Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= slétt lykkja | |
= brugðin lykkja | |
= setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni | |
= setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni | |
= setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið stykkið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni | |
= setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni | |
= setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni | |
= kaðall: Kaðallinn er prjónaður yfir tvær lykkjur þannig: Prjónið aðra lykkjuna fyrst án þess að lyfta lykkju af prjóni og prjónið síðan fyrri lykkjuna. Lyftið síðan báðum lykkjum af vinstra prjóni. |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Comforting Cables |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma með laskalínu, köðlum og áferðamynstri. Stærð S-L.
DROPS 52-7 |
|||||||||||||||||||||||||
STROFF: * 2 l sl, 2 l br *. Endurtakið frá *- *. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri frá réttu. ---------------------------------------------------------- BOLUR: Tölur í () = Herra stærðir! Fitjið upp 188-192-200 (200-208) l á hringprjóna nr 3 með natur og prjónið stoff í 5 (6) cm – í síðustu umf er aukið út um 88-96-100 (100-108) l jafnt yfir = 276-288-300 (300-316) l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið næstu umf þannig (byrjið frá hlið): 26-29-32 (32-36) l af M.5, M.2, M.4, M.2, M.3, M.2, M.1 (= miðja að framan), M.2, M.3, M.2, M.4, M.2, 52-58-64 (64-72) l af M.5, M.2, M.4, M.2, M.3, M.2, M.1, M.2, M.3, M.2, M.4, M.2, 26-29-32 (32-36) l af M.5. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 34-36-37 (40-43) cm fellið af 4 l í hvorri hlið fyrir handveg = 134-140-146 (146-154) l á fram- og bakstykki. Geymið stykkið. ERMI: Fitjið upp 52-52-52 (56-56) l á sokkaprjóna nr 3 með natur og prjónið stroff í 5 (6) cm – í síðustu umf eru auknar út 22-22-22 (18-18) l jafnt yfir = 74-74-74 (74-74) l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið næstu umf þannig: M.4, M.2, M.3, M.2, M.1, M.2, M.3, M.2, M.4. Prjónið mynstur uppúr jafnframt því sem auknar eru út 2 l mitt undir ermi í 4. hverri umf 27-27-29 (29-29) sinnum = 128-128-132 (132-132) l – fyrstu 6 útauknu l eru prjónaðar í M.2 og þær útauknu l sem eftir eru, eru prjónaðar í M.5. Þegar stykkið mælist 50-49-49 (52-53) cm fellið af 4 l mitt undir ermi = 124-124-128 (128-128) l. Prjónið aðra ermi. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og bolur þar sem felldar voru af 4 l = 516-528-548 (548-564) l á prjóni. Setjið prjónamerki í skiptinguna á milli erma og bols = 4 prjónamerki. Haldið áfram með mynstur uppúr en fyrstu l hvoru megin við prjónamerkin eru prjónaðar með sléttprjóni (= 2 l sléttprjón í skiptingunni frá bol að ermi). LASKALÍNA: LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Fækkað er um 8 l í hverri umf (fækkið um 1 l hvoru megin við 2 l sléttprjón). Prjónið fyrst 5-6-8 (8-9) umf áður en úrtaka byrjar. Fækkið síðan um 1 l 51-52-53 (53-55) sinnum hvoru megin við prjónamerki í hverri umf. Fækkið l þannig: Á undan 2 l sléttprjón: Frá réttu: Prjónið 2 l sl saman Frá röngu: Lyftið næstu 2 l, setjið þær snúnar til baka á vinstri prjón (eina og eina), prjónið 2 l snúnar br saman. Á eftir 2 l sléttprjón: Frá réttu: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Frá röngu: Prjónið 2 l br saman. Þegar eftir eru 8 l er fellt af fyrir hálsmáli að framan JAFNFRAMT er haldið áfram með úrtöku fyrir laskalínu þannig: Setjið miðju 20-24-28 (28-32) l á þráð og síðan er prjónað til loka fram og til baka. Fellið síðan af við hálsmáli í annarri hverri umf 2 l 1 sinni, 1 l 2 sinnum. Eftir síðustu úrtöku mælist stykkið ca 54-57-59 (62-66) cm og eftir eru 80-80-88 (88-84) l á prjóni. Peysan mælist upp að öxlum = 60-62-64 (67-70) cm. Setjið l af þræði á prjóninn og prjónið upp 10 l hvoru megin við úrtöku í hálsi = 120-124-136 (136-136) l á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 1 umf slétt, 1 umf brugðið, 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út/fækkið lykkjum til 120-120-130 (130-140) l jafnt yfir í umf. Prjónið A.6 í 9 cm – endið á 1. eða 5. umf í mynstri, prjónið 1 umf slétt jafnframt sem l yfir hvern kaðal eru prjónaðar saman tvær og tvær. Prjónið síðan 1 umf br og fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman 4 l mitt undir ermi. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (71)
Hilde Eikefet wrote:
Skal strikke herre genser u-386. comforting cables. finner ikke mønster 6 i oppskriften Og hvor mange ganger skal hver rapport strikkes til midten av genseren..
25.02.2024 - 13:51DROPS Design answered:
Hej Hilde. M.6 strikker du til sidst. Mvh DROPS Design
27.02.2024 - 12:31Marianne wrote:
Men då betyder 53 ggr = 53 varv x 8. 548 minus 424 (53x8) = 124 maskor kvar. Sedan skall 28 m avmaskas för halsen. Och sist de 8 avmaskningarna. Är det korrekt?
06.12.2023 - 08:36DROPS Design answered:
Hej Marianne, ja det stämmer :)
06.12.2023 - 15:28Marianne N wrote:
Om jag stickar Herr Small/Medium och har 548 m på rundstickan. Ska jag då efter avmaskningen 53 ggr ha 495 maskor kvar? D v s jag maskar av under 6v (x8=48) plus 5 ytterligare avmaskningar med 1 m? = v båda sidor av märktrådar 2 ggr plus en m på bara en sida av märktråd. Jag tycker antalet avmaskingar borde vara jämnt delbart med 8(antal varv) och sedan med 2 (antal avmaskningar per märktråd). Ska jag efter 45 st avmaskningar maska av för halsen?
04.12.2023 - 18:09DROPS Design answered:
Hej Marianne, du avm 8 pr varv 53 ggr och maskar av till hals, så du skall bara ha 88 m kvar till halsen :)
06.12.2023 - 07:29Marianne wrote:
Hej! Betyder ”53 ggr” 53 varv…? /Marianne
02.12.2023 - 22:13DROPS Design answered:
Hei Marianne. 553 ggr = 53 gånger = Maska sedan av 1 m 51-52-53 (53-55) gånger på varje sida av märktrådarna på varje v. mvh DROPS Design
04.12.2023 - 10:13Marianne wrote:
Vad betyder ”Rätan” och ”Avigan” vid raglanavmaskningen? Med rundstickan stickas ju enbart på ”Rätan”….. Eller ska man ta en vanlig sticka och bara sticka 53 avmaskningsvarv och inte fortsätta sticka på bålen under avmaskningsvarven….?
02.12.2023 - 21:02DROPS Design answered:
Hei Marianne. Når det gjenstår 8 fellinger til raglan felles det til hals, og da strikkes det både fra retten og vrangen. mvh DROPS Design
04.12.2023 - 09:46Britt8 Wehlast wrote:
Hej drops Strikker herre str i 52-7 På ryg og forstykke skal jeg have 300 m. Efter rib. Men jeg kan ikke få rapporterne til at passe med mit maskeantal. Opskriften fortæller ikke hvor jeg skal bruge M6 Håber på svar. Venlig hilsen en flittig bruger af jeres opskrifter
29.11.2023 - 19:08DROPS Design answered:
Hej Britt, = 300 m. 32 m af M.5, M.2=6, M.4=6, M.2=6, M.3=9, M.2=6, M.1=20 (= midt foran), M.2=6, M.3=9, M.2=6, M.4=6, M.2=6, 64 m af M.5, M.2=6, M.4=6, M.2=6, M.3=9, M.2=6, M.1=20, M.2=6, M.3=9, M.2=6, M.4=6, M.2=6, 32 m af M.5. 32+6+6+6+9+6+20+6+9+6+6+6+64+6+6+6+9+6+20+6+9+6+6+6+32=300m M.6 strikker du til sidst :)
30.11.2023 - 10:38Eira wrote:
"When 8 decreases remain bind off for the neck in the front at the same time with the raglan shaping": Does 8 decreases mean 8 rows of decreases? As I understand it, the neck binding off will only take 6 alternating rows. What/where should the remaining 2 rows of decreases be? Many thanks!
27.11.2023 - 12:32DROPS Design answered:
Dear Eira, this means when you have to decrease 8 times left before last decrease for raglan. You then shape neck on front piece and continue raglan decreases until they are all done. Happy knitting!
27.11.2023 - 15:54Delphine wrote:
Merci pour votre retour rapide, mais la partie à laquelle je fais référence n'est pas l'encolure, cette partie là est très claire.J'ai besoin d'aide pour la construction du raglan dès le départ, donc à priori en rond, et pour laquelle cependant il est question d'endroit et d'envers.
20.11.2023 - 11:41DROPS Design answered:
Bonjour Delphine, car on va diminuer pour le raglan d'abord tous les tours (= tant que l'on va tricoter en rond), puis tous les rangs (quand on va former l'encolure). Bon tricot!
20.11.2023 - 16:18Delphine wrote:
Il est indiqué pour le raglan : "sur l'endroit : 2 m ens à l'end, sur l'envers : glisser 2 m, les reprendre torse sur l'aiguille de gauche 1 par 1 puis les tricoter torse ens à l'envers /Après les 2 m jersey : sur l'endroit : glisser 1 m à l'end, 1 m end, passer la m glissée par dessus la m tricotée, sur l'envers : 2 m ens à l'envers." Mais c'est du tricot en rond, donc uniquement à l'endroit. Pouvez vous m'expliquer cette partie ? Merci
20.11.2023 - 09:08DROPS Design answered:
Bonjour Delphine, il va arriver un moment où vous allez devoir mettre en attente les mailles de l'encolure devant, vous devrez alors continuer l'ouvrage en allers et retours à partir de l'encolure en rabattant en même temps des mailes pour l'encolure au début de chaque rang (sur l'endroit et sur l'envers pour chacun des côtés), et vous devrez alors diminuer pour le raglan sur l'endroit et sur l'envers. Bon tricot!
20.11.2023 - 11:33Jetrin wrote:
Jag fattar inte hur ni tänkte att ärmens ökning skulle fungera, snälla specificera instruktionerna maska för maska
18.10.2023 - 21:36DROPS Design answered:
He Jetrin. Vi har ikke mulighet til å spesifisere maske for maske og størrelse for størrelse. Det vil bli en oppskrift på mange, mange tusen ord. Skriv heller hva du har problemer med/hvor nøyaktig i oppskriften du er og hvilken str. du strikker, så skal vi hjelpe så godt vi kan. mvh DROPS Design
23.10.2023 - 14:26