-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
= ljós gráfjólublár | |
= gráfjólublár | |
= affelling |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Winter Wonder |
||||||||||
|
||||||||||
Prjónaður galli fyrir börn með norrænu mynstri úr DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS Baby 21-3 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PERLUPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna): UMFERÐ 1: * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sl yfir br og br yfir sl. Endurtakið umf 2. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að prjóna 2 l í 1 l á undan og á eftir prjónamerki. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum með því að prjóna 4. og 5. l frá kanti slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir 5-5-5 (6-6) hnappagötum í hægri kanti að framan þegar stykkið mælist, frá þeim stað sem skálmar voru settar saman við: 1/3 mán: 6, 12, 17, 22, 27 cm. 6/9 mán: 6, 12, 18, 24, 30 cm. 12/18 mán: 7, 14, 21, 28, 34 cm. 2 ára: 7, 14, 20, 26, 32, 38 cm. 3/4 ára: 7, 14, 21, 28, 35, 42 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru skálmar prjónaðar í hring á sokkaprjóna, síðan eru skálmar settar á sama prjón og stykkið er prjónað áfram fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna SKÁLM: Fitjið upp 38-44-50 (54-60) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum gráfjólublár, prjónið 9-10-10 (10-10) cm PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf (= innanverðu á skálm) og látið prjónamerkið fylgja með upp úr. Skiptið nú yfir í litinn ljós gráfjólublár og prjónið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki – Lesið ÚTAUKNING að ofan. Endurtakið útaukningu með 2-3-4 (4-4) umf millibili alls 14-15-16 (18-19) sinnum = 66-74-82 (90-98) l. Þegar stykkið mælist 21-25-29 (33-37) cm fellið af 2 l hvoru megin við prjónamerki (= 4 l færri) = 62-70-78 (86-94)l. Geymið stykkið og prjónið hina skálmina á sama hátt. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið inn báðar skálmarnar á sama hringprjóna nr 2,5 með úrtöku á móti hvorri annarri = 124-140-156 (172-188) l. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN. Prjónið síðan áfram fram og til baka frá miðju að framan með litnum ljós gráfjólublár þannig (umf 1 = rétta): Fitjið upp 5 nýjar l á prjóninn, prjónið slétt yfir allar l og fitjið upp 5 nýjar l í lok umf = 134-150-166 (182-198) l. Setjið prjónamerki 36-40-44 (48-52) l inn frá hvorri hlið (= 62-70-78 (86-94) l á milli prjónamerkja á bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með upp úr. Prjónið síðan sléttprjón en þær 5 síðustu l í hvorri hlið við miðju að framan eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN til loka – sjá útskýringu að ofan (= kantur að framan). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6-6-7 (7-7) cm fellið af fyrir fyrsta HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 16-20-23 (26-29) cm prjónið næstu umf frá réttu mynsturteikning M.1 með 5 kantlykkjum að framan í hvorri hlið. ATH: Í síðustu umf í M.1 (= ranga) fellið af 4-4-4 (5-5) l hvoru megin við hvort prjónamerki fyrir handveg (= 8-8-8 (10-10) l felldar af í hvorri hlið) = 118-134-150 (162-178) l. Nú mælist stykkið ca 20-24-27 (30-33) cm frá þeim stað þar sem skálmar voru settar saman. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 38-40-42 (44-46) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum grá fjólublár, prjónið 5-5-5 (6-6) cm perluprjón. Setjið prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi) og látið prjónamerki fylgja með upp úr. Skiptið nú yfir í litinn ljós gráfjólublár og prjónið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkið í næstu umf. Endurtakið útaukningu með 2-3-3(4-5) umf millibili alls 7-8-9 (10-11) sinnum = 52-56-60 (64-68) l. Þegar stykkið mælist 10-13-15 (18-23) cm prjónið M.1 – Í síðustu umf í M.1 eru felldar af 4-4-4 (5-5) l hvoru megin við prjónamerki fyrir handveg (= 8-8-8 (10-10) l felldar af) = 44-48-52 (54-58) l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 206-230-254 (270-294) l. Prjónið nú fram og til baka í mynsturteikningu M.2 með 5 kantlykkjum við miðju að framan í garðaprjóni í hvorri hlið (umf 1 = rétta). ATH: Fellið af 20-20-24 (24-28) l jafnt yfir í umf sem er merkt með ör í M.2. MUNIÐ EFTIR AÐ HALDA ÁFRAM AÐ FELLA AF FYRIR HNAPPAGÖTUM Í HÆGRI KANTI AÐ FRAMAN! Þegar M.2 hefur verið prjónað eru 86-110-110 (126-126) l í umf og stykkið mælist ca 12-12-13 (14-15) cm frá þeim stað þar sem ermar voru settar í (þ.e.a. s. umf 1 í mynstri M.2). HÁLSMÁL: Prjónið síðan fram og til baka í perluprjóni með litnum gráfjólublár þannig: Prjónið slétt frá réttu jafnframt því sem fækkað er um 4-20-16 (30-26) l jafnt yfir í umf 1 (= rétta) = 82-90-94 (96-100) l. Prjónið nú 1 umf í perluprjóni. Í næstu umf frá réttu er fellt af fyrir síðasta hnappagatið í hægri kanti að framan. Haldið áfram í perluprjóni þar til kanturinn á hálsmáli mælist 2-2-2 (3-3) cm. Fellið laust af allar l. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum og á milli skálma, saumið tölur í. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (75)
Olga wrote:
Hallo, ich habe nun beide Beine auf der Rundnadel. Ist es richtig das man am Po keine Maschen mehr aufnimmt? Es muss dort ja eigentlich etwas mehr Platz sein als vorne. Oder habe ich etwas in der Anleitung falsch verstanden? Vielen Dank
04.09.2023 - 09:53DROPS Design answered:
Liebe Olga, bei diesem Modell wird es ja keine extra Maschen am Po zugenommen - das haben wir manchmal für Hosen aber selten für Anzüge. Viel Spaß beim stricken!
04.09.2023 - 13:20Catherine Rotte-Murray wrote:
How do I decrease the yoke of this baby pattern, is it k2tog? Or ssk? Or both? Thank you.
24.02.2023 - 16:47DROPS Design answered:
Dear Catherine, decrease with k2tog. Happy knitting!
26.02.2023 - 23:02Line wrote:
Håber inderligt at i får alle drops BabyAlpaca Silk farver tilbage. Det er uden tvivl mit favoritgarn. Kommer sådan til at savne især natur og hvid
18.10.2022 - 03:46DROPS Design answered:
Hei Line. DROPS BabyAlpaca Silk er nok dessverre på vei ut fra vårt sortiment. mvh DROPS Design
24.10.2022 - 14:39Line wrote:
Hej Drops Kan det virkelig passe at Drops BabyAlpaca Silk udgør? Det er ikke til at finde nogen steder overhovedet. Håber det kun er fordi I har svært ved at skaffe materialerne.
15.10.2022 - 16:49DROPS Design answered:
Hei Line. Dessverre så vil mange farger av DROPS BabyAlpaca Silk utgå. Når etterspørselen fra kunder ikke er stor nok eller råvarene er vanskelig å få tak i eller blir uoverkommelig dyre, utgår et garn. Men det fins fremdeles 5 farger som ikke er utgått enda. mvh DROPS Design
17.10.2022 - 14:41Louise wrote:
Moet je de voorbies ook in het telpatroon breien? Als ik dat doe dan kom ik niet uit met het telpatroon (kleinste maat). Moet ik dus eerst de voorbies breien in patroonkleur en dan beginnen met het telpatroon in contrastkleur?
29.09.2022 - 14:14DROPS Design answered:
Dag Louise,
Nee hoor, de voorbies brei je niet in patroon; deze brei je in de hoofdkleur in ribbelsteek.
02.10.2022 - 15:58Linda wrote:
Då man kommer till avigsidan i mönstret, ska man då sticka det från vänster till höger? Får det inte att stämma.
30.08.2022 - 15:14Lotta wrote:
Hei, teen haalaria koossa 12/18kk. Ohjeessa mainitaan että tarvitaan 6 nappia, mutta napinläpiä neulomaan kuitenkin vain 5? Onko yksi nappi varanappi vai mitä en nyt ymmärrä?
20.08.2022 - 21:09DROPS Design answered:
Hei, kuudes napinläpi tehdään pääntien reunukseen.
22.08.2022 - 17:20Karin Jarl Borg wrote:
Er det riktig at det ikke skal strikkes forhøyning bak? Har alltid gjort det på dresser/bukser til bleiebarn.
19.06.2022 - 14:47DROPS Design answered:
Hei Karin. På denne modellen er det ikke skrevet inn en forhøyning bak. Ønsker du å ha det, kan du fint strikke en, men vi har dessverre ikke mulighet til å skrive det inn/tilpasse hver enkelt str. til denne modellen. mvh DROPS Design
20.06.2022 - 14:17Eva Fjell wrote:
Hvor finner jeg diagrammene M1 og M2?
25.09.2021 - 22:31DROPS Design answered:
Hej Eva. M.1 hittar du vid sidan av måleskissen och M.2 under måleskissen. Mvh DROPS Design
27.09.2021 - 08:19Delphine wrote:
Bonjour, Je suis en train de tricoter cette combinaison, je viens de finir les 2 jambes. Par contre, comme une autre tricoteuse, je n'arrive tout simplement pas à les mettre sur la même aiguille. C'est tout simplement physiquement impossible. Ou alors je vais abimer le tricot. Comment faire alors? est-ce qu'il faut tout détricoter et recommencer en aller-retour plutôt qu'en rond? Je vous remercie pour votre aide.
01.07.2021 - 20:08DROPS Design answered:
Bonjour Delphine, vous tricotez les 2 jambes en allers et retours, vous pouvez continuer sur les aiguilles doubles pointes pendant quelques rangs si vous êtes plus à l'aise (en tournant bien à la fin de chaque rang), mais l'aiguille circulaire devrait vous permettre de pouvoir tricoter librement toutes les mailles (contrairement à une aiguille droite effectivement).. Bon tricot!
02.07.2021 - 07:21