Irish Hill |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Hekluð peysa fyrir herra úr DROPS Air. Stykkið er heklað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 246-5 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR-1: Í byrjun á hverri umferð með hálfum stuðlum / stuðlum eru heklaðar 2 / 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta hálfa stuðul / stuðul. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 2. / 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. HEKLLEIÐBEININGAR-2 (heklað í hring): Á fram- og bakstykki og ermum á að hekla í hring og án þess að enda umferðina, byrjun umferðar færist því til eftir hverja umferð sem er hekluð. Umferð 1 endar ekki á venjulegan máta, en 1. stuðull í byrjun á umferð 2 er heklaður í 1. fastalykkju frá umferð 1. Síðan er heklað í hring með 1 stuðul í hvern stuðul. Á ermi er settur merkiþráður mitt undir ermi, merkiþráðurinn er settur á milli 2 lykkja. Á fram- og bakstykki er settur merkiþráður í hlið þar sem umferðin byrjaði. Látið merkirþáðinn fylgja með lóðrétt mitt undir ermi / í hlið á fram- og bakstykki. Leggið stykkið flatt á meðan unnið er í stykkinu og athugið hvort merkiþáðurinn sé á réttum stað. Í síðustu umferð neðst á fram- og bakstykki og ermum er heklað þannig til að koma í veg fyrir að það myndist hak í lok umferðar: Heklið þar til 2 stuðlar eru eftir í umferð, heklið 1 hálfan stuðul í næsta stuðul, heklið 1 fastalykkju í síðasta stuðul og endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. stuðul í byrjun umferðar. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu með því að hekla fleiri stuðla í fyrsta / síðasta stuðul í A.1. Útauknar lykkjur eru heklaðar áfram í stuðla. ÚRTAKA-1 (á við um ermar): Merkiþráðurinn situr mitt á milli 2 stuðla undir ermi, þegar fækka á lykkjum er lykkjum fækkað hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Heklið þar til 3 stuðlar eru að merkiþræði, heklið 2 stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 lykkja færri). Heklið 1 stuðul í hvorn af 2 næstu stuðlum (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 stuðla) og endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. ÚRTAKA-2 (á við um kanti í hálsmáli): Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman í 1 stuðul þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er heklað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki og ermar er heklað í hring hvert fyrir sig. Í lokin er heklaður kantur í hálsmáli í hring. BERUSTYKKI: Notið heklunál 5 og DROPS Air. Lesið LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan. Heklið 72-76-78-82-86-90 aðeins lausar loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 1 hálfan stuðul í hverja loftlykkju = 72-76-78-82-86-90 hálfir stuðlar. Nú er heklað í hring þannig: Heklið stuðla yfir fyrstu 8-9-9-10-11-13 lykkjur (ca hálft bakstykki), heklið A.1 yfir næstu 2 lykkjur (laskalína), heklið stuðla yfir næstu 16 lykkjur (ermi), A.1 yfir næstu 2 lykkjur (laskalína), heklið stuðla yfir næstu 16-18-19-21-23-26 lykkjur (framstykki), A.1 yfir næstu 2 lykkjur (laskalína), heklið stuðla yfir næstu 16 lykkjur (ermi), A.1 yfir næstu 2 lykkjur (laskalína), heklið stuðla yfir síðustu 8-9-10-11-12-13 lykkjur (hálft bakstykki). Setjið eitt prjónamerki í umferð (mitt að framan), berustykkið er nú mælt héðan. Haldið áfram hringinn með stuðlum og A.1, jafnframt því sem í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan og heklið þannig: Heklið fram að A.1 (á milli bakstykkis og ermi), heklið 3 stuðla í fyrsta stuðul og heklið 2 stuðla í síðasta stuðul í A.1, heklið eins og áður fram að næsta A.1 (á milli ermi og framstykkis), heklið 2 stuðla í fyrsta stuðul og 3 stuðla í síðasta stuðul í A.1, heklið eins og áður fram að næsta A.1 (á milli framstykkis og ermi), heklið 3 stuðla í fyrsta stuðul og 2 stuðla í síðasta stuðul í A.1, heklið eins og áður fram að næsta A.1 (á milli ermi og bakstykkis), heklið 2 stuðla í fyrsta stuðul og 3 stuðla í síðasta stuðul í A.1, heklið eins og áður út umferðina. Það hafa verið auknar út 4 lykkjur á hvoru framstykki / bakstykki og 2 lykkjur á hvorri ermi, alls 12 lykkjur í umferð. Endurtakið þessa útaukningu í hverri umferð alls 6-6-5-7-8-9 sinnum = 144-148-138-166-182-200 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Nú á einungis að auka út um 2 lykkjur á hvoru framstykki / bakstykki, útaukning á ermum heldur áfram eins og áður. Þ.e.a.s. það er heklað þannig: Heklið fram að A.1 (á milli bakstykkis og ermi), heklið 2 stuðla í fyrsta stuðul og heklið 2 stuðla í síðasta stuðul í A.1, heklið eins og áður fram að næsta A.1 (á milli ermi og framstykkis), heklið 2 stuðla í fyrsta stuðul og 2 stuðla í síðasta stuðul í A.1, heklið eins og áður fram að næsta A.1 (á milli framstykkis og ermi), heklið 2 stuðla í fyrsta stuðul og 2 stuðla í síðasta stuðul í A.1, heklið eins og áður fram að næsta A.1 (á milli ermi og bakstykkis), heklið 2 stuðla í fyrsta stuðul og 2 stuðla í síðasta stuðul í A.1, heklið eins og áður út umferðina. Það hafa verið auknar út 2 lykkjur á hvoru framstykki / bakstykki / ermi, alls 8 lykkjur í umferð. Aukið svona út í hverri umferð 7-10-12-12-11-12 sinnum, það hefur verið aukið út alls 13-16-17-19-19-21 sinnum á framstykki / bakstykki og ermum = 200-228-234-262-270-296 stuðlar. Útaukning á ermum er nú lokið. Haldið áfram að auka út á sama hátt á framstykki / bakstykki 2-0-2-0-1-1 sinnum til viðbótar. Það hefur verið aukið út alls 15-16-19-19-20-22 sinnum á framstykki / bakstykki og alls 13-16-17-19-19-21 sinnum á ermum. Það eru 208-228-242-262-274-300 stuðlar. Heklið síðan eins og áður án útaukninga þar til stykkið mælist 19-21-22-24-26-29 cm frá prjónamerki. Festið síðustu lykkjuna á heklunálinni með prjónamerki eða þræði þannig að stykkið rakni ekki upp – nú á að nota heklunálina til að hekla saman loftlykkjulykkjur í hverju A.1. Heklið saman loftlykkjulykkjur í hverju A.1 saman þannig: Notið heklunálina og stingið heklunálinni í 1. loftlykkjulykkju efst við hálsmál frá réttu, dragið 2. loftlykkjulykkju í gegnum 1. loftlykkjulykkju, stingið heklunálinni í 2. loftlykkjulykkju og dragið 3. loftlykkjulykkju í gegnum 2. loftlykkjulykkju. Haldið svona áfram þar til allar loftlykkjulykkjur hafa verið heklaðar saman. Gerið þetta í öllum 4 mynstureiningum í A.1 út umferðina. Setjið e.t.v. prjónamerki eða þráð í neðstu loftlykkjulykkju til að koma í veg fyrir að hún losni. Næsta umferð er síðan hekluð frá þar sem umferðin endaði á berustykki þannig: Loftlykkjulykkjur í A.1 eru ekki taldar með í lykkjufjölda, það er hekluð 1 fastalykkja um síðustu loftlykkjulykkju í þeim loftlykkjulykkjum sem heklaðar voru saman þannig að þær losni ekki (það er hoppað yfir þessa fastalykkju í næstu umferð og eru ekki taldar með í lykkjufjölda): Heklið stuðla yfir fyrstu 29-31-33-36-39-44 stuðla, heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul í A.1, heklið 1 fastalykkju um loftlykkjulykkju, heklið 1 stuðul í síðasta stuðul í A.1, heklið 6-6-8-8-10-10 lausar loftlykkju (= undir ermi), hoppið yfir næstu 42-48-50-54-54-58 stuðla (= ermi), heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul í A.1, heklið 1 fastalykkju um loftlykkjulykkju, 1 stuðul um síðasta stuðul í A.1, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 58-62-67-73-79-88 stuðla, heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul í A.1, heklið 1 fastalykkju um loftlykkjulykkju, 1 stuðul í síðasta stuðul í A.1, heklið 6-6-8-8-10-10 lausar loftlykkjur (= undir ermi), hoppið yfir næstu 42-48-50-54-54-58 stuðla (= ermi), heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul í A.1, heklið 1 fastalykkju um loftlykkjulykkju, 1 stuðul í síðasta stuðul í A.1, heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 29-31-34-37-40-44 stuðla. Klippið frá og festið þráðinn. Heklið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: Byrjið umferð í 3.-3.-4.-4.-5.-5. loftlykkju sem var hekluð undir annarri ermi. Festið þráðinn og heklið 1 fastalykkju í þessa loftlykkju, heklið 1 hálfan stuðul í næstu loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu loftlykkjum og stuðla í umferð. ATH! Umferðin endar ekki á venjulegan máta – lesið HEKLLEIÐBEININGAR-2. Það eru 136-144-158-170-186-204 stuðlar í umferð. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul umferðina hringinn þar til stykkið mælist ca 37-37-38-38-38-37 cm frá skiptingu – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-2 þegar hekla á síðustu umferðina. Klippið frá og festið þráðinn. Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður. ERMI: Byrjið umferð í 3.-3.-4.-4.-5.-5. loftlykkju sem var hekluð undir annarri ermi. Festið þráðinn og heklið 1 fastalykkju í þessa loftlykkju, heklið 1 hálfan stuðul í næstu loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 0-0-1-1-2-2 loftlykkju (það er eftir 1 loftlykkja), heklið 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í síðustu loftlykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar á sama hátt um stuðulinn í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. Þetta er gert til að það verði eins lítið gat í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul fram að loftlykkjum í annarri hlið á ermi, heklið 2 stuðla saman á sama hátt í skiptingunni og heklið 1 stuðul í hverja af síðustu loftlykkjum – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-2 = 48-54-58-62-64-68 stuðlar. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul umferðina hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-3-3-3-2 cm frá skiptingu, byrjar úrtaka undir ermi – lesið ÚRTAKA-1 og fækkið lykkjum í ca 8.-5½.-5.-3½.-3½.-2½. hverjum cm alls 6-8-9-11-11-13 sinnum = 36-38-40-40-42-42 lykkjur. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til ermin mælist alls 51-50-49-48-46-43 cm frá skiptingunni – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR þegar enda á síðustu umferð. Heklið hina ermina á sama hátt. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið heklunál 5 og DROPS Air. Byrjið umferð mitt að aftan. UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul á milli hverra hálfa stuðla frá umferð 1 á berustykki = 72-76-78-82-86-90 stuðlar – lesið HEKLLEIÐBEININGAR-1. UMFERÐ 2: Heklið stuðla í aftari lykkjubogann umferðina hringinn. UMFERÐ 3: Heklið stuðla (í gegnum báða lykkjubogana) umferðina hringinn. UMFERÐ 4: Heklið stuðla í aftari lykkjubogann umferðina hringinn. UMFERÐ 5: Heklið stuðla (í gegnum báða lykkjubogana) umferðina hringinn. UMFERÐ 6: Heklið stuðla í aftari lykkjubogann umferðina hringinn. UMFERÐ 7-9: Heklið stuðla (í gegnum báða lykkjubogana) umferðina hringinn. Klippið þráðinn og þræði í gegnum síðustu lykkjuna. FRÁGANGUR: Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna á heklunálinni. Brjótið niður kant í hálsmáli að innanverðu á stykki, þannig að kantur í hálsmáli verði tvöfaldur. Saumið hálsmálið niður með nokkrum sporum. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (2)
CICI wrote:
Hallo liebes Team! Ich möchte den Pulli in der Größe L häkeln. Beim Passe schaut es so aus, als ob am Ende ein Fehler in dieser Größe ist: die Zunahme und die Anzahl der Runden für L ist kleiner als M und S --> 144-148-138 (= Größe L) -166-182-200 Stäbchen. Können Sie mir sagen, wie die Anleitung richtig geht? Danke
02.01.2024 - 09:45DROPS Design answered:
Liebe Cici, so stimmt es auch, die Zunahmen sind noch nicht fertig, Sie haben nur 5 Mal genommmen (6 Mal in die 2 ersten Größen), dann nehmen Sie wie unter den nächsten Absatz zu. Am Ende der Passe sind es dann 242 Stäbchen in L. Viel Spaß beim häkeln!
02.01.2024 - 12:31Rezig wrote:
Bonjour je voudrais savoir quand le graphique A1 et les arceaux doit t'on commencer à les tricoter je suis bloquée pour la suite du patron merci d'avance de votre réponse
31.10.2023 - 11:12DROPS Design answered:
Bonjour Mme Rezig, nous montrons dans cette vidéo comment crocheter ce type de points (suivez bien les explications sur le nombre de mailles, la vidéo a été faite pour un autre modèle similaire); elle montre ainsi comment crocheter les ronds de mailles en l'air de l'empiècement et comment les assembler ensuite en torsades à la fin de l'empiècement. Bon crochet!
31.10.2023 - 16:13