DROPS Muskat uni colour 100% Bómull |
572.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Muskat uni colour 100% Bómull 572.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Crazy in Love |
|
|
|
Prjónaður kjóll úr DROPS Muskat með hekluðum ferningum. Stærð S-XXXL.
DROPS 113-1 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐARAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á UNDAN prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á EFTIR prjónamerki þannig: Takið 1 l eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING: Aukið er út með því að prjóna 2 l í 1 l. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp. Ferningarnir eru síðan heklaðir og saumaðir neðan á kjólinn og uppi við hálsmál. KJÓLL: Fitjið upp 216-216-252-252-288-288 l á hringprjóna nr 4,5 með litnum beige. Prjónið 1 umf br, 1 umf sl og 1 umf br. Skiptið yfir í litinn bleikur: Prjónið 1 umf sl og 1 umf br. Skiptið yfir í litinn rauður: Prjónið 1 umf sl og næstu umf eru prjónaðar þannig: * Prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* út umf. Skiptið yfir í litinn bleikur: Prjónið 1 umf sl og 1 umf br. Skiptið yfir í litinn beige: Prjónið 1 umf sl og 1 umf br, 5 cm sléttprjón og 1 umf br. Skiptið yfir í litinn rauður: Prjónið 1 umf sl og 1 umf br. Skiptið yfir í litinn gulur: Prjónið 1 umf sl og næstu umf eru prjónaðar þannig: * Prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* út umf. Skitið yfir í litinn rauður: Prjónið 1 umf sl og 1 umf br. Skiptið yfir í litinn beige: Prjónið 1 umf sl og 1 umf br. Prjónið nú 1 ums slétt – JAFNFRAMT er fækkað um 16-4-20-4-20-0 l jafnt yfir = 200-212-232-248-268-288 l. Haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18 cm eru sett 6 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 32-34-38-40-43-46 l, setjið PRJÓNAMERKI 1, prjónið 36-38-40-44-48-52 l setjið PRJÓNAMERKI 2, prjónið 32-34-38-40-43-46 l, setjið PRJÓNAMERKI 3 (= hlið), prjónið 32-34-38-40-43-46 l, setjið PRJÓNAMERKI 4, prjónið 36-38-40-44-48-52 l, setjið PRJÓNAMERKI 5, prjónið 32-34-38-40-43-46 l og setjið PRJÓANMERKI 6 (= hlið). Í næstu umf er fellt af 1 l hvoru megin við prjónamerki 3 og 6 (þ.e.a.a. þau sem eru í hliðum) – sjá ÚRTAKA. Endurtakið þessa úrtöku í 6. hverri umf alls 9 sinnum. JAFNFRAMT byrjar 5.-5.-5.-6.-6.-6. úrtaka og úrtaka við hinum 4 prjónamerkjum þannig: Fellið af á EFTIR prjónamerki 1 og 4 og á UNDAN prjónamerki 2 og 5 – sjá ÚRTAKA. Endurtakið þessar úrtökur í 6. hverri umf (þ.e.a.s. í sömu umf og fellt er af í hliðum) alls 5-5-5-4-4-4 sinnum. Eftir að úrtöku er lokið eru 144-156-176-196-216-236 l á prjóni. Takið frá prjónamerki 1, 2, 4 og 5. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið áfram í sléttprjón – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hliðum – sjá ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í 3. hverri umf alls 6 sinnum = 168-180-200-220-240-260 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm er prjónuð 1 umf br, 1 umf sl og 1 umf br. Skiptið yfir í litinn bleikur: Prjónið 1 umf sl og 1 umf br. Skiptið yfir í litinn rauður: Prjónið 1 umf sl og næstu umf þannig: * Prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* út umf. Skiptið yfir í litinn bleikur: Prjónið 1 umf sl og 1 umf br. Skiptið yfir í litinn beige: Prjónið 1 umf sl og 1 umf br. Í næstu umf er fellt af 36 miðju l að framan fyrir ferningum = 132-144-164-184-204-224 l. Prjónið nú fram og til baka. Haldið áfram í sléttprjóni og 3 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í hvorri hlið við miðju að framan. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 60-61-62-63-64-65 cm eru prjónaðar 4 umf garðaprjón yfir 10-10-12-14-16-18 l í hvorri hlið (þ.e.a.s. 5-5-6-7-8-9 l hvoru megin við bæði prjónamerkin). Þær l sem eftir eru, eru prjónaðar eins og áður. Fellið nú af miðju 4-4-6-8-10-12 við þessar l fyrir handveg í hvorri hlið. Hvert stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 22-25-29-33-37-41 l. Haldið áfram að prjóna sléttprjón með 3 l garðaprjón í hvorri hlið. JAFNFRAMT 3 cm eftir skiptinguna fyrir handveg er aukið út fyrir öxl – aukið út 1 l innan við 3 l garðaprjón – sjá ÚTAUKNING. Útauknu l eru prjónaðar með sléttprjóni. Endurtakið útaukningu í 4. – 4. – 6. – 6. – 6. – 6. hverri umf alls 6-5-3-3-3-3 = 28-30-32-36-40-44 l. Þegar stykkið mælist 75-77-79-81-83-85 cm er fellt af fyrir skáhallandi öxl þannig: Fellið af í byrjun hverrar umf sem prjónuð er frá öxl: Fellið af 7-7-8-9-10-11 l 3 sinnum, síðan þær 7-9-8-9-10-11 l sem eftir eru. Stykkið mælist nú ca 78-80-82-84-86-88 cm þar sem það er lengst. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 22-25-29-33-37-41 l. Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt. BAKSTYKKI: = 80-86-94-102-110-118 l. Aukið út fyrir öxl í hvorri hlið eins og á framstykki = 96-96-100-108-116-124 l. Þegar stykkið mælist 73-75-77-79-81-83 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir 42 l við miðju að aftan (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Fellið nú af miðju 36 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig með 3 l garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 75-77-79-81-83-85 cm er fellt af fyrir skáhallandi öxl á sama hátt og á framstykki. Eftir alla úrtöku mælist stykkið ca 78-80-82-84-86-88 cm þar sem það er lengst. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- FERNINGAR: HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta st í umf er skipt út fyrir 3 ll og hver umf endar á 1 kl í fyrstu l. LITARÖÐ Á FERNINGUM: Ferningarnir eru heklaðir í tveimur mismunandi litasamsetningum: FERNINGUR A: Uppfitjun + umf 1 og 2 = rauður. Umferð 3 = gulur. Umferð 4, 5 og 6 = bleikur. FERNINGUR B: Uppfitjun + umf 1 og 2 = gulur. Umferð 3 = bleikur. Umferð 4, 5 og 6 = rauður. KÚLA: Heklið 3 st sem eru heklaðir saman, þ.e.a.s. bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin á hverjum st þar til 3 st hafa verið heklaðir, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 4 lykkjurnar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- FERNINGUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. FERNINGUR: Heklið 4 ll með heklunál nr 4 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 6 fl í hringinn – sjá HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl. UMFERÐ 3: Heklið 2 st í hverja fl = 24 sl. UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í st, 3 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* = 12 ll-bogar. UMFERÐ 5: Í fyrsta ll-bogann er heklað frá [-]: * [ Heklið 1 KÚLA – sjá útskýringu að ofan, 2 ll, 1 kúla, 4 ll (= horn), 1 kúla, 2 ll, 1 kúla], 3 ll, hoppið yfir næsta ll-boga, 1 hálfur stuðull í fl, 3 ll, hoppið yfir næsta ll-boga *. Endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en í síðasta skiptið er endað eftir 3 ll með 1 kl efst á fyrstu kúlunni. UMFERÐ 6: * Heklið 2 fl í fyrsta 2-ll-boga, 6 fl í næsta 4-ll-boga (= horn), 2 fl í næsta 2- ll-boga, 3 fl í næsta 3-ll-boga, 3 fl í næsta l-ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Ferningurinn mælist ca 9 x 9 cm. Heklið 8-8-9-9-10-10 ferninga með hvorri litasamsetningunni = alls 16-16-18-18-20-20 ferningar. Saumið saman 12-12-14-14-16-16 ferninga saman í eina langa lengju með annan hvern ferning með hvorri litasamsetningu. Saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið saman lengjuna í einn hring. Saumið lengjuna neðst á kjólinn kant í kant með smáu spori. Síðustu fjóra ferningana á að staðsetja framan á kjólnum við hálsmál. Saumið þá saman í einn stórann ferning þar sem sömu litasamsetningarnar liggi ekki við hliðina á hvor annarri en skiljið eftir op á milli 2 efstu ferninga (= klauf/op við háls). Saumið saman ferninga við hálsmál. Saumið kant í kant með smáu spori. KANTUR MEÐ PICOT: Heklið kant með picot í litnum beige með heklunál nr 4 neðst niðri á kjólnum þannig: * Heklið 1 fl, 3 ll, 1 fl í fyrstu ll (= 1 picot), hoppið yfir 1 fl *, endurtakið frá *-*, endið á 1 kl í fyrstu fl. Heklið kant með picot á sama hátt með litnum bleikur í kringum op á handvegi. Heklið kant með picot með litnum bleikur í kringum hálsmál þannig: Byrjið við miðju að framan í vinstri hlið við klauf (séð þegar stykkið liggur fyrir framan þig) með 1 fl, heklið síðan 25 cm lausar ll, snúið við og heklið 1 kl til baka í hverja ll (= snúra). Heklið kant með picot í kringum allt hálsmálið á sama hátt og neðan á kjól. Endið á að hekla snúru alveg eins og áður. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (168)
Vibeke wrote:
Hej. Er det muligt at strikke ærmer i denne model? Kan I evt. henvise til en anden model, strikket i samme garn, hvor jeg kan bruge opskriften på ærmer? Det skal være en model der strikkes nedefra og op.
20.03.2023 - 08:54DROPS Design answered:
Hei Vibeke Ja, det er mulig å strikke ermer til denne kjolen. Bruk vår søkemotor og søk på f,eks Dame - Genser - Strikke - Garngruppe B - og under Bærestykke velg: Isydd erme. Da kommer det opp mange forslag. Velg den modellen du syns har de ermene du ønsker og les i oppskriften / se målene i målskissen om den vil passe med målene i kjolen du strikker. mvh DROPS Design
20.03.2023 - 14:11Anita wrote:
Vildt flot kjole. Jeg har dog et lille problem med de hæklede ruder? Synes opskriften er svær at tyde mht til dem. Er ellers en ret habil hækler, men disse ser helt forkerte ud hvis jeg følger opskriften. Er der noget jeg overser måske?
19.07.2018 - 21:23DROPS Design answered:
Hei Anita. Etter å ha gått gjennom denne oppskiriften fant vi en feil på omgang 5 som kan skape forvirring. Det som skal gjentas totalt 4 ganger er som følger: * [1 boble se forkl, 2 lm, 1 boble, 4 lm (= hjørne), 1 boble, 2 lm, 1 boble], 3 lm, hopp over neste lm-bue, 1 halvst i fm, 3 lm, hopp over enste lm-bue * Det som skal hekles i neste luftmaskebue er første del av neste repetisjon. Dette er nå rettet i oppskriften. Takk for beskjed og god fornøyelse.
27.07.2018 - 10:22Karin wrote:
Vielen Dank
23.03.2018 - 07:38Karin wrote:
Beim Rückenteil sollten für Größe M 96 Maschen verbleiben, es sind aber nur noch 86 Maschen ?
22.03.2018 - 21:15DROPS Design answered:
Liebe Karin, Sie haben Recht, es sind zunächst 86 Maschen, es wird dann wie bei den Vorderteilen zugenommen, bis 96 Maschen vorhanden sind. Die Angabe der Maschenzahl wurde beim Rückenteil ergänzt. Viel Spaß beim Weiterstricken!
22.03.2018 - 23:17Neumann Karin wrote:
" Die Abnahmen bei jeder 6. R. (d.h. bei der gleichen R. wie auf den Seiten) total 5-5-5-4-4-4 Mal wiederholen.Nach allen Abnahmen sind 144-156-176-196-216-236 M. übrig. Markierungsfaden 1, 2, 4 und 5 herausnehmen." ich habe nach den ganzen Abnahmen 20 Maschen weniger auf der Nadel als angegeben. lt. Anleitung werden insgesamt 72 Maschen abgenommen, aber nur 52 gerechnet, oder wird an den Seiten nicht mehr abgenommen?
08.03.2018 - 18:22DROPS Design answered:
Liebe Frau Neumann, in der 3 letzten Größen werden 52 M insgesamt abgenommen: 1 M auf beiden Seiten der 3. und 6. Markierung x 9= 9x4= 36 M an den Seiten sind abgenommen. Dazu werden 1 M nach 1. und 4. Markierungen + 1 M vor der 2. und der 5. Markierung 4 x abgenommen: 4 M x 4 = 16 M abgenommen. Es sind insgesamt 36+16= 52 M abgenommen: 248-268-288 - 52 = 196-216-236 M. Viel Spaß beim stricken!
09.03.2018 - 08:51Merje wrote:
Tere! Valmistan seda kaunist kleiti ning töö käigus jäi silma, et heegeldatud ruutude värvikombinatsioonis on ruudul B jäänud 3. ringi värvitoon (roosa) märkimata. :)
05.06.2017 - 22:21Sara wrote:
Vorrei eseguire questo bellissimo modello, ma con la gonna più ad A, cioè più svasata rispetto al modello. Mi potreste per favore aiutare a ricalcolare le misure (maglie e diminuzioni) nella taglia S? Grazie
25.04.2017 - 18:03DROPS Design answered:
Buonasera Sara, non possiamo fornire assistenza individuale per tutte le modifiche ai modelli, però si può rivolgere al suo rivenditore DROPS di fiducia per ricevere un'assistenza personalizzata. Buon lavoro!
25.04.2017 - 19:40Lena Arnryd wrote:
Om jag vill göra ärmar på denna, finns det någon klänning, top eller tunika som jag kan använda ärmmönstret så det passar?
20.10.2016 - 22:58DROPS Design answered:
Hej Lena. Jeg ville kigge paa andre kjoler i Muskat - eller en bluse i Muskat. Og en model der sidder nogenlunde stramt som den her (ikke oversized)
21.10.2016 - 15:15Christiane Beyer wrote:
Hallo, ich habe ein Problem mit den Häkelquadraten ab Rd 5… Das Zwischen den eckigen Klammern wird nur auf einen Lm-Bogen gehäkelt? Wie geht es dann nach der Klammer weiter? Die 3 Lm überspringen den nächsten Bogen vor dem halben stb? Verstehe die Aussage "in den ersten Lm-Bogen" danach nicht… Bitte Hilfe! LG Christiane
10.08.2016 - 14:57DROPS Design answered:
Liebe Christiane, vielen Dank für den Hinweis. In Runde 5 sind Übersetzungsfehler, die wir umgehend beheben werden und für die wir uns entschuldigen.
15.08.2016 - 08:04Catharina Andersson wrote:
Hej! Jag är en van virkare och ovan stickare men med denna är det tvärtom. Jag får inte till rutorna på varv 5. Menar nu att det ska gå plats 4 mushar på varje luftmaskbåge? Men om det är så kommer jag ju inte varvet runt på 4 upprepningar! Hjälp!!!
27.12.2015 - 11:21DROPS Design answered:
Hej Catharina, Jo i varje hörn virkas enligt klammen, och på varje sida upprepas *-*. Lycka till
25.01.2016 - 14:11