DROPS Extra 0-756 |
|
|
|
Heklaður köttur úr DROPS BabyMerino.
DROPS Extra 0-756 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Þegar stykki er heklað í hring er byrjað með þessari aðferð til þess að sleppa við göt í miðjunni (í stað þess að gera loftlykkjuhring): Haldið í endann á þræðinum og snúið þræðinum einu sinni í hring utan um vinstri vísifingur til að úr verði hringur. Haldið í hringinn með vinstri þumli og löngutöng, þráðurinn liggur yfir vinstri vísifingur. Heklunálinni er stungið inn í hringinn, þræðinum er brugðið um heklunálina og dreginn upp úr hringnum, heklið 1 loftlykkju, heklið nú fastalykkju utan um galdrahringinn. Þegar sá fjöldi fastalykkja er kominn sem óskað er eftir, dragið í endann á þræðinum og herðið að. Festið enda á bakhlið. Haldið áfram að hekla í hring. HEKLAÐ Í HRING: Eftir síðustu fastalykkju í umferð, haldið áfram að næstu umferð með 1 fastalykkju í næstu fastalykkju (= fyrsta fastalykkja í næstu umferð). ATH! Merkið byrjun á umferð með því að setja merki á milli síðustu fastalykkju í umferð og fyrstu fastalykkju í næstu umferð. Látið merkið fylgja með upp úr. 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN: * Stingið heklunálinni niður í næstu lykkju, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. LITASKIPTI: Til að fá falleg litaskipti þegar skipt er um lit, heklið síðustu fastalykkju í umferð þannig: Stingið heklunálinni í síðustu lykkju, takið upp þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið í gegnum allar lykkjur á heklunálinni. Haldið áfram að næstu umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KÖTTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kötturinn er heklaður í stykkjum úr 1 þræði DROPS Baby Merino og saumaður saman í lokin. DROPS Glitter er notað í lokin við frágang. HÖFUÐ: Byrjið efst á höfði með því að gera GALDRAHRINGUR – lesið útskýringu að ofan – með DROPS Baby Merino í litnum kirsuber. UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur með heklunál 2,5 um galdrahringinn. Lesið HEKLAÐ Í HRING. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 4. * 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í næstu 3 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í næstu 4 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 7-10: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 36 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 11: * 1 fastalykkja í næstu 4 fastalykkjur, heklið síðan næstu 2 fastalykkjur saman *, - lesið 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN í útskýringu að ofan – endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 12: * 1 fastalykkja í næstu 3 fastalykkjur, heklið síðan næstu 2 fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 13: * 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, heklið síðan næstu 2 fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 14: * 1 fastalykkja í næstu 4 fastalykkjur, heklið síðan næstu 2 fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 15 fastalykkjur. Klippið þráðinn og festið. Fyllið höfuðið með vatti. BÚKUR: Byrjið neðst á búk með því að gera galdrahring með litnum kirsuber. UMFERÐ 1: Heklið 8 fastalykkjur um galdrahringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 32 fastalykkjur. UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í næstu 3 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 40 fastalykkjur. UMFERÐ 6-9: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 40 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 10: * 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, heklið síðan næstu 2 fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 11: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 12: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, heklið næstu 2 fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 20 fastalykkjur. UMFERÐ 13: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 20 fastalykkjur. Klippið þráðinn og haldið eftir 30 cm fyrir frágang. Fyllið búkinn með vatti. FÓTUR: Byrjið á að gera galdrahring með litnum rauður. UMFERÐ 1: Heklið 8 fastalykkjur um galdrahringinn. UMFERÐ 2: * 1 fastalykkja í næstu 3 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar = 10 fastalykkjur. UMFERÐ 3-4: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 10 fastalykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn kirsuber og heklið síðustu fastalykkju í umferð 4 – lesið LITASKIPTI! UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 10 fastalykkjur. UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í næstu 3 fastalykkjur, heklið síðan næstu 2 fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 7-9: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur í umferð. Klippið þráðinn og haldið eftir 20 cm fyrir frágang: Heklið annan fót á sama hátt. Fyllið fæturna með vatti. HÆGRI HENDI: Ermin er hekluð í hring og byrjað er á loftlykkjubandi efst á ermi. Heklið 5 loftlykkjur (4 loftlykkjur + 1 loftlykkja til að snúa við með) með litnum kirsuber. Snúið stykkinu og heklið til baka þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju frá annarri loftlykkju á heklunálinni = 4 fastalykkjur. Haldið áfram að hekla 3 fastalykkjur í hinni hliðinni á loftlykkjubandinu = 7 fastalykkjur alls. Heklið síðan hringinn með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju alls 28 fastalykkjur. ATH! Hér þarf ekki að nota merki. Klippið frá og haldið eftir 20 cm fyrir frágang (ekki fylla með vatti). VINSTRI HENDI: Heklið á sama hátt og hægri hendi nema heklið alls 35 fastalykkjur eftir umferð 1 (þessi er lengri en hægri ermi). Klippið þráðinn og haldið eftir 20 cm fyrir frágang (ekki fylla með vatti). EYRA: Byrjið á að gera galdrahring með litnum rauður. UMFERÐ 1: Heklið 3 fastalykkjur um galdrahringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 6 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 9 fastalykkjur. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 9 fastalykkjur. Klippið þráðinn og haldið eftir 20 cm fyrir frágang. Heklið annað eyra á sama hátt (ekki fylla með vatti). RÓFA: Byrjið á að gera galdrahring með litnum rauður. UMFERÐ 1: Heklið 4 fastalykkjur um galdrahringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 3-4: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur í umferð. Klippið þráðinn og haldið eftir 20 cm fyrir frágang (ekki fylla með vatti). FRÁGANGUR: Heklið loftlykkjuband ca 10 cm með heklunál 2,5 með 1 þræði DROPS Baby Merino í litnum rauður og 1 þræði í DROPS Glitter í litnum rauður. Leggið loftlykkjubandið saman tvöfalt og festið endana mitt ofan á höfði. Saumið eyrun á höfuðið. Saumið út augu með afgang af litnum svartur og nef og munn með DROPS Baby Merino í litnum rauður. Saumið höfuðið á búkinn með smáu fallegu spori. Saumið tvö spor efst á höndum með litnum rauður (= klær) DROPS Baby Merino. Saumið hendur og fætur á búkinn með smáu fallegu spori. Saumið rófuna á bakhlið á búk. Saumið út mynstur á magann – sjá mynd fyrir innblástur. Heklið annað loftlykkjuband ca 20 cm með 1 þræði DROPS Baby Merino í litnum rauður og 1 þræði í DROPS Glitter með litnum rauður. Hnýtið utan um hálsinn og gerið slaufu að aftan. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Chau wrote:
Kan I lave en video af denne opskrift? HØJRE ARM: Armen hækles rundt og startes med en lm-række øverste på armen. Hækl 5 lm (4 lm + 1 lm at vende med ) med cerise. Vend arb og hækl tilbage således: 1.OMG: Hækl 1 fm i hver lm fra 2.lm fra nålen = 4 fm. Fortsæt at hækle 3 fm på den anden side af lm-rækken = 7 fm totalt. Derefter hækles der rundt med 1 fm i hver fm totalt 28 fm. OBS: Du behøver ikke bruge mærketråd her.
11.02.2020 - 20:16DROPS Design answered:
Hej Chau, Det skriver vi på ønskelisten :)
18.02.2020 - 09:01Chau wrote:
Jeg har så svært ved at forstå opskriften på armene som "vend arb og hækl tilbage således: 1.OMG: Hækl 1 fm i hver lm fra 2.lm fra nålen = 4 fm. Fortsæt at hækle 3 fm på den anden side af lm-rækken = 7 fm totalt." Jeg ved ikke, hvad jeg skal gøre. Kan I forklare, hvad I mener med "Vend arb og hækl tilbage" efter man har lavet 5 lm (4 lm + 1 lm til at vende med)?
15.06.2019 - 11:28DROPS Design answered:
Hej, du hækler på begge sider af den lille luftmaskerække, altså først den ene vej, så den anden vej i samme luftmaskerække. Nu kan du hækle rundt (ovalt) i alle masker. God fornøjelse!
09.07.2019 - 12:03Lorna Gerhardt wrote:
Do you ship to the United States? And I think the little pink and red cat should be called "Lucky Cat" with the waving paw and red color (s)he is very good luck.
13.01.2019 - 12:26DROPS Design answered:
Dear Lorna. Here's a list of active DROPS stores in your country: https://www.garnstudio.com/findastore.php?id=17&cid=17
13.01.2019 - 18:12DROPS Design wrote:
Det var en feil i den svenske oppskriften. Det er nå rettet på.
14.09.2011 - 07:59Emmy wrote:
Kropp: VARV 3: *1 fm i nästa fm, 2 fm i nästa fm*. Upprepa *-* v runt = 24 fm. VARV 4: *1 fm i de nästföljande 12 fm, 2 fm i nästa fm*. Upprepa *-* v runt = 32 fm. Det är väl ganska omöjligt att få 32 fm där? Man kan bara göra den kombinationen 1 gång för sen har man bara 11 fm kvar från föregående varv kvar, och då har man bara plussat på 1 fm. Hjärnbry, snälla förklara! MVH Emmy
13.09.2011 - 22:43