DROPS Cotton Merino uni colour 50% Ull, 50% Bómull |
946.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Cotton Merino uni colour 50% Ull, 50% Bómull 946.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu | |
= brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu |
|
= 2 lykkjur slétt saman | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman | |
= lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Little Miss Daisy |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll fyrir börn úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað með laskalínu, ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð 0 – 4 ára.
DROPS Baby & Children 38-2 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermi): Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð í umferð frá réttu. Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við lykkju með prjónamerki í. Aukið út þannig: Byrjið strax á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= lykkja með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að aftan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: 0/1: 2, 5 og 8 cm. 1/3: 2, 5 og 8 cm. 6/9: 2, 5 og 8 cm. 12/18: 2, 6 og 10 cm. 2: 2, 6 og 10 cm. 3/4: 2, 6 og 10 cm. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Prjónað er fram og til baka frá miðju að aftan þar til kantur að aftan hefur verið prjónaður til loka, síðan er stykkið prjónað áfram í hring. HÁLSMÁL: Fitjið upp 62-66-70-74 (78-84) lykkjur á hringprjón 3 með Cotton Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig (byrjið mitt að aftan – ATH: Prjónið EKKI þegar prjónamerkin eru sett): Hoppið yfir fyrstu 11-12-12-13 (13-14) lykkjur (= hægra bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, hoppið yfir næstu 9-9-11-11 (13-14) lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, hoppið yfir næstu 18-20-20-22 (22-24) lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, hoppið yfir næstu 9-9-11-11 (13-14) lykkjur (= ermi) og setjið síðasta prjónamerki í næstu lykkju, nú eru 11-12-12-13 (13-14) lykkjur á prjóninn á eftir síðasta prjónamerki (= vinstra framstykki). BERUSTYKKI: LESTU ALLAN NÆSTA KAFLA ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið sléttprjón fram og til baka frá miðju að aftan, en 3 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur fyrir tölur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið út í hverri umferð frá réttu alls 11-13-13-14 (16-17) sinnum = 150-170-174-186 (206-220) lykkjur. Prjónið sléttprjón með 3 lykkjur fyrir tölukant í hvorri hlið í garðaprjóni þar til stykkið mælist 10-11-11-12 (13-14) cm. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 23-26-26-28 (32-34) lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 32-36-38-40 (42-44) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8 (8-8) nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi), prjónið næstu 40-46-46-50 (58-64) lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 32-36-38-40 (42-44) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8 (8-8) nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi) og prjónið þær 23-26-26-28 (32-34) lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað áfram hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 98-110-114-122 (138-148) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið – HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Byrjið mitt að aftan, fitjið upp 3 kantlykkjur að framan frá vinstra bakstykki undir 3 kantlykkjum frá hægra bakstykki (þannig að kanturinn með hnappagati liggi efst). Prjónið 1 umferð slétt hringinn yfir allar lykkjur og prjónið JAFNFRAMT lykkjur frá tveimur köntunum slétt saman 2 og 2 = 95-107-111-119 (135-145) lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón hringinn í 1-2-2-3 (3-3) cm. Í næstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 96-108-112-120 (136-144) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið mynstur hringinn eftir A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 13-13-21-25 (21-25) lykkjur jafnt yfir = 109-121-133-145 (157-169) lykkjur. Prjónið síðan mynstur hringinn þannig: Prjónið A.2a (= 2 lykkjur), A.2b (= 12 lykkjur) yfir 96-108-120-132 (144-156) lykkjur (= alls 8-9-10-11 (12-13) sinnum) og endið með A.2c (= 11 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, hafa verið auknar út 2 lykkjur í hverri mynstureiningu með gataumferð = 127-141-155-169 (183-197) lykkjur. Prjónið síðan mynstur eins og áður, en nú er prjónað A.3 yfir A.2 þannig: Prjónið A.3a (= 2 lykkjur), A.3b (= 14 lykkjur) yfir 112-126-140-154 (168-182) lykkjur (= alls 8-9-10-11 (12-13) sinnum) og endið með A.3c (= 13 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1-1-1-1 (2-2) sinnum á hæðina (e.t.v. að óskaðri lengd), prjónið A.4 yfir A.3 þannig: Prjónið A.4a (= 1 lykkja), A.4b (= 14 lykkjur) yfir 112-126-140-154 (168-182) lykkjur (= alls 8-9-10-11 (12-13) sinnum) og endið með A.4c (= 14 lykkjur). Eftir A.4 eru 145-161-177-193 (209-225) lykkjur í umferð. Prjónið nú A.5 þannig: Prjónið A.5a (= 1 lykkja), A.5b (= 16 lykkjur) yfir 128-144-160-176 (192-208) lykkjur (= alls 8-9-10-11 (12-13) sinnum) og endið með A.5c (= 16 lykkjur). Þegar A.5 hefur verið prjónað í 3-3-4-7 (3-4) cm, prjónið 4 umferðir sléttprjón yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur (ATH: Í 5. umferð í A.1 er síðasta lykkjan í umferð prjónuð slétt). Fellið af þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina – sjá AFFELLING! Kjóllinn mælist ca 37-39-41-46 (51-53) cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 32-36-38-40 (42-44) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8 (8-8) lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-42-46-48 (50-52) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= byrjun á umferð og mitt undir ermi) – HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 1½ cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 2 sinnum = 34-38-42-44 (46-48) lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, áður en fellt er af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. PICOTKANTUR: Heklið picotkant neðst í kringum báðar ermar með heklunál 3 þannig: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, hoppið yfir 2 lykkjur á ermi, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-*, en endið umferð með 1 keðjulykkju í fastalykkju í byrjun á umferð (í stað 1 fastalykkju í næstu lykkju). Heklið alveg eins picotkant meðfram kanti í hálsmáli í skiptinguna á milli kants í garðaprjóni og sléttprjóni á berustykki – ATH: Kanturinn er heklaður ofan frá og niður. FRÁGANGUR: Saumið 3 tölur í vinstri tölukant að aftan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (36)
Susan Smith wrote:
I very much appreciate, the free baby patterns, great selection Thank you
06.04.2024 - 21:14Laura wrote:
Buongiorno, perché non c’è la taglia 3/6 mesi? Grazie Buona giornata.
06.04.2024 - 21:00DROPS Design answered:
Buonasera Laura, se preferisce può lavorare anche una taglia intermedia tra quelle indicate aggiustando il numero di maglie e la lavorazione. Buon lavoro!
07.04.2024 - 23:51Line Albriktsen wrote:
Jeg får ikke mønsteret til å bli som på bildet. Skal man strikke først A2a (2 masker) en gang, A2b (12masker) 9 ganger og så A2c (11 masker) 1 gang? Når jeg da har strikker en omgang rett og skal begynne på A2a igjen så er det bare 1 maske. Skal man strikke sammen siste masken fra A2c med A2a? Altså flytte maskemarkøren som markerer begynnelsen på omgangen?
29.03.2024 - 14:16DROPS Design answered:
Hej Line, du skal have lige så mange udtagninger som indtagninger, A.2b stemmer med antal og A.2c og A.2a stemmer med antal når du strikker dem lige efter hinanden :)
05.04.2024 - 11:22Linda Pontard wrote:
Bonjour merci beaucoup pour votre réponse. Bonne journée.
19.01.2024 - 11:23Linda Pontard wrote:
Bonjour, quand vous placer les marqueurs la maille qui a le marqueur compte pour le groupe suivant ou faut il compter après pour le groupe de mailles a séparer. Je suis en train de placer les marqueurs. Merci
18.01.2024 - 17:09DROPS Design answered:
Bonjour Mme Pontard, les fils marqueurs des raglans sont placés chacun dans une maille, pas entre les mailles, ils viennent donc en plus de chaque "groupe": demi-dos, marqueur, manche, marqueur, devant, marqueur, manche, marqueur, demi-dos. Bon tricot!
19.01.2024 - 08:58Mariëtte Van Sambeeck wrote:
Ik heb op 24 12 j.l een vraag gesteld maar een antwoord is niet meer nodig aangezien ik het probleem zelf heb opgelost
27.12.2023 - 20:22Mariëtte Van Sambeeck wrote:
Ik heb gebreid: A 2a A 2b A 2c over 145 steken. Het blijven 145 steken. Wat doe ik fout?
24.12.2023 - 21:48DROPS Design answered:
Dag Mariëtte,
A.2b heeft aan het begin 12 steken per patroonherhalingen in de breedte en aan het eind 14 steken. Op de een na laatste naald maak je niet de laatste zwarte driehoek ( 1 st afhalen, samen breien en overhalen), waardoor je (door de omslagen) 2 extra steken hebt.
01.01.2024 - 13:29Doris Lyngsmark wrote:
Strikker littel miss daisy. er starte med mønster 2a, 2b 2c som bliver helt forkert. da jeg ikke kan finde ud af mønsteret. Er det muligt at i kunne lave en video, så jeg kan se hvordan man laver omslag og hvor der bliver taget ud, gerne en video der dækker de 9 første pinde
20.08.2023 - 21:36DROPS Design answered:
Hei Doris. Ditt ønske er lagt til vår liste, men usikker når vi får anledning til å få laget den. I mellomtiden kan du sette maskemarkører mellom hvert diagram. Da har du en bedre oversikt. Evnt. skriv til oss nøyaktig hva du har problemer med. mvh DROPS Design
28.08.2023 - 08:54Siri wrote:
Hei jeg har kommet dit at jeg skal dele inn med merkemålere, men jeg får ikke antallet til å stemme. Strikker 12/18 mnd hvor det står at jeg skal legge opp 74 masker. Når jeg har delt inn er det bare 70 masker som er delt inn. Hvor er det feil hen?
03.08.2023 - 13:08DROPS Design answered:
Hei Siri, Merkene skal settes i maskene (ikke mellom masker). Da får du med de 4 maskene som er til overs. God fornøyelse!
04.08.2023 - 06:43Dorthe Ellesen Rasmussen wrote:
Hej Jeg er nået til at skulle strikke diagrammet A2. Men jeg kan ikke få maske antallet til at passe. Diagrammet går over 2, så 12 m og hvis man som jeg strikker str 6/9 mdr så skulle det strikkes over 120 m totalt 10 gange. Det kan jeg ikke få til at gå op med at jeg har 133m på pinden når jeg skal starte på diagramA2. Hvad skal jeg gøre for at det kommer til at passe ? Mvh Dorthe
29.05.2023 - 08:51DROPS Design answered:
Hei Dorthe. Har du glemt å strikke A.2c? Du har 133 masker (str. 6/9 mnd) og når du skal strikke A.2 strikker du slik: A.2a (2 masker) + A.2b (12 masker x 10 = 120 masker) + A.2c (11 masker)= 2+12+11= 133 masker. mvh DROPS Design
30.05.2023 - 10:28