Blue Butterfly |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með útaukningu á öxlum, gatamynstri og skrautkanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-49 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (axlarsæti): FRÁ RÉTTU: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og á UNDAN 2. og 4. prjónamerki Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. FRÁ RÖNGU: Aukið út á EFTIR 4. og 2. prjónamerki og á UNDAN 3. og 1. prjónamerki. Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju í garðaprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka. Berustykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 98-104-104-110-116-122 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka. Nú á að prjóna rúllukant. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3 lykkjur slétt, * snúið lykkjunum á hægri prjóni 360 gráður þannig: Leggið þráðinn framan við stykkið, stingið hægri prjóni undir stykkið og upp framan við stykkið, prjónið síðan 6 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, endið með 3 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Tengið núna stykkið saman og prjónið í hring. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 14-16-10-12-14-16 lykkjur jafnt yfir = 84-88-94-98-102-106 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig (prjónamerkin eru sett á milli 2 lykkja): Teljið 1 lykkju (axlalykkja), setjið 1. prjónamerki, teljið 40-42-45-47-49-51 lykkjur (bakstykki), setjið 2. prjónamerki, teljið 2 lykkjur (axlalykkjur), setjið 3. prjónamerki, teljið 40-42-45-47-49-51 lykkjur (framstykki), setjið 4. prjónamerki, nú er 1 lykkja eftir í umferð (axlalykkja). Nú eru prjónaðar stuttar umferðir í sléttprjóni yfir aðra öxlina JAFNFRAMT er aukið út um 2 lykkjur fyrir öxl í hverri umferð þannig – sjá ÚTAUKNING: Prjónið 3 lykkjur fram hjá 1. prjónamerki – munið eftir að auka út fyrir öxl, snúið, herðið á þræði og prjónið 3 lykkjur fram hjá 4. prjónamerki – munið eftir að auka út fyrir öxl, snúið, herðið á þræði, * prjónið 3 lykkjur fram hjá fyrri stuttu umferðinni – munið eftir að auka út fyrir öxl, snúið, herðið á þræði, prjónið 3 lykkjur fram hjá fyrri stuttu umferðinni í gagnstæðri hlið á stykki, snúið, herðið á þræði *, prjónið frá *-* þar til prjónaðar hafa verið alls 10 stuttar umferðir í hvorri hlið, endið síðustu umferð við byrjun á umferð (á milli 2 lykkja á milli 1. og 4. prjónamerkis). Nú hafa verið auknar út 10 lykkjur við hvert prjónamerki. Klippið þráðinn. Færið umferðina til þannig að byrjun á umferð verði mitt á milli 2 lykkja á milli 2. og 3. prjónamerkis og prjónið stuttar umferðir alveg eins yfir þessar lykkjur. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar eru 124-128-134-138-142-146 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð þannig (byrjun á umferð er áfram á milli 2. og 3. prjónamerkis): 1 lykkja, aukið út um 1 lykkju fyrir öxl, 4-5-0-1-2-3 lykkjur slétt, A.1 alls 4-4-5-5-5-5 sinnum, 4-5-0-1-2-3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju fyrir öxl, 2 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju fyrir öxl, 60-62-65-67-69-71 lykkjur slétt, aukið út fyrir öxl, 1 lykkja slétt. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir öxl í hverri umferð. Útauknar lykkjur á framstykki eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1 (lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heilu gatamynstri eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar aukið hefur verið út alls 17-19-21-24-28-33 sinnum (meðtalin útaukning í stuttu umferðum) eru 152-164-178-194-214-238 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 8-9-10-11-13-15 cm, þar sem það er breiðast. Nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt og setjið þessa lykkju á þráð fyrir ermi, prjónið 74-80-87-95-105-117 lykkjur sléttprjón og A.1 eins og áður (framstykki), prjónið 2 lykkjur slétt, setjið þessar 2 lykkjur á þráð fyrir ermi, prjónið 74-80-87-95-105-117 lykkjur sléttprjón, setjið síðan þessar lykkjur á þráð fyrir bakstykki, prjónið 1 lykkju slétt og setjið þessa lykkju á þráð fyrir ermi. Klippið þráðinn. FRAMSTYKKI: = 74-80-87-95-105-117 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og A.1 og prjónið ystu lykkjuna í hvorri hlið í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Nú er mælt frá þar sem lykkjurnar voru settar á þráð fyrir ermi. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í 4. hverjum cm alls 3-3-4-4-4-4 sinnum = 68-74-79-87-97-109 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm frá skiptingu, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða = 80-86-91-99-109-121 lykkjur. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni, A.1 og 1 lykkja í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist ca 31-32-33-34-35-36 cm frá þar sem 6 lykkjur voru fitjaðar upp undir ermi, endið eftir nokkrar umferðir sléttprjón, prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 8-10-13-13-15-15 lykkjur jafnt yfir = 88-96-104-112-124-136 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff, með byrjun frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 4 cm. BAKSTYKKI: Setjið til baka 74-80-87-95-105-117 lykkjur á bakstykki á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Nú er mælt frá þar sem lykkjur voru settar á þráð fyrir ermi. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki. Fækkið lykkjum svona í 4. hverjum cm alls 3-3-4-4-4-4 sinnum = 68-74-79-87-97-109 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm frá skiptingu, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða = 80-86-91-99-109-121 lykkjur. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni og 1 lykkja í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist ca 31-32-33-34-35-36 cm frá þar sem 6 lykkjur voru fitjaðar upp undir ermi, prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 8-10-13-13-15-15 lykkjur jafnt yfir = 88-96-104-112-124-136 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff, með byrjun frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 4 cm. ERMI: Byrjið þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir handvegi á bakstykki. Prjónið upp lykkjur frá réttu á hringprjón 5 þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi, prjónið upp 23-25-26-28-30-31 lykkjur upp að 2 lykkjum sem settar voru á þráð (axlalykkjur), setjið þessar 2 lykkjur á prjóninn og prjónið þær slétt, prjónið upp 23-25-26-28-30-31 lykkjur niður að lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp á framstykki = 60-64-66-70-74-76 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki. Fækkið lykkjum svona með 12-12-8-6-4-4 cm millibili alls 3-3-4-5-7-7 sinnum = 54-58-58-60-60-62 lykkjur. Þegar stykkið mælist 41-39-39-38-36-35 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið er út um 0-0-0-2-2-0 lykkjur jafnt yfir = 54-58-58-62-62-62 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* og endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stroffið mælist 6 cm. Ermin mælist ca 47-45-45-44-42-41 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt, nema nú er byrjað þar sem lykkjur voru fitjaðar upp á framstykki. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið kant í hálsmáli saman mitt að aftan, innan við 1 kantlykkju. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Claude Bousseau wrote:
Bonjour, j'ai relu 10 fois les explications l'ouvrage commencé et je ne comprends rien 🙄:" continuez... entre les marqueurs 2 et 3" = milieu des mailles pour l'épaule, non ? "Tricoter 1 maille endroit, augmenter 1 maille pour l'épaule" = on fait une augmentation au milieu de l'épaule ? "... augmenter 1 maille pour l'épaule, tricoter 2 mailles endroit, augmenter 1 maille pour l'épaule..." on est où là ? aidez-moi svp
09.02.2023 - 09:07DROPS Design answered:
Bonjour, tout à fait, les premiers rangs raccourcis ont été fait de part et d'autre des marqueurs 1 et 4 pour l'une des épaules, on tricote ensuite les rangs raccourcis de la même façon pour l'autre épaule, entre les marqueurs 2 et 3. Bon tricot!
09.02.2023 - 10:14Francesca Grassi wrote:
Buona sera chiedo un altra cosa in merito al modello. Dopo l esecuzione del collo arrotolato dite di unire il lavoro e continuare in tondo . Nelle foto però il lavoro sembra staccato. Le spalle cucite come se fosse tutto lavorato staccato. Non riesco a capire . Grazie
03.11.2022 - 17:17DROPS Design answered:
Buonasera Francesca, il modello è corretto, deve unire in tondo e proseguire. Buon lavoro!
03.11.2022 - 18:14Giovanna wrote:
Buongiorno sto realizzando il modello Blue butterfly . ho 98 maglie e devo diminuire a 84 usando il seguente metodo. Lavorare 1 maglia a maglia legaccio, passare 1 maglia a diritto senza lavorarla, 1 maglia diritto, accavallare la maglia passata sopra quella appena lavorata, lavorare fino a quando rimangono 3 maglie sul ferro, 2 maglie insieme a diritto e 1 maglia a maglia legaccio. Il calcolo è: 98:14= 7 Come faccio? Grazie
09.10.2022 - 18:47DROPS Design answered:
Buonasera Giovanna, in quel punto non deve applicare il SUGGERIMENTO PER LE DIMINUZIONI, che andrà invece utilizzato come indicato durante la lavorazione del davanti. Le diminuzioni da 98 a 84 maglie devono essere invece a intervalli regolari con il metodo che preferisce, anche lavorando 2 maglie in 1. Buon lavoro!
10.10.2022 - 19:13Marina Tavelli wrote:
Quanta lana prendere per un modello di taglia media chiuso e girocollo?
05.10.2022 - 10:23DROPS Design answered:
Buonasera Marina, per delle modifiche personalizzate può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
05.10.2022 - 19:57Janice Hansen wrote:
Soft summer fields
13.03.2022 - 23:25