Feel the Beat |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónað vesti úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, tvöföldum kanti í hálsmáli, perluprjóni á bakstykki og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 244-30 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KANTLYKKJA (á við um framstykki og neðri kant) : Prjónuð er 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki. Kantlykkjur eru prjónaðar slétt frá réttu og slétt frá röngu (garðaprjón). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: AUKIÐ ÚT TIL VINSTRI Á EFTIR PRJÓNAMERKI / 3 LYKKJUR: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT TIL HÆGRI Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: AUKIÐ ÚT TIL VINSTRI Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT TIL HÆGRI Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-1 (á við um handveg): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju innan við 3 lykkjur í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1 á bakstykki / sléttprjóni á framstykki. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Efsti hluti á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl og aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka. Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna niður að klauf. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig að loknu máli. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum handvegi og hálsmáli. Kantur í handvegi og hálsmáli er prjónað í hring á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 35-35-37-37-39-39 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja innan við ystu 3 lykkjur í hverri umferð. Nú er prjónað A.1 fram og til baka með 3 lykkjur í sléttprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun á umferð (séð frá réttu) og á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU (útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í A.1). Haldið svona áfram og aukið út alveg eins bæði frá réttu og frá röngu alls 17-19-20-22-22-24 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu eru 69-73-77-81-83-87 lykkjur í umferð. Prjónið 2 umferðir fram og til baka í mynstri eins og áður, án þess að auka út og með 3 lykkjur í sléttprjóni í hvorri hlið. Færið prjónamerkin þannig að nú sitja þau yst í hvorri hlið – stykkið er síðar mælt frá þessum prjónamerkjum. Prjónið A.1 með 3 lykkjur í sléttprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 21-22-22-21-19-18 cm frá prjónamerkjum, aukið út 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – lesið ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 6-6-7-8-11-13 sinnum = 81-85-91-97-105-113 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Stykkið mælist ca 26-27-28-28-29-30 cm, mælt yst meðfram handvegi frá prjónamerkjum. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið upp 19-21-22-24-24-26 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja af 17-19-20-22-22-24 umferð frá kanti efst á bakstykki + 2 lykkjur framan við prjónamerki). Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 KANTLYKKJA í hvorri hlið – lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-8-8 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun á hverri umferð frá réttu, en aukið út á eftir fyrstu 3 lykkjum – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju alls 4-4-4-4-5-5 sinnum = 23-25-26-28-29-31 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. Byrjið við prjónamerki og prjónið upp 19-21-22-24-24-26 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-8-8 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu, aukið út á undan síðustu 3 lykkjum – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út 1 lykkju fyrir hálsmáli alls 4-4-4-4-5-5 sinnum = 23-25-26-28-29-31 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón yfir lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 23-23-25-25-25-25 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið sléttprjón yfir 23-25-26-28-29-31 lykkjur frá vinstra framstykki = 69-73-77-81-83-87 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 29-30-30-31-29-28 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út fyrir handveg í hvorri hlið á sama hátt og á bakstykki = 81-85-91-97-105-113 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Stykkið mælist ca 34-35-36-38-39-40 cm, mælt yst meðfram handvegi frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Klippið þráðinn. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Byrjið með að fitja upp 2-3-4-5-6-7 lykkjur fyrir handveg á prjóninn, prjónið síðan sléttprjón frá réttu yfir allar 81-85-91-97-105-113 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 4-6-8-10-12-14 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok þessarar umferðar, haldið áfram með A.1 frá réttu yfir 81-85-91-97-105-113 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 2-3-4-5-6-7 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok umferðar = 170-182-198-214-234-254 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á stykki – mitt í 4-6-8-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið. Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu. Þeir eru notaðir þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið hringinn í sléttprjóni á milli merkiþráða á framstykki og A.1 á milli merkiþráða á bakstykki. Þegar stykkið mælist 46-48-50-51-53-55 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki, skiptist framstykkið og bakstykkið, þannig að verður klauf í hvorri hlið. Setjið 85-91-99-107-117-127 lykkjur frá bakstykki á þráð eða á hjálparprjón og prjónið síðan yfir lykkjur frá framstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 26-28-28-32-34-38 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-2 = 111-119-127-139-151-165 lykkjur. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 1 kantlykkja – munið eftir útskýringu að ofan, *1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju. Haldið svona áfram með stroff í 8-8-8-9-9-9 cm. Fellið af – notið e.t.v. ítalska affellingu. Vestið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá efsta punkti á öxl. BAKSTYKKI: Setjið lykkjur á hringprjón 3,5. Prjónið á sama hátt og framstykki. KANTUR Í HANDVEGI: Leggið stykkið flatt og setjið 1 prjónamerki efst í handvegi (mitt á öxl). Byrjið frá réttu neðst í handvegi og prjónið upp ca 124-130-136-142-148-154 lykkjur í kringum handveg innan við 1 kantlykkju á stuttan hringprjón 3,5 – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við prjónamerki meðfram handvegi. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). JAFNFRAMT í annarri hverri umferð er fækkað um 2 lykkjur mitt undir handveg þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrstu lykkju slétt mitt undir handveg, lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Með því að gera þetta svona þá kemur kantur í handvegi til með að leggjast fallega. Prjónið þar til kantur í handvegi mælist 4 cm. Fellið af á sama hátt og á framstykki/ bakstykki. Prjónið hinn kant í handvegi á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu ca 98-98-108-108-114-114 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 kantlykkju á stuttan hringprjón 3,5. Prjónið stroffprjón hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 11-11-11-13-13-13 cm. Fellið af aðeins laust. Brjótið niður stroff að innanverðu á stykki og saumið niður. Til að kantur í hálsmáli dragist ekki saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (13)
Enormous wrote:
Enjoying this pattern - thank you! Can I just confirm that the part 1 video on European shoulders covers many patterns and so the line in. *this* pattern “Increase like this every 2nd row (each row from the right side) a total of 6-6-7-8-11-13 times = 81-85-91-97-105-113 stitches.” where there is NO increase on wrong side should be followed rather than the video? An increase on wrong side is demonstrated in the video. Thanks!
26.04.2024 - 11:32DROPS Design answered:
Dear Enormous, in this pattern you increase for shoulders on back piece on every row (= from RS as well as from WS) and in the video we also show how to increaes from WS - see time code 02:04 for example. Increase from RS and from WS in this pattern as explained under INCREASE TIP FROM THE RIGHT SIDE and under INCREASE TIP FROM THE WRONG SIDE. Happy knitting!
26.04.2024 - 13:41Corina Avram wrote:
Hello, Is it possible to work the neck like the sleeve edges? and not to fold it in double? Thanks
27.03.2024 - 15:40DROPS Design answered:
Dear Corina, of course, if you prefer it that way, you are welcome to do so. Happy Knitting!
27.03.2024 - 22:17Monika Pfeffer wrote:
Hallo liebes Drops-Team, Beim Vorderteil steht …..bei einer Länge von …cm für die armausschnitte abketten. Es mus aber zugenommen werden., das ist etwas verwirrend. Liebe Grüße
10.12.2023 - 16:03Sacha wrote:
Bonjour ! Comme Susanne, je ne comprends pas bien les augmentations du dos, en taille M, si j'augmente 19 fois 2 mailles sur l'envers et sur l'endroit, je crée 76 nouvelles mailles, en additionnant 76 à 35 j'obtiens 111. Pouvez me dire à quoi correspond le chiffre 73 et comment y arriver, svp ? En vous remerciant par avance de votre aide et du temps passé à répondre. Bonne journée
02.12.2023 - 16:20DROPS Design answered:
Bonjour Sacha, vous devez augmenter 19 fois 2 mailles soit 38 mailles au total sur un total de 19 rangs (- on augmente tous les rangs, sur l'endroit aussi bien que sur l'envers et non 19 fois sur l'endroit et 19 fois sur l'envers). Vous aurez ainsi bien 35 + 38 = 73. Bon tricot!
04.12.2023 - 07:58Murielle Pham wrote:
Bonsoir, tout d'abord merci pour votre réponse à ma question précédente. J'en suis maintenant aux emmanchures du devant mais il est dit de mesurer 30 cm depuis qu'on a relevé les mailles (il s'agit bien des mailles relevées sur les épaules ?). D'où mesure r on exactement ? Au niveau de l'encolure ou de l'épaule ?
19.11.2023 - 20:54DROPS Design answered:
Bonjour Mme Pham, vous mesurez le devant à partir des mailles relevées, comme vous avez le même nombre de rangs côté encolure et côté épaules, la mesure sera la même des 2 côtés. Bon tricot!
20.11.2023 - 11:16PHAM Murielle wrote:
Bonjour, pour remonter les mailles de l'épaule du devant, je démarre donc a 22 m avant les bordures en jersey ( je n'ai pas de m à remonter sur les bordures?)
14.11.2023 - 17:38DROPS Design answered:
Bonjour Mme Pham, pour l'épaule gauche, vous commencez à relever les mailles à partir du 1er rang du dos jusqu'au marqueur - dans cette vidéo nous montrons comment relever les mailles des deux devants. Bon tricot!
15.11.2023 - 07:58Mirjam Weiß wrote:
Liebes Drops-Team, ich stricke den Pollunder in Größe M und bin gerade beim Vorderteil. Momentan sind es 73 Maschen und ich frage mich, wann ich mit den Zunahmen beginnen muss, damit ich auf insgesamt 85 Maschen komme und wann ich das Vorderteil abketten muss. An dieser Stelle kommt mir die Anleitung etwas durcheinander vor oder bin nur ich das? 😅 Vielen Dank für eure Hilfe!
02.11.2023 - 21:33DROPS Design answered:
Liebe Frau Weiß, nach den letzten Zunahmen stricken Sie noch 2 Reihen und setzen Sie die Markierungen beidseitig, jetzt messen Sie von hier; dann stricken Sie die 73 Maschen bis die Arbeit 22 cm von den Markierungen, und dann wird es neue Maschen für die Armlöcher beideitig zugenommen, so haben Sie die 85 Maschen und die Arbeit misst 27 cm. Maschen still legen und Vorderteil stricken. Siehe wie man so einen Rückenteil strickt in diesem Video. Viel Spaß beim stricken!
03.11.2023 - 06:37Susanne wrote:
Hallo Drops Design Team, Ich habe heute mit diesem Pullunder in GrößeM begonnen. Allerdings habe ich für das Rückenteil nach Ende der Schulterzunahmen 111 Maschen auf der Nadel und nicht 73. Ich habe wie beschrieben 35 M Anschlag plus 19 x 2 M in den Hinreihen plus 19 x 2 M in den Rückreihen gearbeitet, ist natürlichzu breit, was mir aufgrund der kurzen Rundstricknadel nicht aufgefallen ist. Also fange ich noch mal von vorne an 😫, mit nur 19 x 2 in den Hinreihen. Schade!
26.10.2023 - 19:37DROPS Design answered:
Liebe Susanne, es soll insgesamt 19 Mal in jeder Reihe zugenommen werden, so 19 Reihen mit Zunahmen bei den Hin- sowie den Rückreihen. Viel Spaß beim stricken!
27.10.2023 - 09:42Cathrine wrote:
Er det rigtigt forstået, at 5 garnnøgler er tilstrækkeligt til størrelse L?
25.10.2023 - 20:46DROPS Design answered:
Hej Cathrine, det stemmer :)
26.10.2023 - 14:10Emmi wrote:
Kan man sticka mosstickning på framstyckets med i det antalet maskor som står? Eller blir det en förändring i storlek? Vore fint om det var mosstickning även fram, händer lite mer.
19.10.2023 - 20:33DROPS Design answered:
Hej Emmi, ja det kan du gøre :)
24.10.2023 - 08:19