Proserpina Dress |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll með stuttum ermum úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og I-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-36 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 118 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 32) = 3,7. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um aðsnið á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju á undan 1. og 3. merkiþræði og á eftir 2. og 4. merkiþræði eins og útskýrt er að neðan. AUKIÐ ÚT Á UNDAN MERKIÞRÆÐI ÞANNIG: Prjónið fram að merkiþræði, prjónið síðan 1 lykkju slétt í lykkju sem liggur 2 umferðum neðan við ystu lykkju á hægri prjóni . AUKIÐ ÚT Á EFTIR MERKIÞRÆÐI ÞANNIG: Prjónið 1 lykkjur slétt í lykkjubogann sem liggur utan um fyrstu lykkju á vinstri prjóni (þ.e.a.s. í lykkju frá fyrri umferð). ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út á sama hátt og áður á eftir merki eins og útskýrt er í ÚTAUKNING-2, en aukið út til skiptis á undan og á eftir merki. Þ.e.a.s. aukið einungis út um 1 lykkju í hvorri hlið og þetta er gert til skiptis á undan / eftir merki (ekki hvoru megin við merki). ÚRTAKA-1 (á við um aðsnið á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju á eftir 1. og 3. merkiþræði og á undan 2. og 4. merkiþræði eins og útskýrt er að neðan. FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR MERKIÞRÆÐI ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN MERKIÞRÆÐI ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman. I-CORD AFFELLING: Í lok umferðar og eftir að síðasta lykkjan í umferð hefur verið prjónuð: Fitjið upp 3 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu. Lyftið 3 nýju lykkjunum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjóna á með sitji 3 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndist lítill hólkur). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. UMFERÐ 2 (rétta): Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið UMFERÐ 2 þar til 3 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið lítið spor sem bindur saman byrjun og lok á I-cord. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Hálsmál og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og er prjónað ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 118-122-126-130-134-138 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Muskat. Skiptið yfir á hringprjón 3 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 4 umferðir sléttprjón (rúllukantur). Síðan er prjónað stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (mitt að aftan). Berustykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 32-34-36-40-44-46 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 = 150-156-162-170-178-184 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar berustykkið mælist 3-4-5-5-6-7 cm frá prjónamerki, aukið út 34-36-38-46-54-64 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 184-192-200-216-232-248 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til berustykkið mælist 4-5-6-6-7-8 cm frá merki. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, A.1 er prjónað alls 23-24-25-27-29-31 sinnum hringinn á berustykki. Haldið svona áfram með mynstur, samtímis í hverri umferð merktri með ör í A.1, eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING-1. Ör-1: Aukið út 32-39-46-51-56-58 lykkjur jafnt yfir = 216-231-246-267-288-306 lykkjur. Ör-2: Aukið út 34-39-44-53-62-64 lykkjur jafnt yfir = 250-270-290-320-350-370 lykkjur. Ör-3: Aukið út 26-30-38-44-38-50 lykkjur jafnt yfir = 276-300-328-364-388-420 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist berustykkið ca 15-16-17-17-20-21 cm frá merki. Prjónið síðan sléttprjón þar til berustykkið mælist 17-18-20-21-23-25 cm frá merki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 40-44-48-53-58-64 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 80-88-96-106-116-128 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 40-44-48-53-58-64 lykkjur í sléttprjóni (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 176-192-212-232-256-280 lykkjur. Setjið 1 merki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Að auki eru settir 4 merkiþræðir í stykki þannig (byrjið við annað merkið): Teljið 16-19-23-28-33-38 lykkjur. Setjið 1. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 56-58-60-60-62-64 lykkjur, setjið 2. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 32-38-46-56-66-76 lykkjur, setjið 3. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 56-58-60-60-62-64 lykkjur, setjið 4. merkiþráðinn á undan næstu lykkju. Það eru 16-19-23-28-33-38 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþræði. Látið merkin og merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu – það á að nota merkin og merkiþræðina þegar fækka á lykkjum og fjölga. Byrjið umferð við merki í annarri hliðinni á stykki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3-3-3-4-4-4 cm frá skiptingunni, fækkið um 1 lykkju á eftir 1. og 3. merkiþræði og á undan 2. og 4. merkiþræði – lesið ÚRTAKA-1 (4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverjum 2½-2½-3-4-4-4 cm alls 4-4-4-3-3-3 sinnum = 160-176-196-220-244-268 lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-16-17-17-18-18 cm frá skiptingunni, aukið út um 1 lykkju á undan 1. og 3. merkiþræði og á eftir 2. og 4. merkiþræði – lesið ÚTAUKNING-2 (4 lykkjur fleiri). Að auki er aukið út um 1 lykkju við 2 merkin í hliðum – lesið ÚTAUKNING-3 (2 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út alls 6 sinnum í umferð. Aukið út svona í hverjum 2-2-2-2½-2-2½ cm alls 18-19-19-18-19-18 sinnum = 268-290-310-328-358-376 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist 56-58-59-61-60-61 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-0-0-2-2-4 lykkjur jafnt yfir = 270-290-310-330-360-380 lykkjur. Nú er prjónað A.2 alls 27-29-31-33-36-38 sinnum hringinn á fram- og bakstykki. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-4 er aukið út um 0-1-2-0-0-1 lykkjur jafnt yfir = 270-291-312-330-360-381 lykkjur. Fellið af. Kjólinn mælist ca 86-89-92-95-98-101 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 58-62-68-76-78-82 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-70-78-86-90-94 lykkjur. Setjið 1 merki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi. Byrjið umferð við merki og prjónið sléttprjón hringinn í 7-6-5-4-4-3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-8-6-6-2-0 lykkjur jafnt yfir = 58-62-72-80-88-94 lykkjur. Fellið af með I-CORD – lesið útskýringu að ofan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (14)
Fiorella wrote:
Buongiorno Sto eseguendo questo vestito e volevo segnalarvi un errore nella descrizione. "quando il corpo misura 16 cm dalla divisione, DIMINUIRE (invece ci sono gli aumenti)
22.04.2024 - 12:20Anna wrote:
Varför syns inte diagrammen i det svenska mönstret?
13.04.2024 - 18:20DROPS Design answered:
Hei Anna. Her manglet det et ord i diagramteksten, så derfor vistes ikke diagrammene. Det er nå ordnet. Tusen takk for at du informerte oss :) mvh DROPS Design
15.04.2024 - 13:48Fredrik wrote:
Hvordan er denne i S på noen som vanligvis bruker XS? Er den liten i størrelsen?
24.03.2024 - 18:59DROPS Design answered:
Hej Fredrik, du finder måleskitsen på kjolen nederst i opskriften. Hvis du overholder strikkefastheden får du målene i måleskitsen :)
03.04.2024 - 15:26Fiorella wrote:
Buongiorno vorrei realizzare questo vestito per mia figlia, mi piace molto anche il colore, per non sbagliare vorrei chiedervi una conferma : nella descrizione vedo n. 81 gesso ma io trovo che n. 81 corrisponde a argilla, è questo? Grazie
20.03.2024 - 08:21DROPS Design answered:
Buonasera Fiorella, abbiamo corretto il nome del colore: è il colore 81 di Muskat, argilla. Buon lavoro!
20.03.2024 - 18:28Karin wrote:
Scent of roses
21.01.2024 - 18:26Fernanda Kazic wrote:
Smultrondress!
20.01.2024 - 22:13Inga Heafey wrote:
Rambling Rose,
20.01.2024 - 18:53Sara wrote:
Cherry dress
20.01.2024 - 10:08Knitter wrote:
Summer flowers
19.01.2024 - 21:47Mariana wrote:
Rose hip
19.01.2024 - 20:01