Emily Gloves |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaðir fingravettlingar úr DROPS BabyAlpaca Silk með gatamynstri og smá blúndulista. Stærð S - XL.
DROPS 140-37 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstrið séð frá réttu. Lykkjufjöldinn í mynstri A.1 er mismunandi allt frá 8 l að 10 l eftir því hvar maður er staðsettur í mynstri. Í umf 3 og 4 í mynstri eru prjónaðar stuttar umferðir þannig: Prjónið 3 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið út umf. Sama er gert í umf 9 og 10 í mynstri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- FINGRAVETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! VINSTRI FINGRAVETTLINGUR: Fitjið upp 56-62 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu. Prjónið nú þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 8 l sl, setjið 1 prjónamerki, * prjónið 1 l sl, nema prjónið l í gegnum l frá fyrri umf í stað fyrir l á prjóni, prjónið 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 9 l eru eftir, prjónið 1 l sl í gegnum l frá fyrri umf, setjið 1 prjónamerki og prjónið sl yfir síðustu 8 l á prjóni, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.1 fram að prjónamerki (= 8 l – lesið útskýringu að ofan), prjónið sl yfir sl og br yfir br fram að næsta prjónamerki og prjónið sl yfir síðust 8 l á prjóni (= listi með garðaprjóni). Haldið svona áfram með mynstur, þ.e.a.s. sl í hverri umf yfir þær 8 l á undan fyrsta prjónamerki (séð frá réttu), stroff að næsta prjónamerki (frá réttu: Prjónið 1 l sl í l frá fyrri umf, 2 l br, og frá röngu: Prjónið sl yfir sl og br yfir br), og A.1 (= blúndulisti) yfir l eftir síðasta prjónamerki (séð frá réttu) – Lesið MYNSTUR!. Þegar stykkið mælist ca 8 cm – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina á A.1, eru 8 l á blúndulista. Setjið l frá blúndulista hjá þeim 8 l frá kanti í garðaprjóni af hinum hluta af stykkinu (svo að opið snúi út á ytri hlið handar). Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT þar sem 8 l af lista með blúndu er prjónaður saman með kanti í garðaprjóni þannig: Prjónið 1 l með A.1 sl saman með 1 l frá kanti í garðaprjóni, * prjónið nú næstu l frá A.1 sl saman með næstu l frá kanti í garðaprjóni *, endurtakið frá *-* þar til allar 8 l frá A.1 hafa verið prjónaðar saman með l með garðaprjóni = 48-54 á prjóni. Klippið frá. Setjið 1 prjónamerki í 7. l eftir blúndulista (þ.e.a.s. 1 l sl = ytri hlið handar) og 1 prjónamerki í 24.– 27. l á eftir fyrsta prjónamerki (þ.e.a.s. 1 l sl = byrjun umf, þ.e.a.s. á innri hlið handar). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Byrjið við prjónamerki í innri hlið handar og prjónið sléttprjón hringinn á sokkaprjóna JAFNFRAMT eru 5 miðju l á ytri hlið handar prjónaðar þannig: Prjónið 2 l br, 1 l sl sem prjónuð er í l frá fyrri umf (prjónamerkið situr í þessari l) og 2 l br. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 4 umf eftir stroff er sett 1 nýtt prjónamerki fyrir miðju á handarbaki (í stærð S/M er prjónamerki sett í 12. l í umf og í stærð L/XL er prjónamerki sett á milli 13. og 14. l í umf). Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.2 fyrir miðju á handarbaki (aðrar l eru prjónaðar eins og áður) – A.2 byrjar í l með prjónamerki í stærð S/M og í l á eftir prjónamerki í stærð L/XL. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm byrjar útaukning fyrir þumal. Aukið út um 1 l á hvoru megin við næst næst síðustu l í umf (þ.e.a.s. innan í lófa) – aukið út um 1 l með því að slá uppá prjóninn, til þess að koma í veg fyrir göt er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt í næstu umf. Aukið út hvoru megin við útauknu l í 3. hverri umf, 4-5 sinnum til viðbótar = 11-13 þumallykkjur og 58-66 l alls. Þegar stykkið mælist 6-7 cm eru þumallykkjurnar + 1 l í hvorri hlið (= 13-15 l) settar á þráð. Fitjið upp 3 nýjar l fyrir aftan þumal = 48-54 l. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og þær 5 l með stroffi á ytri hlið handar þar til stykkið mælist 10-11 cm. Setjið fyrstu 19-21 l af handarbaki á þráð, haldið eftir næstu 11-13 l á prjóni og setjið síðustu 18-20 l af lófa á annan þráð. LITILIFINGUR: = 11-13 l, fitjið upp 1 nýja l í vikið við l af þræði = 12-14 l. Prjónið sléttprjón hringinn með 5 l með stroffi í hlið eins og áður í ca 5½ -6½ cm. Prjónið allar l slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að. LÓFI: Setjið til baka l af þræði á prjóninn, prjónið að auki upp 2-3 l í vikið við litlafingur = 39–44 l. Prjónið 2 umf hringinn í sléttprjóni. Geymið þær 2-3 l sem prjónaðar voru upp í vikið við litlafingur + 6-6 l af handarbaki og 5-5 l frá lófa á prjóni. Setjið l sem eftir eru á sitt hvorn þráðinn (= 13-15 l af handarbaki og 13-15 l úr lófa). BAUGFINGUR: = 13-14 l, fitjið upp 1 nýja l í vikið l af þræði = 14-15 l. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 7-8 cm, prjónið allar l slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að. LANGATÖNG: Setjið til baka þær 7-8 l af hvorum þræði á prjóninn, prjónið að auki upp 2 l í vikið við baugfingur og fitjið upp 1 nýja l í vikið l af þræði = 15-17 l. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 7½-8½ cm, prjónið allar l slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að. VÍSIFINGUR: Setjið til baka þær l sem eftir eru 14-16 l af þræði á prjóninn, prjónið að auki upp 2 l í vikið við löngutöng = 16-18 l. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 6½-7½ cm, prjónið allar l slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að. ÞUMALL: Setjið l fyrir þumal á prjóninn og prjónið að auki upp 3 l frá lófa við þumallykkjurnar = 16-18 l. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 5½-6 cm, prjónið allar l slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að. HÆGRI FINGRAVETTLINGUR: Prjónið á sama hátt og vinstri fingravettlingur, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. að A.1 er prjónað yfir fyrstu 8 l í byrjun umf (séð frá réttu)og prjónað er garðaprjón yfir 8 síðustu l í umf (séð frá réttu), í stað gagnstætt. Að auki er blúndulistinn lagður ofan á kant í garðaprjón svo að opið á stroffinu snúi í gangstæða átt, aukið út fyrir þumal hvoru megin við þriðju l í byrjun umf (í stað hvoru megin við næst, næst síðustu l í umf). FRÁGANGUR: Saumið 3 tölur meðfram kanti í garðaprjóni á hvorum fingravettlingi og notið götin af blúndulistanum sem hnappagöt. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (9)
Dea wrote:
Scusate non prendete in esame gli ultimi due miei commenti/domande. Ho trovato l'errore che mi impediva di lavorare normalmente. Grazie.
14.12.2018 - 18:42Dea wrote:
Buonasera, mi trovo dopo la chiusura del polsino in tondo. Nella spiegazione dice di lavorare le 5 m centrali sul lato esterno della mano in qst modo " 2 rov, , 1 dir nella m del giro precedente (come nel polsino lavorato avanti e indietro; sono le mezze coste inglesi) e poi 2 rov. " . Come è possibile fare la mezza costa inglese in tondo visto che mancherebbe un filo per ottenerla? Forse bisogna farla diventare come una costa inglese classica? Non è possibile un video di qst lavoro?
15.11.2018 - 18:43Dea wrote:
Buonasera, mi trovo dopo la chiusura del polsino in tondo. Nella spiegazione dice di lavorare le 5 m centrali sul lato esterno della mano in qst modo " 2 rov, , 1 dir nella m del giro precedente (come nel polsino lavorato avanti e indietro; sono le mezze coste inglesi) e poi 2 rov. " . Come è possibile fare la mezza costa inglese in tondo visto che mancherebbe un filo per ottenerla? Forse bisogna farla diventare come una costa inglese classica? Non è possibile un video di qst lavoro?
15.11.2018 - 18:42Dea wrote:
Scusate ho trovato dove sbagliavo e la spiegazione è giusta visto che è il guanto sinistro. Mea culpa. :)
13.11.2018 - 11:23Dea wrote:
Buongiorno. Dice di lavorare il diagramma A1 partendo col primo ferro dello schema stando sul "Rovescio del Lavoro", così facendo però il ferro 5 del diagramma (il primo dopo i due ferri accorciati) si troverebbe sul "Rovescio del Lavoro" mentre quando ho fatto la sciarpa e il cappello il "bordo di pizzo" iniziava col ferro 1 dello schema sul "Diritto del Lavoro". C'è qualcosa di strano. Grazie.
13.11.2018 - 11:15Dea wrote:
Buonasera nella spiegazione c'è una parola doppiata " Lavorato prima lavorato avanti e in...." . E' un refuso. :)
12.11.2018 - 21:29DROPS Design answered:
Buongiorno Dea. Abbiamo corretto il testo. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!
13.11.2018 - 09:22Catarina Adamson wrote:
Hej! Förstår inte hur jag stickar ihop spetsen med den rätstickad biten efter manshetten är klar. Kan jag få en bättre , tydligare, förklaring. Tack på förhand
20.12.2017 - 16:29DROPS Design answered:
Hej, jo såhär skriver vi: sticka tillsammans med den rätst kanten så här: Sticka 1 m från A.1 rät tills med 1 m från den rätst kanten, * sedan stickas nästa m från A.1 rät tills med nästa m från den rätst kanten *, upprepa *-* tills alla de 8 m från A.1 har stickats ihop med de rätst m = 48-54 m på st
02.01.2018 - 10:58Catarina wrote:
Hej! Jag blir inte riktigt klar över diagram a1. Stickas mönstret bara över de aviga varven eller över alla varv? Alltså skall jag avsluta m 8 räta på de räta hela tiden eller. Om mönstret stickas över alla, vilket varv börjar det på? O vilken sida av mönstret är ytterkanten? Tacksam för snabbt svar!
19.12.2017 - 18:37DROPS Design answered:
Hej Catarina, A.1 stickas över alla varv men bara i ena sidan. Se även MÖNSTER-info: Se diag A.1 och A.2. Diag visar alla v i mönstret sett från rätsidan. Maskantalet i diag A.1 varierar från 8 till 10 m beroende av var man är i mönstret. På v 3 och 4 i diag stickas det förkortade v så här: Sticka 3 rm, vänd arb, strama tråden och sticka v ut. Det samma görs på v 9 och 10 i diag. Lycka till!
20.12.2017 - 11:28Anna wrote:
Hallo, ich habe den linken Handschuh problemlos nach Anleitung gestrickt. Nun habe ich den rechten Handschuh begonnen, weiß aber nicht genau wie man die Bordüre hier stricken soll, da die 3 Maschen die hin- und zurück gestrickt werden nicht mehr am Anfang der Reihe, sondern am Ende der nächsten liegen. Ich müsste also immer eine extra Reihe stricken, wodurch der Handschuh aber anders aussehen würde als der linke. Wie schaffe ich es, dass beide Handschuhe gleich werden?
11.11.2015 - 10:03DROPS Design answered:
An sich müssten die 3 M auch wieder am R-Beginn liegen, ich denke, Sie sollten das Muster beim rechten Handschuh mit der Hin-R beginnen statt mit der Rück-R, Sie stricken also einfach am Anfang eine R weniger. Ich hoffe, dass es so funktioniert.
19.11.2015 - 10:08