DROPS Muskat uni colour 100% Bómull |
572.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Muskat uni colour 100% Bómull 572.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu | |
= brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir | |
= 2 lykkjur slétt saman | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn | |
= þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem búið er að fækka um þessa lykkju áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu | |
= byrjið á þessari umferð |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Coral Gables |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað með gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-27 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Prjónið fram að A.3, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.3, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón upp að handveg. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að handveg, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Að lokum eru stykkin saumuð saman og prjónaður er kantur í hálsmáli í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 192-200-224-240-272-296 lykkjur á hringprjón 3 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 2 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig - byrjið á umferð með ör í mynsturteikningu: * A.1 yfir fyrstu 7 lykkjurnar (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 2-4-6-10-18-20 lykkjur og fækkið jafnframt um 0-0-1-0-1-1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.2 yfir næstu 80-80-88-88-88-96 lykkjur (= 10-10-11-11-11-12 lykkjur færri), prjónið fyrstu 5 lykkjur í A.2 (= 1 lykkja færri), sléttar lykkjur yfir næstu 2-4-6-10-18-20 lykkjur og fækkið jafnframt um 0-0-1-0-1-1 lykkjur með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð = 168-176-194-214-242-264 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið síðustu umferð í A.1 og A.2 og prjónið sléttar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Prjónið nú mynstur þannig: * A.3 yfir A.1 (= í hlið undir ermi), prjónið 2-4-5-10-17-19 lykkjur slétt, prjónið A.4 yfir næstu 70-70-77-77-77-84 lykkjur, prjónið fyrstu 4 lykkjur í A.4, prjónið 2-4-5-10-17-19 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Haldið svona áfram hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4-5-5-5-5-5 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.3 í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 7-5-5-5-5½-6 cm millibili alls 3-4-4-4-4-4 sinnum = 180-192-210-230-258-280 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, fellið af lykkjur fyrir handveg þannig: Fellið af 6-7-8-9-10-11 lykkjur, prjónið næstu 84-88-95-103-115-124 lykkjur, fellið af næstu 6-8-10-12-14-16 lykkjur, prjónið næstu 84-88-95-103-115-124 lykkjur, fellið af síðustu 0-1-2-3-4-5 lykkjur. Prjónið síðan bakstykki og framstykki til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 84-88-95-103-115-124 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður, JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð þannig: Felli af 2 lykkjur 0-1-1-2-5-5 sinnum, síðan 1 lykkju 1-1-1-3-3-4 sinnum = 82-82-89-89-89-96 lykkjur. Þegar bakstykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm frá skiptingu (stykkið mælist ca 39-41-43-45-47-49 cm frá uppfitjunarkanti), fellið af miðju 34-34-39-39-39-46 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 23-23-24-24-24-24 lykkjur fyrir öxl. Haldið áfram fram og til baka þar til stykkið mælist alls 41-43-45-47-49-49 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 84-88-95-103-115-124 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður, JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð þannig: Felli af 2 lykkjur 0-1-1-2-5-5 sinnum, síðan 1 lykkju 1-1-1-3-3-4 sinnum = 82-82-89-89-89-96 lykkjur. Þegar bakstykkið mælist 11-12-12-13-13-14 cm frá skiptingu (stykkið mælist ca 33-35-36-38-39-41 cm frá uppfitjunarkanti), fellið af miðju 18-18-23-23-23-24 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-2-2-2-2-3 sinnum og 1 lykkju 2-2-2-2-2-3 sinnum = 23-23-24-24-24-24 lykkjur fyrir öxl. Haldið áfram fram og til baka þar til stykkið mælist alls 41-43-45-47-49-49 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 66-70-74-80-84-90 lykkjur á sokkaprjón 3 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 72-76-80-86-90-96 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 6-6-5-5-5-5 cm, fellið af 6-8-10-12-14-16 lykkjur mitt undir ermi = 66-68-70-74-76-80 lykkjur. Prjónið síðan ermakúpu fram og til baka, JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 3-3-3-3-2-2 sinnum, 1 lykkja 2-3-5-8-14-14 sinnum, 2 lykkjur 4-4-3-2-1-1 sinnum og 4-3-3-4-3-3 lykkjur 1 sinni = 26-28-30-30-30-34 lykkjur. Fellið af. Ermin mælist ca 13-14-14-15-18-18 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 88 til 120 lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2) í kringum kant í hálsmáli frá réttu, með stuttum hringprjón 3 og Muskat. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (18)
Marjon wrote:
Goedemiddag, Klopt het dat zowel de boord als het kantpatroon gebreid wordt met nldn 3 mm? Alleen de mouwtjes ( tricotsteek ) met 4 mm? Ik hoor het graag Alvast bedankt, Marjon
03.06.2024 - 18:06DROPS Design answered:
Dag Marjon,
Nee, de boord wordt met naald 3 mm gebreid en de rest met 4 mm. Bij het lijf staat ook dat je op een gegeven moment over gaat naar rondbreinaald 4 mm. (Niet direct na de boordsteek, maar een beetje verderop.
03.06.2024 - 20:26Gail Stein wrote:
My question is; In A1 and A2 the third row shows a blank space, over the decreased stitch. How do I handle this?. Is this meant to be a decrease in the pattern, or do you pick up a stitch to keep the stitch count?
09.04.2024 - 00:23Toni wrote:
The instructions are incorrect b/c you CANNOT cast off at the end of a row (ie both sides) unless you have finished. Instructions SHOULD BE ........sleeve cap back and forth, AT THE SAME TIME cast off beginning of each row as follows: 2 st 6-6-6-6-4-4 times, 1 st 4-6-10-16-28-28 times, 2 st 8-8-6-4-2-2 times and 4-3-3-4-3-3 st 2 times = 26-28-30-30-30-34 stitches. Cast off. The sleeve measures approx. 13-14-14-15-18-18 cm. I saw others had the same problem. Thanks!
30.03.2024 - 17:41Toni wrote:
I have too many st when finishing dec on the sleeve (sz lg) and it's too short 74 + 6 = 80 st, ok When piece is 5 cm long, -10 = 70 st, ok Then at beg of each (new) row, -2 x 3 = -6 =64 st (c/o 2 st beg next 3 rows {makes it non symmetrical}) -1 x 5 = -5 = 59 st -2 x 3 = -6 = 53 t -3 x 1 = -3 = 50 st but there should only be 30 st. And my piece is only 9cm long. Please clarify. Thanks so much - I really appreciate your quick response on my last qst!
30.03.2024 - 17:03DROPS Design answered:
Dear Toni, cast off at the beginning of each row from each side (right and wrong sides). So 2 stitches on the next 3 rows from the right side and next 3 rows from the wrong side (so 12 stitches), 1 stitch 5 times from the right side and 5 times from the wrong side (so 10 stitches), 2 stitches 3 times from the right side and 3 times from the wrong side (so 12 stitches) and 3 stitches once from the right side and once from the wrong side (so 6 stitches). You have cast off 40 stitches and have 30 stitches left. At the same time, you should have worked 24 more rows which, according to the gauge should be approx. 8.5 cm. So your sleeve should measure almost 14cm. Happy knitting!
01.04.2024 - 01:00Toni wrote:
I cannot understand directions for the body of Coral Gables by Design no. 220-27.I am making the large size. “The next round is worked as follows...... * A.1 over the first 7 stitches (= 1 stitch decreased), knit 6 and decrease at the same time 1 stitch by knitting 2 tog” BUT which 2 should I k tog? Do I k6 then 2tog? or 2tog then k6, or k3 k2tog k2 or k3 2tog then k3? Please clarify. Thanks very much!
11.03.2024 - 00:31DROPS Design answered:
Dear Toni, you decrease wherever you prefer inside the 6 stitches. You could, for example, k3, k2tog, k1. Or k1, k2tog, k3. Or k2, k2tog, k2. So, you work over 6 stitches but only get 5 stitches. Happy knitting!
11.03.2024 - 00:47Jenkki wrote:
Hei! En ymmärrä tätä kohtaa ohjeessa: "Neulo sitten mallineuletta seuraavasti: *Neulo piirroksen A.1 mallineuleen silmukoilla mallineuletta piirroksen A.3 mukaisesti ( = sivussa hihan alla)" Miten voin neuloa toisen mallineuleen silmukoilla toista mallineuletta? Ja mitä tarkoittaa sivussa hihan alla? Kiitos jo etukäteen avusta!
07.01.2024 - 10:25DROPS Design answered:
Hei, tämä tarkoittaa, että niillä silmukoilla, joilla aiemmin neulottiin piirroksen A.1 mallineuletta, neulotaan nyt piirroksen A.3 mallineuletta. Kyseiset silmukat ovat hihan alapuolella.
08.01.2024 - 16:45Carmen wrote:
I am working the front part and have started the first shoulder decrease from the neck. I cast off the middle 18 stitches (9 on each side of the center) and decreased 3 stitches 1 time, 2 stitches 2 times and was going to continue to the first 1 stitch decrease when I saw that my shoulder stitches were not going to result in 23 stitches, as I now have 32. This means that after the 2-1 stitch decrease I will be left with 30 stitches, 7 stitches too much. Help! Did I interpret something wrong?
28.11.2023 - 23:07DROPS Design answered:
Hi Carmen, After you have cast off the middle 18 stitches, you cast off (on each row from the neck) a further 3 stitches once, then 2 stitches x 2 and 1 stitch x 2. Taking size S as an example, you had 82 stitches on the front piece, cast off 18, leaving 32 stitches on each shoulder, then cast off a further 9 stitches leaving you with 23 stitches on the shoulder. Hope this helps and happy knitting!
29.11.2023 - 06:45Gail Oxley wrote:
THANK YOU!! I will try the new instructions this week!! I am loving the pattern so really happy I will get to finish it!!
16.01.2023 - 14:21Gail Oxey wrote:
I cant figure out the sleeve decrease. I am making the xlarge. I casted on 80stitches, increased to 86. When the piece measured 2", I bound of 12 stitches - result 74 stitches -- all good at that point. The rest does not make sense. It calls for a total decrease of 22 stitches over the next 14 rows which still leaves me with 52 stitches too many stitches and and my sleeve is too short. Please advise correct pattern
16.01.2023 - 00:02DROPS Design answered:
Dear Mrs Oxey, then cast off 2 sts at the beginning of next 6 rows (2 sts 3 times on each side), then 1 stitch at the beg of next 16 rows (1 st 8 times on each side), 2 sts at the beg of next 4 rows (2 sts 2 times on each side) and 4 sts at the beg of next 2 rows (4 sts on each side) = 74-12-16-8-8=30 sts remain. Happy knitting!
16.01.2023 - 10:30Renate wrote:
Ik ben bezig met de mouwkop. Er staat dat ik elke naald moet minderen: 3 keer 2 steken, 2 keer 1 steek, 4 keer 2 steken en 1 keer 4 steken.. Dit zou dan 26 steken afkanten zijn. Ik kom aan 20 steken. Hoe kom jullie aan 26 steken afkanten?
07.08.2022 - 21:39DROPS Design answered:
Dag Renate,
Je houdt 26 steken over na het afkanten. (Ik heb het woordje over er nu achter gezet :)
16.08.2022 - 21:20