Sherwood Smiles Cardigan |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, axlarsæti, sléttprjóni og stuttum puffermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 239-15 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Þ.e.a.s. prjónið frá réttu þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð í A.1. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-7½-8-8-8½ cm millibili. ÚTAUKNING-1 (frá réttu): AUKIÐ ÚT TIL HÆGRI Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT TIL VINSTRI Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-2 (frá röngu): AUKIÐ ÚT TIL HÆGRI Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT TIL VINSTRI Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist til fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 117-121-127-137-141-151 lykkjur með DROPS Safran yfir hringprjón 2,5 og hringprjón 3,5 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 3,5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 2,5 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 3 cm, fitjið upp 5 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða = 127-131-137-147-151-161 lykkjur. Haldið áfram með stroff eins og áður með 6 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 6 cm frá uppfitjunarkanti – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Nú er stroffið brotið inn að röngu, þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 6 lykkjur í garðaprjóni, prjónið stroff eins og áður jafnframt sem 4. hver lykkja er prjónuð saman með 4. hverri lykkju frá uppfitjunarkanti – haldið svona áfram þar til 9-9-7-9-9-7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3-3-1-3-3-1 lykkjur stroff og 6 lykkjur í garðaprjóni. Nú er kominn tvöfaldur kantur í hálsmáli. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 27-27-29-31-35-37 lykkjur jafnt yfir (6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni og ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 154-158-166-178-186-198 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (í 4. umferð er þessi lykkja prjónuð brugðið frá röngu), endið með 6 lykkjur í garðaprjóni – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, setjið 1 prjónamerki beint eftir kant að framan á framstykki – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI MEÐ ÚTAUKNINGU FYRIR AXLARSÆTI: Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja. Þessi prjónamerki eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og prjónamerkin verða að hafa annan lit en prjónamerki að framan til að aðgreina þau. Fyrsta prjónamerki: Teljið 34-35-37-38-40-43 lykkjur (framstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju. Annað prjónamerki: Teljið 15-15-15-19-19-19 lykkjur frá 1. prjónamerki (axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 56-58-62-64-68-74 lykkjur (bakstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 15-15-15-19-19-19 lykkjur (axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Það eru 34-35-37-38-40-43 lykkjur eftir í umferð á eftir 4. prjónamerki (framstykki). Látið þessi 4 prjónamerki fylja með í stykkinu, það á að auka út við hvert og eitt að þessum prjónamerkjum. Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan, þannig að stykkið verði aðeins hærra aftan í hnakka. Þetta er gert jafnframt því sem aukið er út fyrir axlarsæti. Byrjið frá réttu og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (rétta): 6 lykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1 (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 4. prjónamerki. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 4. og 2. prjónamerki og á EFTIR 3. og 1. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 1. prjónamerki. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og á EFTIR 2. og 4. prjónamerki (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 4. og 2. prjónamerki og á EFTIR 3. og 1. prjónamerki (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og á EFTIR 2. og 4. prjónamerki (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 4. og 2. prjónamerki og á EFTIR 3. og 1. prjónamerki (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 7 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og á EFTIR 2. og 4. prjónamerki (4 lykkjur fleiri), prjónið sléttprjón út umferðina með 6 lykkjur í garðaprjóni við miðju að framan. Stuttar umferðir hafa nú verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út alls 7 sinnum fyrir axlarsæti við hvert prjónamerki = 182-186-194-206-214-226 lykkjur í umferð. Þ.e.a.s. lykkjum hefur einungis hefur verið fjölgað á framstykkjum og á bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Síðan er prjónað sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með 6 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT heldur útaukning áfram fyrir axlarsæti alveg eins og áður í hverri umferð (bæði frá röngu og frá réttu) þar til aukið hefur verið út alls 20-22-26-28-28-28 sinnum meðtalin 7 skipti í hálsmáli = 234-246-270-290-298-310 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 6-7-8-9-9-9 cm frá prjónamerki framan við hálsmál. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður fram að 1. prjónamerki, fellið af 15-15-15-19-19-19 axlalykkjur, prjónið sléttprjón fram að 3. prjónamerki, fellið af 15-15-15-19-19-19 axlalykkjur, prjónið eins og áður út umferðina = 204-216-240-252-260-272 lykkjur. Haldið prjónamerkjunum í stykkinu – prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir ermum. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 54-57-63-66-68-71 lykkjur eins og áður (framstykki), fitjið upp 52-52-52-66-66-66 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir ermi, prjónið 96-102-114-120-124-130 lykkjur sléttprjón (bakstykki), fitjið upp 52-52-52-66-66-66 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir ermi, prjónið 54-57-63-66-68-71 lykkjur eins og áður (framstykki) = 308-320-344-384-392-404 lykkjur. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Prjónið sléttprjón fram og til baka með 6 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-1. Nú er einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykkjum og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 23-24-25-21-27-25 sinnum, síðan er aukið út í hverri umferð (bæði frá röngu og frá réttu) alls 0-0-5-9-0-0 sinnum – munið eftir ÚTAUKNING-2 = 400-416-464-504-500-504 lykkjur. Stykkið mælist ca 20-22-25-25-26-25 cm frá prjónamerki við hálsmál. Síðan er aukið út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR BERUSTYKKI: Færið 4 prjónamerkin til þannig að þau sitji í hvorri hlið á ermum (prjónamerkin sitja nú í lykkju og það eru 96-98-110-124-118-114 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í). Haldið áfram í sléttprjóni og 6 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki þannig: Aukið út á UNDAN og á EFTIR hverju og einu af 4 prjónamerkjunum – munið eftir ÚTAUKNING-1 og ÚTAUKNING-2. Nú á að auka út lykkjur á framstykkjum, bakstykki og á ermum. Aukið svona út í hverri umferð (bæði frá réttu og frá röngu) alls 6-6-4-7-11-15 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 448-464-496-560-588-624 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 22-24-26-27-29-29 cm frá prjónamerki mitt að framan. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 60-63-67-73-79-86 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 110-112-120-140-142-146 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 108-114-122-134-146-160 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 110-112-120-140-142-146 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 60-63-67-73-79-86 lykkjur eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 244-260-280-304-332-364 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 6 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 20-20-20-20-20-22 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 63-73-77-83-93-97 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 307-333-357-387-425-461 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 6 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 6 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl. ERMI: Setjið 110-112-120-140-142-146 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 3,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 118-122-132-152-156-162 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi – mitt í 8-10-12-12-14-16 lykkjur. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 12-14-16-18-20-22 lykkjur jafnt yfir = 106-108-116-134-136-140 lykkjur. Þegar stykkið mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum cm alls 9-8-6-6-5-5 sinnum = 88-92-104-122-126-130 lykkjur. Eftir síðustu úrtöku er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-12-22-36-36-38 lykkjur jafnt yfir = 78-80-82-86-90-92 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 13-12-10-10-9-9 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Þræðið þráð upp og niður í gegnum uppfitjunarkantinn efst á ermi. Brjótið ermakúpuna þannig að hún passi við opið þar sem lykkjur voru felldar af á öxl. Saumið ermakúpuna við axlalykkjur sem felldar voru af. Endurtakið í hinni hliðinni. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Virpi wrote:
Korotetuista kerroksista tulee kauniimmat ja istuvammat jos jättää 2 s sijaan 5 s väliä ja aloittaa myös 5 s lisäyksen jälkeen.
29.04.2024 - 18:36Nicole wrote:
Bonjour, Je ne vois pas les boutons 628 sur votre site. Ils sont probablement discontinués. Quelle était leur diamètre ? Merci par avance,
28.04.2024 - 04:41DROPS Design answered:
Bonjour Nicole, ces boutons existent toujours, retrouvez-les ici pour plus d'infos, ils font 15 mm de diamètre. Bon tricot!
29.04.2024 - 09:12Inge Koch wrote:
Som det ser ud på skrift skal der IkKe tages ud i en række nedaf på ærmerne. Jeg er ved at skulle sætte mærker ved udtagningsbærestykket. Der er 178m på ærmerne og der skal flyttes markeringer til 124. Derfra skal der så tages ud 8m over ret og vrang. Det vil sige at udtagningsrækken bliver forskubbet. Det giver ingen mening i mit hoved. Hjælp tak
08.04.2024 - 16:42DROPS Design answered:
Hej Inge, vi har lavet 3 videoer som viser udtagninger til sadelskulder, de kan helt sikkert hjælpe dig med forståelsen af teknikken. Se her: Sadelskulder nederst i videoen finder du 2 mere :)
09.04.2024 - 11:35Hannah-Maria wrote:
Hello! I'm just about to start on the yoke increase after the sleeve increase, but don't understand where I am meant to move the stitch markers to. How many stitches should there be between markers? Should it no longer be working in the same divisions of front, sleeves and back sections? Also for the assembly, is the basting done with sewing or with a strand of yarn, and is there a video that explains this? Thank you so much :)))
06.04.2024 - 13:04DROPS Design answered:
Dear Hannah-Maria, there seems to be a mistake in the pattern; we shall contact the design department for more information. The markers should be located in each transition between the sleeves and the body. You baste with a strand of yarn; you pass a thread up and down through the stitches and then tighten it, so that the top of the sleeve will wrinkle. Happy knitting!
08.04.2024 - 00:35Ingrid Ehret wrote:
Hallo, bei der strickmustererklärung heisst es 2 Maschen rechts zusammenstricken (sowohl in Rückreihen als auch in Hinreichen). Wie ist das zu verstehen. Beginnt die Strickmusterzeichnung mit einer Rückreihe ? Liebe grüsse Ingrid Ehret
26.10.2023 - 13:27DROPS Design answered:
Liebe Frau Ehret, das Muster beginnt mit einer Hinreihe und das Loch-Reihe wird eine Rückreihe sein. Viel Spaß beim stricken!
27.10.2023 - 08:13Ylva Magnell wrote:
Hej, vilken storlek bär modellen? Med vänliga hälsningar Ylva
18.08.2023 - 08:44DROPS Design answered:
Hej Ylva, det kan vara en S eller M, men du ser koftans mått i måttskissen nederst i mönstret :)
18.08.2023 - 12:10Marta wrote:
Princess Cordelia Cardigan
18.01.2023 - 16:13Loliper wrote:
Me gusta mucho
18.01.2023 - 09:48Jeannie wrote:
Summer evening
18.01.2023 - 03:26Bethany wrote:
Tea Time Cardigan
18.01.2023 - 00:07