English Afternoon Cardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð aðsniðin peysa úr DROPS Karisma með hringlaga berustykki, norrænu mynstri og brugðnum lykkjum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 164-22 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þá er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki þegar mynstrið er prjónað. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.5. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) svo að ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu í berustykki): Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 118 l) og dragið frá 12 kantlykkjur að framan (= 106 l), deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 27 l) = 3,92. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er aukið út um 1 l til skiptis í 3. og 4. hverri l. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan frá röngu. 1 hnappagat = prjónið fjórðu og fimmtu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 2, 10, 19, 27, 36, 44 og 53 cm. STÆRÐ M: 2, 10, 19, 27, 36, 45 og 54 cm. STÆRÐ L: 2, 10, 19, 28, 37, 46 og 55 cm. STÆRÐ XL: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm. STÆRÐ XXL: 2, 11, 21, 30, 40, 49 og 59 cm. STÆRÐ XXXL: 2, 11, 21, 30, 40, 50 og 60 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. LESIÐ LEIÐBEININGAR! ATH: Kantur að framan er prjónaður með grunnlit í mynstri, en í mynsturumferð með litnum natur og ljós beige er kantur að framan prjónaður í litnum beige. BERUSTYKKI: Fitjið upp 118-121-127-130-133-142 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum ljós brúnn. Prjónið þannig: 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 7 l eru eftir, 1 l sl, 6 kantlykkjur að framan. Munið eftir HNAPPAGAT! Þegar stroffið mælist 3 cm, prjónið 1 umf br frá röngu með 6 kantlykkjum að framan í hvorri hlið (ATH: Kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka!) Prjónið síðan 6 umf garðaprjón yfir allar l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið 2 umf sléttprjón þar sem auknar eru út 27-28-34-35-36-39 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 og ÚTAUKNING-2, (en ekki yfir kant að framan) = 145-149-161-165-169-181 l. Nú er mynstur prjónað þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 þar til 7 l eru eftir, prjónið 1. l í A.1 (til að mynstrið verði alveg eins í báðum hliðum), 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Í 7. umf er aukið út um 36-38-38-46-48-48 l jafnt yfir = 181-187-199-211-217-229 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið nú áfram með A.1 (innan við kantlykkjur að framan) þar til 7 l eru eftir á prjóni, prjónið 1. l í A.1 (svo að mynstrið verði eins í báðum hliðum), 6 kantlykkjur að framan. Í 15. umf er aukið út um 34-40-44-48-50-54 l jafnt yfir = 215-227-243-259-267-283 l. Haldið áfram með mynstur. Í 19. umf er aukið út um 32-36-40-44-56-60 l jafnt yfir = 247-263-283-303-323-343 l. Haldið áfram með A.1 (innan við kantlykkjur að framan) þar til 9 l eru eftir á prjóni. Prjónið 3 fyrstu l í A.1 (svo að mynstrið verði eins í báðum hliðum), 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er mynstrið prjónað þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2 (= 22 l) 12-13-14-15-16-17 sinnum á breiddina, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 29-35-37-39-41-43 l jafnt yfir (en ekki yfir kant að framan) = 276-298-320-342-364-386 l. ATH: Í 13. umf í mynstri er aukið út um 1 l (= alls 12-13-14-15-16-17 útaukningar í umf) = 288-311-334-357-380-403 l. Þegar mynstur A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, endurtakið 2 síðustu umf í mynstri 0-0-0-2-2-2 sinnum til viðbótar. Nú er prjónuð síðasta l í A.3, haldið síðan áfram með A.3, JAFNFRAMT í 1. umf er aukið út um 7-8-9-16-17-24 l jafnt yfir = 295-319-343-373-397-427 l. Þegar allt A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónuð 1 umf sléttprjón með litnum beige þar sem auknar eru út 2-2-2-4-4-6 l jafnt yfir = 297-321-345-377-401-433 l. Prjónið síðan 0-2-4-4-6-8 umf sléttprjón. Prjónið síðan frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 44-48-52-58-62-70 l (= hægra framstykki) setjið næstu 66-70-74-78-82-82 l á þráð (= ermi), fitjið upp 12 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 77-85-93-105-113-129 l (= bakstykki), setjið næstu 66-70-74-78-82-82 l á þráð (= ermi), fitjið upp 12 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 44-48-52-58-62-70 l (= vinstra framstykki). Stykkið mælist nú ca 24-25-25-26-27-28 cm. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 189-205-221-245-261-293 l fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki 50-54-58-64-68-76 l inn frá hvorri hlið (= hliðar). Prjónamerkin fylgja síðan með í stykkinu. Prjónið nú með litnum ljós brúnn til loka. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Prjónið nú mynstur þannig: 6 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4 (= 8 l) þar til 7 l eru eftir, prjónið fyrstu l í A.4, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar allt A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram í sléttprjóni. Í næstu umf er fækkað um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki á hliðum – LESIÐ LEIÐBEININGAR! Endurtakið úrtöku í 8. hverri umf (þ.e.a.s. í 4. hverri umf frá réttu) 3 sinnum til viðbótar í öllum stærðum = 173-189-205-229-245-277 l. Þegar stykkið mælist 19 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki. Endurtakið útaukningu í 6. hverri umf (þ.e.a.s. í 3. hverri umf frá réttu) 3 sinnum til viðbótar í öllum stærðum = 189-205-221-245-261-293 l. Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-30 cm er lykkjufjöldinn jafnaður til 193-203-223-243-263-293 l. Nú er prjónað A.5 innan við kantlykkju að framan, síðasta l á undan kant að framan er prjónuð eins og 1. l í mynstri. Þegar allt mynstrið hefur verið prjónað til loka á hæðina er skipt yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 1 umf sléttprjón þar sem aukið er út um 8-8-9-11-13-14 l jafnt yfi (en ekki yfir kant að framan) = 201-211-232-254-276-307 l. Prjónið 6 umf garðaprjón og fellið af. Stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm. ERMI: Ermin er prjónuð með litnum ljós brúnn í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. Nú eru 66-70-74-78-82-82 l fyrir ermi. Setjið til baka l af þræði á hringprjóna/sokkaprjóna nr 4 og fitjið upp 12 nýjar l undir ermi = 78-82-86-90-94-94 l. Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT er sett eitt prjónamerki mitt í nýju l undir ermi (= 6 nýjar l hvoru megin við prjónamerkið). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkið. Endurtakið úrtöku í 5.-4.-4.-3.-4.-4. hverri umf 13-15-17-19-16-16 sinnum til viðbótar = 50-50-50-50-60-60 l. Þegar ermin mælist 30-30-30-29-29-30 cm prjónið A.5 (5-5-5-5-6-6 sinnum í umf). Þegar allt A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 4 umf sléttprjón, JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 4-7-7-10-3-6 l jafnt yfir = 54-57-57-60-63-66 l. Prjónið 6 umf garðaprjón. Prjónið síðan 1 umf sléttprjón áður en stroffið er prjónað (1 l sl, 2 l br) í 3 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (15)
Debbie Quinn wrote:
I am near the end of the yoke, chart A.3. The picture and the chart are not the same. The picture shows a diamond shape the chart shows a V shape. Please advise on how I should proceed. Which is correct, the chart or the picture?
08.10.2023 - 21:28DROPS Design answered:
Dear Debbie, as the chart shows, the silver pink stitches form a pyramid, but there is a white stitch right under it (as shown in the chart) and it makes it look like a diamond from afar. Happy knitting!
09.10.2023 - 01:15Solveig wrote:
Veldig vanskelig mønster, tror jeg gir opp.....!
24.02.2022 - 12:54Hanne Nielsen wrote:
Jeg vil gerne strikke DROPS 164-22 i DROPS cotton merino. Jeg kan godt lide kombinationen af uld og bomuld. Jeg vil dog gerne strikke den i en grå version. Hvilke farver numre skal jeg vælge? Hvad kan jeg sætte sammen?
21.04.2017 - 13:12DROPS Design answered:
Hei Hanne. Om du går inn på fargekartet til Cotton Merino vil du se de gråfargene vi har og dens fargenr. Her kan du da velge ut de fargene du ønsker og syns vil passe deg best. Fargekart Cotton Merino God Fornøyelse!
24.04.2017 - 13:02June wrote:
Helt umulig opskrift! Prøver at finde en anden opskrift jeg kan bruge garnet til. ØV! Har virkelig forsøgt mange gange, spild af tid!
02.12.2016 - 09:00DROPS Design answered:
Hej June. Det er da aergeligt. Husk du kan altid spörge om hjaelp her - vi kan da pröve at hjaelpe dig videre med at forstaa opskriften.
02.12.2016 - 15:06Hanne wrote:
Dårlig opskrift, synes jeg. Nået til midt på første ærme og kan se at garnforbruget ikke stemmer - jeg kommer til at mangle farve 55. Nu trævler jeg det hele op for jeg synes pasformen er elendig til mig. Bærestykket er alt for "bulket" og ærmerne for smalle.
09.01.2016 - 02:11Ingrid Rosbag wrote:
Ik had geen ruimte meer om mijn vraag af toemaken. Wat ik graag wil is in het rond breien top down. Hoe weet ik hoeveel steken ik op moet zetten . En welke maten moet ik in de gaten houden b.v welke hoogte moet ik stoppen om de steken voor de mouwen apart te zetten en hoeveel St. ik wil met shetland wol breien , hopelijk komt U eruit wat ik bedoel Hg. Ingrid
20.10.2015 - 16:35DROPS Design answered:
Hoi Ingrid. Ik kan helaas niet helpen met individuele aanpassingen op de gratis patronen. Maar je hebt een maattekening onderaan, de stekenverhouding van het patroon (aantal st x nld per 10 x 10 cm), dus het is mogelijk om zelf de berekeningen te maken. Veel plezier mee.
21.10.2015 - 16:55Ingrid Rosbag wrote:
Hallo, ik wil graag een vest breien in fairIlse techniek, nu zit ik met een probleem, ik ben van boven niet zo breed maar naar beneden wel .Ik heb maat 56 nu heb ik voor zo ver ik weet alles na gekeken en vragen gesteld op site's maar zonder een goed antwoord. Ik zou graag in het rond breien met een doorknipbies middenvoor. En heel graag met ronde pas, heel veel vragen maar ik hoop dat U mij die kan beantwoorden.
20.10.2015 - 13:21DROPS Design answered:
Hoi Ingrid. Wat wil je precies weten? Je wilt het model breder maken beneden dan boven? Je kan het patroon aanpassen door gebruik van de maattekening onderaan het patroon - eventueel een combi maken van een grotere maat beneden en dan minderen en de pas in een kleinere maat te breien
20.10.2015 - 15:53Märtha Sohlberg wrote:
Mycket vacker kofta. Den här ska jag sticka.
20.06.2015 - 18:52Liv wrote:
A definite on the make list
15.06.2015 - 06:24José wrote:
Mooi patroon. De pauwensteek langs de onderrand vind ik een prachtig extraatje. De mouwen zou ik iets langer maken.
13.06.2015 - 16:33