DROPS Cotton Merino uni colour 50% Ull, 50% Bómull |
946.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Cotton Merino uni colour 50% Ull, 50% Bómull 946.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu | |
= brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Riley |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Cotton Merino í áferðamynstri og v-hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 174-22 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚRTAKA Í HANDVEG: Fækkið l innan við 7 l í hvorri hlið. Fækkið l í byrjun umf þannig: Prjónið 7 l eins og áður, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, prjónið næstu l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið l í lok umf þannig: Prjónið þar til 9 l eru eftir, prjónið næstu 2 l slétt saman, prjónið síðustu 7 l eins og áður. ÚRTAKA Í HÁLSI: Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið l innan við 11 l. Fækkið l á undan kant að framan (vinstra framstykki) þannig: Prjónið þar til 13 l eru eftir, prjónið næstu 2 l slétt saman, prjónið síðustu 11 l eins og áður. Fækkið l á eftir kant að framan (hægra framstykki) þannig: Prjónið 11 l eins og áður (= kantur að framan + 6 l mynstur), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan er prjónað fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna og saumaðar á stykkið í lokin. PEYSA: Fitjið upp 198-222-234-258-282-306 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Merino. Prjónið 1 umf slétt, í næstu umf er prjónað stroff yfir allar l þannig: 1 l br, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið með 1 l sl og 1 l br. Prjónið stroff í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4, prjónið nú A.1 yfir allar l. Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af fyrstu 3-3-3-6-6-6 l í umf, prjónið 93-105-111-117-129-141 l, fellið af næstu 6-6-6-12-12-12 l, prjónið 93-105-111-117-129-141 l, fellið af síðustu 3-3-3-6-6-6 l. Framstykki og bakstykki eru nú prjónuð til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 93-105-111-117-129-141 l. Haldið áfram með A.1 eins og áður. JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu heldur úrtaka áfram fyrir handveg í hvorri hlið – fækkið um 1 l í hvorri hlið í annarri hverri umf alls 6-12-12-15-18-24 sinnum – LESIÐ ÚRTAKA Í HANDVEG = 81-81-87-87-93-93 l. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm prjónið garðaprjón yfir miðju 35-35-41-41-47-47 l, þær l sem eftir eru halda áfram í mynstri. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm fellið af miðju 25-25-31-31-37-37 l fyrir hálsmáli = 28 l eftir á hvorri öxl í öllum stærðum. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. FRAMSTYKKI: = 93-105-111-117-129-141 l. Setjið eitt prjónamerki mitt í miðju-l. Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 54-56-55-55-57-59 cm haldið eftir l á prjóni fram að prjónamerki, l með prjónamerki og 2 l eftir prjónamerki á prjóni, aðrar l eru settar á band. Prjónið nú GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir 5 l við miðju að framan (= kantur að framan), haldið áfram með A.1 yfir þær l sem eftir eru eins og áður. Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg, JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli þannig – LESIÐ ÚRTAKA Í HÁLSI! Fellið af í annarri hverri umf alls 15-15-18-18-21-21 sinnum. Eftir alla úrtöku í hálsi og fyrir handveg eru 28 l eftir á öxl í öllum stærðum. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka l af bandi á prjóninn og prjónið upp 5 l garðaprjón á bakhlið á kanti að framan á vinstra framstykki. Prjónið eins og vinstra framstykki. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 54-57-60-60-63-66 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Cotton Merino. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan stroff (1 l sl, 2 l br). Þegar stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4, haldið áfram í sléttprjón, í 1. umf hringinn í sléttprjóni er fækkað um 4-5-6-4-5-6 l jafnt yfir = 50-52-54-56-58-60 l í umf. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin. Aukið út með 4½-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 8-11-12-18-20-22 sinnum, síðan er aukið út með 2 cm millibili 5-5-5-0-0-0 sinnum = 76-84-88-92-98-104 l. Þegar stykkið mælist 54-53-53-51-51-50 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af 6 l mitt undir ermi (= 3 l hvoru megin við prjónamerki) og ermin er prjónuð til loka fram og til baka á hringprjóna. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: Fellið af 2 l 5 sinnum og 1 l 2-3-5-6-9-10 sinnum, fellið síðan af 2 l á hvorri hlið þar til stykkið mælist 63-63-64-64-65-65 cm, fellið síðan af 3 l 1 sinni á hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 64-64-65-65-66-66 cm. Prjónið aðra ermi á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (58)
Sylvie Allaire wrote:
Bonjour, combien de mailles restantes une fois les diminutions faites pour une grandeur large? Combien de fois on fait les diminutions de 2 m après les 5 fois 1 m?
19.04.2024 - 17:19DROPS Design answered:
Bonjour Mme Allaire, le nombre de mailles à la fin de la manche dépend de votre tension en hauteur, lorsque vous avez rabattu 5 x 1 m de chaque côté, rabattez 2 m de chaque côté jusqu'à ce que la manche mesure 64 cm, le nombre de fois dépendra de votre nombre de rangs en hauteur, ce qui importe ici c'est la hauteur finale et pas le nombre de mailles. Rabattez ensuite 1 x 3 m de chaque côté et rabattez les mailles restantes. la tête de manche doit mesurer 12 cm de hauteur totale en taille L; Bon tricot!
22.04.2024 - 07:36Vivian Jakobsen wrote:
Jeg er interesserer i at vide om det vil kunne lade sige gøre at strikke trøje i en tråd alpaca sammen med en tråd kidsilk?\r\nMvh Vivian
14.03.2024 - 12:05DROPS Design answered:
Hej Vivian, ja det kan lade sig gøre, men den vil blive lidt mere kompakt, strik en lille prøve og se om du kan holde strikkefastheden som står i opskriften :)
15.03.2024 - 09:31Claire wrote:
Bonjour, pour le dos, quand il est dit : au rang suivant sur l'endroit, diminuer pour les emmanchures: 12 fois 1 m de chaque côté tous les 2 rangs", il faut bien diminuer au début de chaque rang (donc une maille par rang sur 24 rangs) ? Ou alors il faut diminuer une maille après les 7 premières mailles et une autre avant les 9 dernières sur l'endroit ? Désolée, la taille n'allait pas alors j'ai du tout recommencer et j'ai oublié les explications précédentes...
27.03.2023 - 20:31DROPS Design answered:
Bonjour Claire, vous diminuez comme indiqué sous DIMINUTIONS EMMANCHURES:, autrement dit à 7 m du bord = après les 7 premières mailles et avant les 7 dernières mailles, autrement dit, 2 mailles tous les rangs sur l'endroit: 1 maille au début + 1 maille en fin de rang sur l'endroit; et on répète 12 fois au total tous les 2 rangs. Bon tricot!
28.03.2023 - 10:01Micheline Lebeau wrote:
Pour une taille 52 quel modèle dois-je prendre XXL ou XXXL Merci
16.02.2023 - 17:11DROPS Design answered:
Bonjour Mme Lebeau, mesurez un vêtement qui va au destinataire et qui lui plaît, et comparez ces mesures à celles du schéma, c'est la technique la plus simple pour trouver la bonne taille - retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!
17.02.2023 - 11:31Claire wrote:
Bonjour, quand il est dit ", puis rabattre 2 m de chaque côté jusqu'à ce que la manche mesure 63-63-64-64-65-65 cm, " pour les manches, cela signifie t-il qu'il faut rabattre 2 fois deux mailles en début et fin de tour sur l'envers et sur l'endroit ou alors 2 mailles en début ou fin de tour sur l'envers et sur l'endroit ? Merci pour vos précisions
15.01.2023 - 12:15DROPS Design answered:
Bonjour Claire, lorsque vous avez rabattu 6 mailles sous la manche, vous continuez à tricoter le haut de la manche en allers et retours en rabattant d'abord 5 x 2 mailles (= 2 mailles au début des 10 rangs suivant)s, puis 2 à 10 fois 1 m de chaque côté (1 m au début des 4 à 20 rangs suivants), puis 2 m au début des chacun des 2 rangs suivants jusqu'à ce que la manche mesure 63 à 65 cm (cf taille) - ajustez bien pour que vous ayez rabattu le même nombre de fois 2 m de chaque côté, puis 3 m au début des 2 rangs suivants. Bon tricot!
16.01.2023 - 09:06Birgit wrote:
Sehr geehrter Drops Team, ich stricke das Modell 174-22. Leider verstehe ich die Anleitung (A1) nicht. Das Model wird bis zu den Ärmeln in Runden gestrickt. Wie muss ich die Runde mit den weißen Kästchen stricken? Wenn ich in Runden stricke gibt es ja keine Rückreihen. LG Birgit
09.10.2022 - 17:54DROPS Design answered:
Liebe Birgit, wenn Sie A.1 in Runden stricken, stricken Sie so: 1. R = alle Maschen rechts; 2. Reihe: *1 Masche links, 1 Masche rechts, 2 Maschen links, 1 Masche rechts, 2 Maschen links, 1 Masche rechts, 1 Masche links* ( = 9 M), von *-* wiederholen. Viel Spaß beim stricken!
10.10.2022 - 09:25Grecourt wrote:
Bonjour ,combien doit il rester de maille à arrêter à la fin des manches ? Merci
19.04.2022 - 12:21DROPS Design answered:
Bonjour Mme Grecourt, cela va dépendre de votre taille mais aussi de votre tension en hauteur; ce qui est important ici est la longueur plus que le nombre de mailles restant. Rabattez bien le nombre de mailles indiqué, puis 2 mailles de chaque côté jusqu'à la hauteur indiquée en veillant bien à rabattre autant de fois 2 mailles en début de rang sur l'endroit qu'en début de rang sur l'envers, puis rabattez 3 mailles de chaque côté et rabattez les mailles restantes. Bon tricot!
19.04.2022 - 13:13Ivana wrote:
Buongiorno, non vedo le istruzioni per fare il bordo dello scollo. Le maglie vanno riprese? quante? diminuzioni x fare la punto dello scollo a V? Grazie mille
10.12.2021 - 11:46DROPS Design answered:
Buongiorno Ivana, i bordi del collo a V vengono lavorati contestualmente al davanti destro e sinistro. Buon lavoro!
10.12.2021 - 13:11Anne-Marie Bourgeois wrote:
Ouf ! Comment déterminer quel type de point utiliser pour les mailles qui ont été diminuées ? Est-ce que je tricote toujours les 7 premières et 7 dernières selon A1 ?
21.05.2021 - 01:51DROPS Design answered:
Bonjour Mme Bourgeois, les mailles diminuées ne sont pas à tricoter car elles ont été diminuées, les autres se tricotent comme avant: en début de rang: 7 m comme avant, point fantaisie comme avant (le motif ne tombe pas forcément juste à la transition à cause de diminutions, tricotez-ces mailles comme vous le faisiez auparavant: endroit si point mousse ou envers si jersey), 7 m comme avant. Si vous ne savez plus si votre maille est à tricoter à l'endroit ou à l'envers sur l'envers, regardez-la sur l'endroit, si c'est une maille point mousse, tricotez-la à l 'endroit sur l'envers, si c'est une m jersey, tricotez-la à l'envers sur l'envers. Bon tricot!
21.05.2021 - 07:52Anne-Marie Bourgeois wrote:
Est-ce que je commence donc mon rang envers par un point endroit, ensuite un point envers, 2 points endroit, etc. ?
19.05.2021 - 15:59DROPS Design answered:
Bonjour Mme Bourgeois, tout dépend de votre rang sur l'endroit, tricotez les mailles jersey à l'envers sur l'envers et les mailles point mousse à l'endroit sur l'endroit. Vous devez toujours avoir, vu sur l'endroit le même rythme des côtes fantaisie. Bon tricot!
19.05.2021 - 16:00