Spring Fairy |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður kjóll fyrir börn úr DROPS Safran. Stykkið er heklað ofan frá og niður með laskalínu og opnu sólfjaðramynstri. Stærð 0 mánaða – 4 ára.
DROPS Baby & Children 38-1 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju. Þegar heklað er í hring, endið umferð með 1 keðjulykkju í loftlykkju frá byrjun á umferð. Þegar heklað er fram og til baka, endið umferð með 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð með stuðlum. Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjur. Þegar heklað er í hring, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. Þegar heklað er fram og til baka, endið umferð með 1 stuðli í loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð með fastalykkjum. ÁFERÐAMYNSTURS UMFERÐ: * 1 umferð fastalykkjur, 1 umferð stuðlar *, heklið frá *-* (1 umferð fastalykkjur + 1 umferð stuðlar = 1 áferðamynsturs umferð). ÚTAUKNING-1: Aukið út 1 fastalykkju/stuðul með því að hekla 2 fastalykkjur/stuðla í sömu lykkju. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 136 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 57) = 2,4. Í þessu dæmi er aukið út í ca til skiptis í aðra hverja og 3. hverja lykkju. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá miðju að aftan þar til allt opið að aftan hefur verið heklað til loka, síðan er stykkið heklað áfram í hring. BERUSTYKKI: Heklið 94-99-104 (104-115) loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 3,5 með Safran. Fyrsta umferð er hekluð þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, * 1 fastalykkja í hverja af 3 næstu loftlykkjum, hoppið yfir 1 loftlykkju *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 0-1-2 (2-1) loftlykkjur og endið með 1 fastalykkju í hverja af 0-1-2 (2-1) síðustu loftlykkjum = 70-74-78 (78-86) fastalykkjur í umferð. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu þannig (byrjið mitt að aftan – ATH: Það er EKKI heklað þegar prjónamerkin eru sett í stykkið): Hoppið yfir 10-11-12 (12-14) fastalykkjur (= hægra bakstykki þegar flíkin er mátuð), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 13 fastalykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 20-22-24 (24-28) fastalykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 13 fastalykkjur (= ermi) og setjið síðasta prjónamerki í næstu fastalykkju (nú eru 10-11-12 (12-14) fastalykkjur í vinstra bakstykki á eftir síðasta prjónamerki. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ HEKLAR! Lestu HEKLLEIÐBEININGAR og heklaðu næstu umferð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, en í hverja fastalykkju með prjónamerki í eru heklaðir 2 stuðlar + 2 loftlykkjur + 2 stuðlar = 82-86-90 (90-98) stuðlar í umferð. Heklið síðan ÁFERÐAMYNSTURS UMFERÐ – sjá útskýringu að ofan (heklað er fram og til baka með 1 fastalykkju/stuðull í hverja lykkju frá fyrri umferð, en í hverja umferð með fastalykkju frá röngu eru heklaðar 2 loftlykkjur yfir 2 loftlykkjur frá fyrri umferð í laskalínu). JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu (þ.e.a.s. í umferð með stuðlum) aukið út fyrir laskalínu þannig: Heklið 2 stuðla + 2 loftlykkjur + 2 stuðla um hvern loftlykkjuboga í hverri laskalínu (= 16 stuðlar fleiri í umferð). Endurtakið útaukningu í hverri umferð frá réttu, alls 4-5-5 (6-6) sinnum = 146-166-170 (186-194) lykkjur í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er hekluð 1 umferð með fastalykkjum frá röngu eins og áður (með 2 loftlykkjur yfir 2 loftlykkjur frá fyrri umferð). Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í hverja af fyrstu 20-23-24 (26-28) fastalykkjum (= hægra bakstykki), hoppið yfir næstu 33-37-37 (41-41) fastalykkjur (= ermi), heklið 8-6-10 (10-10) LAUSAR loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 40-46-48 (52-56) fastalykkjum (= framstykki), hoppið yfir næstu 33-37-37 (41-41) fastalykkjur (= ermi), heklið 8-6-10 (10-10) LAUSAR loftlykkjur og heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 20-23-24 (26-28) fastalykkjum (= vinstra bakstykki). Berustykkið er nú tilbúið og stykkið er heklað í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Byrjið mitt að aftan með réttuna út (byrjun á umferð = mitt að aftan) og heklið 1 umferð með fastalykkjum (heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul frá fyrri umferð og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju undir hvorri ermi – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR) = 96-104-116 (124-132) fastalykkjur í umferð. Heklið nú þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, en aukið út 6-4-4 (8-12) stuðla jafnt yfir – SJÁ ÚTAUKNING-1 og 2 = 102-108-120 (132-144) stuðlar. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul. UMFERÐ 3: * 1 stuðull í fyrstu/næstu fastalykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 34-36-40 (44-48) stuðlar með 2 loftlykkjur á milli hverra. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga = 136-144-160 (176-192) fastalykkjur. UMFERÐ 5: Heklið fastalykkjur og aukið út 57-61-57 (53-49) fastalykkjur jafnt yfir = 193-205-217 (229-241) fastalykkjur. Heklið síðan mynstur hringinn eins og útskýrt er í A.1, þ.e.a.s. heklið A.1A yfir fyrstu lykkjuna, heklið síðan 16-17-18 (19-20) mynstureiningar með A.1B. Þegar umferð 1-5 hefur verið heklað einu sinni, endurtakið umferð 2-5 áfram þar til stykkið mælist ca 23-28-32 (37-43) cm frá öxl – ATH: Stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu á hæðina. Heklið síðan þannig: Endurtakið nú umferð 2-5 í A.2A og A.2B alveg eins þar til heklaðar hafa verið 3 mynstureiningar á hæðina með A.2 (e.t.v. að óskaðri lengd). Klippið þráðinn frá og festið. Kjólinn mælist ca 35-40-44 (49-55) cm frá öxl og niður. JÖFNUN Á HÁLSMÁLI: Til að flíkin passi betur er hekluð smá upphækkun aftan í hnakka. Setjið 1 prjónamerki í lykkjur í hvert “horn” í hálsi, þ.e.a.s. í byrjun á hverri laskalínu og 1 prjónamerki mitt að framan. Heklið með heklunál 3,5 með Safran þannig: Byrjið mitt að aftan og heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, heklið 1 hálfan stuðul í næstu lykkju, 1 stuðul í lykkju með prjónamerki í og 1 hálfan stuðul í næstu lykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir á undan næstu lykkju með prjónamerki í, 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, 1 stuðul í lykkju með prjónamerki í og 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til eftir eru 4-5-5 (5-5) lykkjur á undan prjónamerki mitt að framan. Snúið stykkinu og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju til baka mitt að aftan, en við hvert prjónamerki eru heklaðar 3 fastalykkjur saman, þ.e.a.s. heklið 1 fastalykkju í hálfan stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fastalykkju í stuðul með prjónamerki í, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fastalykkju í næsta hálfa stuðul, en nú á að draga síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni (= 2 fastalykkjur færri). Klippið þráðinn frá og endurtakið frá miðju að aftan að miðju að framan í hinni hliðinni. TÖLUKANTUR AÐ AFTAN: Heklið meðfram vinstra opið mitt að aftan þannig: Heklið 1 fastalykkju um hverja fastalykkju umferð og 2 fastalykkjur um hverja stuðla umferð. Heklið alls 4 umferðir með fastalykkjum fram og til baka, klippið þráðinn frá og festið. Meðfram hægra opi mitt að aftan eru hekluð hnappagöt þannig (byrjið frá réttu við hálsmál): Heklið 3 fastalykkjur (1 fastalykkja í fastalykkju umferð og 2 fastalykkjur um stuðla umferð). 4 loftlykkjur (= 1 hnappagat), hoppið yfir ca 1 cm, heklið fastalykkjur til ca miðju á kanti að framan, 4 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, heklið fastalykkjur þar til 1 cm er eftir í kanti að framan, 4 loftlykkjur og festið með 1 fastalykkju í síðustu lykkju. Klippið þráðinn frá og festið. Saumið tölur í tölukant í vinstri hlið. PICOTKANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið í kringum hálsmálið þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* út umferðina, klippið þráðinn frá og festið. SÓLFJAÐRAKANTUR Í KRINGUM ERMI: Heklið í kringum op á ermum þannig: 1 fastalykkja í hverja af 8-6-10 (10-10) lykkjum mitt undir ermi og 1 fastalykkju í hverja og eina af 33-37-37 (41-41) fastalykkjum yfir ermi = 41-43-47 (51-51) fastalykkjur í umferð. Heklið síðan þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, en aukið út 1-5-1 (0-0) stuðla jafnt yfir = 42-48-48 (51-51) stuðlar. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul. UMFERÐ 3: * 1 stuðull í fyrstu/næstu fastalykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 14-16-16 (17-17) stuðlar með 2 loftlykkjur á milli hverra. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga, en 7-3-3 (7-7) sinnum í umferð er einungis heklaðar 2 fastalykkjur um loftlykkjuboga = 49-61-61 (61-61) fastalykkjur. Heklið síðan mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.1A og A.1B alveg eins og á fram- og bakstykki = 4-5-5 (5-5) sólfjaðrir í umferð. Þegar umferð 1-5 hefur verið heklað einu sinni, klippið þráðinn frá og festið. Endurtakið í kringum hina ermina. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (32)
Susanne Hermann Danielsen wrote:
Håber på svar hurtig - ellers må jeg finde en anden opskrift! Mvh Susanne
08.06.2024 - 14:29DROPS Design answered:
Hej Susanne, hvad er dit spørgsmål (husk at skrive størrelse og hvor mange masker du har og hvor du er i opskriften samt hvad dit problem er) :)
11.06.2024 - 11:52Nathalie wrote:
Bonjour je fais la robe baptême mais je ne comprends pas le diagramme a1b je suis bloquee auriez vous une vidéo pour me permettre de continuer merci d'avance
25.02.2024 - 11:20DROPS Design answered:
Bonjour Nathalie, dans cette vidéo, nous montons comment réaliser ce diagramme pour les chaussons, elle devrait vous aider pour la robe, car le diagramme est le même. Bon crochet!
26.02.2024 - 09:19Helen Few wrote:
Do you recommend pressing crocheted garments in Drops Safran
24.02.2024 - 19:39DROPS Design answered:
Dear Mrs Few, some crocheter/knitter block every project, some other never block, so just do as you are used to, you can also just wash finished project and let it dry flat - remember to always follow all instructions of the label/shadecard. Happy crocheting!
26.02.2024 - 08:37Lena Ovesson wrote:
Hur tvättar o torkar man denna fina klänning?
24.02.2024 - 12:14DROPS Design answered:
Hej Lena. Du hittar tvättråd för DROPS Safran här. Mvh DROPS Design
27.02.2024 - 07:42Marie-Christine BONDOUX wrote:
Bonjour, Comment effectuer le point A.1A et A.1B en ce qui concerne le rang n° 2. Merci d'avance pour votre aide. Cordialement.
07.02.2024 - 14:07DROPS Design answered:
Bonjour Mme Bondoux, dans cette vidéo, nous montrons comment réaliser ce motif pour les chaussons, elle pourra vous aider pour la robe. Bon crochet!
08.02.2024 - 08:17Chrochet Stine wrote:
Hei, Har nettop begynt på denne kjolen. Har heklet en del, men forstår ikke helt poenget med andre rad( fm etter oppleggsraden av lm). Hvilken funksjon har det at jeg hopper over en luftmaske? Når jeg gjør det (uten å legge til en luft maske i hullet) ser det veldig ujevnt ut. Redd slutt resultatet ikke blir noe bra. Har lest hele oppskriften og finner ikke noe som forklarer hvorfor man skal hekle 3 fm og hoppe over en. Oppfatter det som at man like gjerne kunne ha heklet 86 fm i str 98?
20.01.2024 - 12:54DROPS Design answered:
Hei Chrochet Stine. Det gjøres for at "oppleggskanten" ikke skal stramme. mvh DROPS Design
29.01.2024 - 11:07Malene Rasmussen wrote:
Hej Drops Håber i kan hjælpe. Jeg er ved at hækle kjolen i str. 0-6 mdr. Jeg er nået til omkring 5, med udtagninger jævnt fordelt. Jeg har prøvet at bruge udtagningsberegneren, altså 193 divideret med 57 udtagninger = 3,38 (3,5) og herefter tager ud i skiftevis hver 2. Og 3., men ender ikke med de 193 masker som jeg skal? Hvordan skal jeg tage ud de 57 masker ud, så jeg ender på 193 masker i alt?
04.01.2024 - 17:12DROPS Design answered:
Hej Malene, du kan tage 1 maske ud efter hver 3. maske, men tæl så du kun tager 57 masker ud :)
11.01.2024 - 14:13Malene Rasmussen wrote:
Hej Jeg er igang med første række efter luftmaskekæden. Jeg hækler i størrelsen 56/68. Kan det virkelig passe, at jeg skal slutte rækken med at springe en luftmaske over? Derefter skal jeg jo vende arbejde og arbejde tilbage igen, så jeg ender med at have en luftmaske tinglene?
02.01.2024 - 20:07DROPS Design answered:
Hej Malene, du skal ikke have nogle luftmasker tilbage når du har hæklet 70 fm på første række :)
09.01.2024 - 14:33Annika 😀 wrote:
Förstår inte mönstret .. har virkat .. repat upp omgång efter omgång .. jag gör storlek 12/18 månader. Önskar få mönstret skrivet i rader som första delen varit. Vill gärna få denna fina klänning klar.
29.07.2023 - 14:02DROPS Design answered:
Hej Annika, här hittar du en video med samma solfjäder mönster: solfjäder
07.08.2023 - 10:49Tanj wrote:
Hej! Jag förstår mig inte på diagrammet alls.. jag fastnar bara.. går det att få det nedskrivet hur diagrammen fungerar..
09.08.2022 - 21:27DROPS Design answered:
Hej, se gerne videoen nederst i mönsteret "Hur man virkar I och OM en maska, det er næsten samme mønster, så du vil forstå princippen :)
10.08.2022 - 12:02