Spring Snowflake |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air eða DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu, gatamynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 249-4 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 (= ermi) og A.2 (= framstykki og bakstykki). Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). Jafnóðum sem lykkjum er aukið út fyrir laskalínu, eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í mynstur eins og útskýrt er í A.1 og A.2, þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til nægilega margar lykkjur eru í heilt gatamynstur. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar aukið er út, eru prjónaðar í sléttprjóni. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 1 lykkju sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (það er 1 merki í hverri af þessum lykkjum = 4 merki. Síðan í mynstri eru þessar 4 lykkjur með merki í kallaðar laskalykkjur). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt – svo það myndist gat. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 2 lykkjur í umferð með því að fækka um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki í þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt (merkið situr í miðju af þessum 3 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað ofan frá og niður frá hægri öxl að aftan og allt stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Prjónaður er upp tvöfaldur kantur í hálsmáli áður en berustykkið er prjónað. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Fram- og bakstykki skiptist fyrir klauf í hvorri hlið, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 90-94-94-102-106-112 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Air eða DROPS Paris. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 (lykkjur eru fitjaðar upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið sléttprjón hringinn í 3 cm. Í næstu umferð er prjónaður kantur í hálsmáli (= uppábrot) þannig: Prjónið (2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn) umferðina hringinn. Síðan er prjónað sléttprjón hringinn þar til kantur í hálsmáli mælist 7 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er kanturinn í hálsmáli brotinn inn að röngu, þannig að kanturinn verði tvöfaldur. Síðan er næsta umferð prjónuð í sléttprjóni eins og áður jafnframt því sem 4. hver lykkja í umferð er prjónuð saman með 4. hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli sem mælist ca 3 cm. Setjið 1 merkiþráð í þessa umferð, berustykkið er nú mælt frá þessum merkiþræði. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 6-2-2-14-10-4 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 96-96-96-116-116-116 lykkjur. Setjið 4 merki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Merkin eru sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar og merkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 15-15-15-17-17-17 lykkjur (= ermi), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 31-31-31-39-39-39 lykkjur (= framstykki), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 15-15-15-17-17-17 lykkjur (= ermi), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 31-31-31-39-39-39 lykkjur (= bakstykki), setjið 4. merki í síðustu lykkju. Nú á að prjóna MYNSTUR jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA, fyrsta umferð er prjónuð þannig: Aukið út 1 lykkju fyrir LASKALÍNA á eftir 4. merki – lesið útskýringu að ofan, prjónið MYNSTUR A.1 – lesið útskýringu að ofan (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 1. merki, prjónið A.2A, prjónið A.2B alls 2-2-2-3-3-3 sinnum, prjónið A.2C (= framstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 2. merki, prjónið A.1 (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 3. merki, prjónið A.2A, prjónið A.2B alls 2-2-2-3-3-3 sinnum, prjónið A.2C (= bakstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu á undan 4. merki, prjónið lykkju með 4. merki í sléttprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkur í annarri hverri umferð alls 16-16-18-22-20-12 sinnum (ásamt útaukningu eins og útskýrt er í fyrstu umferð) = 224-224-240-292-276-212 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið síðan áfram með útaukningu þannig: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð á framstykki og bakstykki, en á ermum er nú einungis aukið út í 4. hverri umferð (= til skiptis 4 og 8 lykkjur fleiri). Endurtakið þessa útaukningu alls 4-8-10-6-8-20 sinnum á framstykki og bakstykki og 2-4-5-3-4-10 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 248-272-300-328-324-332 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18-22-25-25-25-29 cm frá merkiþræði eftir kant í hálsmáli. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 20-22-25-25-26-29 cm frá merkiþræði. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Setjið fyrstu 51-55-61-67-65-61 lykkjur á þræði fyrir ermi (= lykkjur á milli 4. og 1. merkis), fitjið upp 7-7-7-7-15-23 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 73-81-89-97-97-105 lykkjur í mynstri eins og áður (= framstykki), setjið næstu 51-55-61-67-65-61 lykkjur á þráð fyrir ermi (= lykkjur á milli 2. og 3. merkis), fitjið upp 7-7-7-7-15-23 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 73-81-89-97-97-105 lykkjur í mynstri eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 160-176-192-208-224-256 lykkjur. Setjið 1 merki í hvora hlið á fram- og bakstykki, í miðju 7-7-7-7-15-23 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið merkin fylgja áfram með í stykkinu, merkin eru notuð þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón fram að fyrra merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Haldið áfram með A.2 hringinn yfir allar lykkjur – passið uppá að mynstrið haldi rétt áfram yfir lykkjur frá berustykki. Prjónið þar til stykkið mælist ca 22-22-21-21-22-21 cm frá skiptingunni – stillið af að prjónaðar hafa verið minnst 5 umferðir sléttprjón eftir umferð með gatamynstri. Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið við hvort merki, framstykkið og bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 80-88-96-104-112-128 lykkjur, síðan er prjónað fram og til baka á prjóninn. Í fyrstu umferð (= rétta), byrjar stroff jafnframt því sem aukið er út um 35-37-41-45-47-55 lykkjur jafnt yfir í umferð = 115-125-137-149-159-183 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið 1 lykkju GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning), þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 8 cm, fellið af með ítalskri affellingu, eða fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki. ERMAR: Setjið 51-55-61-67-65-61 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 7-7-7-7-15-23 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-62-68-74-80-84 lykkjur. Setjið 1 merki í miðju á 7-7-7-7-15-23 nýjum lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við merki og haldið áfram með A.1 hringinn á erminni – passið uppá að mynstrið haldi rétt áfram yfir lykkjur frá berustykki, lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri mitt undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 0-0-0-5-6-7 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í hverjum 2 cm alls 4-5-8-5-6-6 sinnum = 50-52-52-54-56-58 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist ca 39-38-36-36-35-32 cm frá skiptingunni – stillið af að prjónaðar séu nokkrar umferðir sléttprjón eftir umferð með gati. Það eru eftir ca 6-6-6-7-7-7 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd á undan stroffi. Í næstu umferð byrjar stroffið jafnframt því sem aukið er út um 8-8-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð = 58-60-62-64-66-68 lykkjur – prjónað er þannig: Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm, fellið af með ítalskri affellingu eða fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 45-44-42-43-42-39 cm frá skiptingunni. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (36)
Annette Fischer wrote:
Hej Er det muligt at strikke blusen i en bomuldsgarn og i så fald, hvilken er bedst:) Mvh Annette
11.04.2024 - 09:36DROPS Design answered:
Hei Annette. Du kan bruke DROPS Paris (som også står i oppskriften), ellers så kan du bruke 2 tråder DROPS Safran. Bruk vår garnkalkulator for å regne ut hvor mye garn du da må bruke. mvh DROPS Design
15.04.2024 - 10:16Iris wrote:
Bedankt, weet nu hoe ik verder kan breien.
06.03.2024 - 13:03Iris wrote:
Ik heb nog even een aanvulling op mijn vraag hieronder, Ik ben nu bij het stukje(Ga verder met meerderen als volgd )maat s . Moet ik als ik bij de naald van de gaatjes breien ben, ook weer van rechts helemaal naar links het patroon breien, en als ik dan nog steken over heb nog een keer weer van links naar recht breien tot aan de raglan. Want als ik dat doe dan komen op het einde richting de raglan de omslagen niet goed in het midden van de voorgaande gaatjes die ik heb gebreid. V.g iris
02.03.2024 - 13:58Iris wrote:
Hallo, ik heb nog een vraag over over het telpatroon. Als ik het hele patroon in de hoogte heb gebreid, begin ik dan weer onderaan opnieuw. En bij het breien van het lijf staat ga verder met A2, zijn dat de 3 kolommen samen?. V.g iris
01.03.2024 - 11:12DROPS Design answered:
Dag Iris,
Ja, het telpatroon herhaalt zich inderdaad in de hoogte, dus je begint gewoon opnieuw onderaan. Als je op het lijf bent zet je het gecreëerde patroon voort, maar je hebt geen meerderingen meer door de raglan, dus komt het neer op het steeds herhalen van A.2B.
05.03.2024 - 23:01Lali wrote:
Ciao, ho appena finito di lavorare questo modello. È venuto benissimo, spiegazioni perfette! Vi ringrazio di cuore, complimenti!
20.02.2024 - 17:44Iris wrote:
Hallo drops team. Ik brei maat s. Ben nu bezig met de pas 69 steken, heb mijn markeer draden geplaatst en ben in patroon gaan breien en heb 1 keer gemeerderd voor raglan. Maar ik kom er nu niet meer uit. Mijn vraag is: als ik in patroon brei moet ik mijn meerderingen voor de raglan ook meetellen in het patroon( dus de omslagen die ik brei voor raglan) of begint het patroon na de meerderingen voor de raglan. V.g iris
19.02.2024 - 14:03DROPS Design answered:
Dag Iris,
Je begint steeds op dezelfde plek met het patroon, dus je meerdert 1 steek voor de raglan aan elke kant van de markeerdraad en daarna brei je in patroon. In het patroon is rekening gehouden met de meerderingen. Gelijk na de meerdering begint het patroon dus.
21.02.2024 - 21:13Susana Araujo wrote:
Thank you for responding to my previous question. And what happens to those stitches? Are worked in stockinette stich all the time (knit)? Shall I move the marker up to the stitch just knitted in every row? I am sorry but I am a bit confused can't find mention in the pattern about what is done with the markers.
19.02.2024 - 09:21DROPS Design answered:
Dear Mrs Auraujo, the 4 stitches with each a marker are worked in stocking stitch, ie these stitches are knitted every round, you can move markers up to these sts on every round. Happy knitting!
19.02.2024 - 15:13Veronique wrote:
Bonjour, j'ai déjà recommencé 2 fois et mon col ne ressemble absolument pas à celui de votre photo. Le mien ressemble plus à un col roulé... Savez vous ou je pourrais me tromper ? Merci
19.02.2024 - 03:41DROPS Design answered:
Bonjour Véronique, vous devez procéder comme dans cette vidéo, sauf que vous allez tricoter 3 cm jersey avant le tour (2 m ens à l'end, 1 jeté), et quand votre ouvrage mesure 7 cm, pliez en double sur l'envers et toutes les 4 mailles, relevez 1 maille du montage pour la tricoter avec la maille suivante sur l'aiguille gauche. Dans la vidéo, on coud à la fin, ici, pour éviter la couture, on tricote les mailles ensemble. Bon tricot!
19.02.2024 - 09:46Susana Araujo wrote:
I am knitting the smaller size. On the first line for the Yoke says to increase 6 times so we have 96 stitches total but when working the first line of raglan with pattern the count is only for 92 stitches. Work 2X sleeves (Pat 1) = 30 stitches, + work A.2A 2X total = 12 + work A2.B 4X total = 32 + A.2C another 2X in total = 18. The final count (excluding the increases just done) is 92 stitches. What happened to the other 4 stitches from the 96?
19.02.2024 - 01:49DROPS Design answered:
Hi Susana, The 4 missing stitches are your marker-stitches - the markers are inserted in the next stitch (not between stitches) when you are counting out for the different pieces and inserting the markers. Happy knitting!
19.02.2024 - 06:40Charmaine wrote:
Ik brei de trui in maat L. Ik heb nu 240 st en moet meerderen tot 300 st. Dat zijn 60 st, maar de meerderingen bestaan uit 10 x 4st (voor- en achterpand) en 5 x 8 st. ( mouwen). Dat is samen 80 st. Wat klopt er niet?
18.02.2024 - 11:31DROPS Design answered:
Dag Charmaine,
Je meerdert 10x4 steken op de panden en 5x4 (niet 8) steken op de mouwen, waarmee je op 60 meerderingen in totaal komt.
28.02.2024 - 20:58