Chasing Moonlight |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nord og DROPS Kid-Silk eða DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-30 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 122 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 46) = 2,7. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna til skiptis ca hverja og aðra hverja lykkju og aðra hverja lykkju og 3. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2: Lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli innan við 3 lykkjur við miðju að framan: Fækkið lykkjum í lok umferðar frá réttu þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan hálsmáli, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju sléttprjón og 2 lykkjur garðaprjón. Fækkið lykkjum í byrjun á umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, 1 lykkja slétt, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið út umferðina eins og áður. 1 lykkja garðaprjón og 2 lykkjur sléttprjón halda áfram við miðju að framan þar til öxlin hefur verið prjónuð til loka. Þær lykkjur sem eftir eru halda áfram í mynstri eins og áður. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 21, 28, 35, 42, 49 og 57 cm M: 21, 28, 35, 43, 51 og 59 cm L: 21, 29, 37, 45, 53 og 61 cm XL: 21, 28, 35, 42, 49, 56 og 63 cm XXL: 21, 28, 35, 42, 49, 57 og 65 cm XXXL: 21, 28, 35, 43, 51, 59 og 67 cm ÚTAUKNING (á við um ermar): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkin er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 122-134-142-154-174-186 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir), eða 1 þræði DROPS Flora og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 20 cm í öllum stærðum. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 46-50-54-58-66-70 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 76-84-88-96-108-116 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 fyrstu lykkjur í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af fyrir handvegi í hvorri hlið. Fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni og 1 lykkja 0-1-1-1-2-2 sinnum = 66-72-76-84-94-102 lykkjur. Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið nú af miðju 26-26-26-34-34-34 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 19-22-24-24-29-33 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 81-89-93-97-105-113 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan) á hringprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 20 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 37-41-43-43-45-49 lykkjur jafnt yfir = 44-48-50-54-60-64 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan A.1 með 5 kantlykkjum að framan við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af fyrir handvegi í hlið. Fellið af í byrjun á umferð frá hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni og 1 lykkja 0-1-1-1-2-2 sinnum = 39-42-44-48-53-57 lykkjur. Haldið áfram með A.1 og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni þar til stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm. Setjið nú ystu 16-16-16-20-20-20 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fækkið nú lykkjum í hverri umferð frá hálsi – sjá ÚRTAKA-2 – Fækkið um 1 lykkju 4 sinnum = 19-22-24-24-29-33 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm og fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 81-89-93-97-105-113 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan) á hringprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað þannig – frá réttu: 2 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 20 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 37-41-43-43-45-49 lykkjur jafnt yfir = 44-48-50-54-60-64 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan A.1 með 5 kantlykkjum að framan við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af fyrir handvegi í hlið. Fellið af í byrjun á umferð frá hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni og 1 lykkja 0-1-1-1-2-2 sinnum = 39-42-44-48-53-57 lykkjur. Haldið áfram með A.1 og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni þar til stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm. Setjið nú ystu 16-16-16-20-20-20 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fækkið nú lykkjum í hverri umferð að hálsmáli: Fækkið um 1 lykkju 4 sinnum = 19-22-24-24-29-33 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm og fellið af. ERMI: Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Stykkið skiptist þegar fellt er af fyrir ermakúpu og síðan er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 48-48-52-52-56-56 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 14 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2-0-2-0-0-0 lykkjur jafnt yfir = 46-48-50-52-56-56 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið út með 5-4½-4-3½-3½- 3 cm millibili alls 7-8-9-9-9-10 sinnum = 60-64-68-70-74-76 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-49-49-48-45-44 cm, fellið af með 3 lykkjum hvoru megin við prjónamerki (= 6 lykkjur færri mitt undir ermi), prjónið síðan ermina fram og til baka. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 1 sinni, síðan eru felldar af þær lykkjur sem eftir eru = 44-48-52-54-58-60 lykkjur. Ermin mælist alls 53-52-52-51-48-47 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju þar til 20 cm eru eftir neðst niðri = klauf. Saumið tölur í vinstra framstykki. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið fyrir miðju að framan og frá réttu og prjónið upp ca 104-124 lykkjur með hringprjón 4,5 í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þráðum og stykkið af að fjöldi lykkja sé deilanlegur með 4). Byrjið mitt að framan og frá röngu og prjónið upp stroff þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff í 8 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Brjótið niður stroffið efst í hálsi að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsi. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (27)
Anna wrote:
Hej igen! :) Om jag använder "DROPS Air" och storlek M. Hur mycket går det åt då? Tack för hjälpen! MVH Anna
10.01.2024 - 19:45DROPS Design answered:
Hej Anna, du behöver 600 g DROPS Air till storlek M. Du måste hålla stickfastheten i mönstret för att få måtten, som du hittar i måttskissen nederst i mönstret - lycka till :)
11.01.2024 - 14:04Anna wrote:
Hej igen! :) Om jag använder "DROPS Air" och storlek M. Hur mycket går det åt då? Tack för hjälpen! MVH Anna
08.01.2024 - 18:21Anna wrote:
Hej! Om jag vill bara använda ett garn istället för två, vad kan jag ta istället?
07.01.2024 - 19:16DROPS Design answered:
Hej Anna, så kan du bruge en af kvaliteterne fra garngruppe C. Skriv hvilken kvalitet du vil bruge og hvilken størrelse, så kan vi hjælpe dig med at regne garnforbruget om :)
08.01.2024 - 14:04Elke wrote:
Die angegebenen Maße in der Skizze stimmen nicht mit der Maschenanzahl überein. Bei der größten Größe würde ich für Vorder/Rückenteil jeweils 116cm (sehr viel) anschlagen. Ist das wirklich korrekt?
06.01.2024 - 17:50DROPS Design answered:
LIebe Elke, nach dem Bündchen sind es 116 Maschen zu stricken, minus 2 Randmaschen = 114 Maschen, mit 16 Maschen = 10 cm, sind diese 114 Maschen ca 71 Maschen. Beachten Sie, daß man viel mehr Maschen für das Bündchen mit den kleineren Nadeln als für das Muster mit den grösseren Nadeln braucht. Viel Spaß beim stricken!
08.01.2024 - 10:20Fabienne Cluts wrote:
Est ce normal qu'il y a plus de maille sur les 2 côtés avant que la dos car le dos 186 mailles et les 2 côtés avant ensemble 226 mailles ? Merci
05.10.2023 - 15:20DROPS Design answered:
Bonjour Mme Cluts, le nombre de mailles est juste ainsi, tricotez les côtes du devant puis, diminuez à 64 mailles (soit approximativement la moitié de 116 (après les diminutions des côtes en bas du dos)+ la bordure du devant). Bon tricot!
06.10.2023 - 08:50Marika Hardt wrote:
Hallo Zusammen, kann es sein, dass bei dieser Anleitung 228/30 die Beschreinung zum Stricken der Armkugel fehlt????? Komme so wie das beschrieben ist nicht zurecht Lg. Marika
29.09.2023 - 16:59Lise wrote:
Hvordan er det mulig at strikkefasthet stemmer og man legger opp og strikker størrelse L men ender opp med en størrelse S? Garnet er Flora og Kid silk.
07.09.2023 - 12:41DROPS Design answered:
Hej Lise, Hvis du har 16 masker på 10 cm, så vil bredden på rygstykket blive 88/16= 55 cm
08.09.2023 - 15:32Marlies wrote:
Worden de minderingen in de panden in één naald gedaan of verdeeld over meerdere naalden?
03.07.2023 - 21:00DROPS Design answered:
Dag Marlies,
Nadat je de boord hebt gebreid minder je verdeeld over de naald het aangegeven aantal steken. Dus dit doe je in één naald.
06.07.2023 - 21:11Marlies wrote:
Er moet bij het achterpand, rechtervoorpand en linkervoorpand geminderd worden. Na het breien van het boord moet er een naald recht gebreid worden en in de volgende naald geminderd. Is het de bedoeling dat hoeveelheid steken in één naald worden geminderd of verdeeld over meerdere naalden?
03.07.2023 - 20:58Nancy Somerled wrote:
Can I use 1 thread Safran instead of 1 Flora and 1 Silk Mohair without making trouble??
24.06.2023 - 09:42DROPS Design answered:
Dear Nancy, no, you can't. Because Safran is also a Group A yarn, so you would need to combine it with another group A yarn to have the same gauge . (Flora and Silk Mohair = A+A; Safran is only A) You can substitute them for a single thread of a Group C yarn (C= A+A), such as Paris. You can read more about this in the following lesson: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=14&cid=19. Happy knitting!
25.06.2023 - 13:49