 17:44DROPS Design answered:
Liebe Frau Grancea, wenn die Diagramme A.1 fertig sind haben Sie 12 Maschen in A.1A und A.1C zugenommen, bei der nächsten Reihe stricken Sie A.1A über die ersten 7 Maschen vorrigen A.1A + A.1B über die letzten Maschen vorrigen A.1A, A.1B wie zuvor und dann A.1B über die ersten 12 Maschen vorrigen A.1C und dann stricken Sie A.1C (= 6 M) über die letzten Maschen vorrigen A.1C, so haben Sie jeweils 1 x A.1B beidseitig gestrickt = 2 Rapporte mehr zwischen A.1A und A.1C. Kann das Ihnen helfen?
14.06.2022 - 08:50Brigitte Boß wrote:
Hallo Habe mir zum 2ten Mal alles für das Modell Sonata drops 178-47 bestellt bloss nicht mit drops muskat sondern nach IHRER Empfehlung wegen eines leichteren Garnes drops belle genommen. Jetzt fällt das Teil aber viel viel kleiner aus und davon wurde absolut NICHTS erwähnt. Muss alles wieder aufmachen und weiß nicht was ich jetzt machen soll. Bitte um Antwort würde gern ein Foto senden aber weiss nicht wo. Was kann ich jetzt machen
19.03.2021 - 20:30DROPS Design answered:
Liebe Frau Boß, gerne können Sie dieses Modell mit DROPS Belle stricken, da beide Garne selbe Garngruppe = selbe Maschenprobe haben. Maschenprobe muss aber wie in der Anleitung stimmen, dh 21 M x 28 Reihen glatt rechts = 10 x 10 cm sein - hier lesen Sie mehr über Garnalternativen und hier über Maschenprobe. Senden Sie bitte Fotos Ihrem DROPS Laden, dort wird man Ihnen weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!
22.03.2021 - 07:21Brigitte Boss wrote:
Ich brauche ein leichteres weißes Garn für Artikel Nr 178 47 spanish sonata
02.02.2021 - 17:17DROPS Design answered:
Liebe Frau Boss, dieses Kleid wird mit einem Garn der Garngruppe B (Muskat) gestrickt - hier finden Sie unsere Kleider, die mit einem Garn der Garngruppe A (wie Safran, Alpaca,..) gestrickt bzw gehäkelt sind. Viel Spaß beim stricken!
03.02.2021 - 08:21Michał wrote:
Przejrzysty układ informacje zapodane w sposób czytelny
28.08.2020 - 11:01Sorpon wrote:
Thank you so much for your help! I got it now ❣️💖👍
04.06.2020 - 05:58Sorpon wrote:
Thank you so much for your help! I got it now ❣️💖👍
04.06.2020 - 05:58