Kitty Nap Pad |
|
|
|
Heklað og þæft teppi / motta fyrir ketti úr 2 þráðum DROPS Snow. Stykkið er heklað frá miðju og út með stjörnumynstri.
DROPS Extra 0-1502 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á umferð með venjulegum hálfum stuðlum er fyrstu lykkju skipt út fyrir 2 loftlykkjur, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI / MOTTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá miðju og út, allt stykkið er heklað í 2 þráðum. TEPPI / MOTTA: Notið heklunál 10 og 2 þræði Snow, heklið 5 loftlykkjur og tengið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Sjá HEKLLEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan! UMFERÐ 1: Heklið 11 hálfa stuðla um loftlykkjuhringinn. UMFERÐ 2: Í þessari umferð er heklað í aftari lykkjubogana. Heklið 2 stuðla í hverja lykkju umferðina hringinn = 22 hálfir stuðlar. UMFERÐ 3: Í þessari umferð er heklað í aftari lykkjubogana. Heklið 2 hálfa stuðla í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir, heklið 3 hálfa stuðla í síðustu lykkju = 45 hálfir stuðlar. UMFERÐ 4: Í þessari umferð er heklað í aftari lykkjubogana. Heklið 3 loftlykkjur, heklið upp 1 lykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið upp 1 lykkju í 3. loftlykkju frá heklunálinni, heklið upp 1 lykkju í fyrstu lykkju í umferð (= sama lykkja og loftlykkjurnar komu frá) og heklið upp 1 loftlykkju í hvora af næstu 2 lykkjum = 6 lykkjur á heklunálinni. Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 6 lykkjurnar og heklið 1 loftlykkju (þessar mynda 1 «stjörnugat» á toppnum á 6 lykkjum sem heklaðar voru saman). * Heklið upp 1 lykkju í gatið, heklið upp 1 lykkju í hlið á síðustu af 6 lykkjum, heklið upp 1 lykkju í sömu lykkju og 6. lykkjan var hekluð upp í fyrri umferð, heklið upp 1 lykkju í hverja og eina af næstu 2 lykkjum í umferð = 6 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar og heklið 1 loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju frá byrjun á umferð = 22 stjörnur í umferð. UMFERÐ 5: Heklið 2 loftlykkjur, heklið 2 hálfa stuðla í hvert stjörnugat umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju frá byrjun á umferð = 45 hálfir stuðlar. Stykkið mælist ca 20 cm að þvermáli. UMFERÐ 6: Í þessari umferð er heklað í aftari lykkjubogana. Heklið hálfa stuðla JAFNFRAMT sem aukið er út um 28 hálfa stuðla jafnt yfir þannig: Heklið 2 loftlykkjur, * heklið 2 hálfa stuðla í hvora af næstu 2 lykkjum, heklið 1 hálfan stuðul í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 14 sinnum, heklið 1 hálfan stuðul í hvora af síðustu 2 lykkjum = 73 hálfir stuðlar. UMFERÐ 7: Í þessari umferð er heklað í aftari lykkjubogana. Heklið 3 loftlykkjur, heklið upp 1 lykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið upp 1 lykkju í 3. loftlykkju frá heklunálinni, heklið upp 1 lykkju í fyrstu lykkju í umferð (= sama lykkja og loftlykkjurnar komu frá) og heklið upp 1 loftlykkju í hvora af næstu 2 lykkjum = 6 lykkjur á heklunálinni. Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 6 lykkjurnar og heklið 1 loftlykkju (þessar mynda 1 «stjörnugat» á toppnum á 6 lykkjum sem heklaðar voru saman). * Heklið upp 1 lykkju í gatið, heklið upp 1 lykkju í hlið á síðustu af 6 lykkjum, heklið upp 1 lykkju í sömu lykkju og 6. lykkjan var hekluð upp í fyrri umferð, heklið upp 1 lykkju í hvora af næstu 2 lykkjum í umferð = 6 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar og heklið 1 loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju frá byrjun á umferð = 36 stjörnur í umferð. UMFERÐ 8: Heklið 2 loftlykkjur, heklið 2 hálfa stuðla í hvert stjörnugat umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju frá byrjun á umferð = 73 hálfir stuðlar. Stykkið mælist ca 32 cm að þvermáli. UMFERÐ 9: Í þessari umferð er heklað í aftari lykkjubogana. Heklið hálfa stuðla JAFNFRAMT sem aukið er út um 28 hálfa stuðla jafnt yfir þannig: Heklið 2 loftlykkjur, * heklið 2 hálfa stuðla í næstu lykkju, heklið 1 hálfan stuðul hvora af næstu 2 lykkjum, heklið 2 hálfa stuðla í næstu lykkju, heklið 1 hálfan stuðul í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 14 sinnum, heklið 1 hálfan stuðul í hvora af síðustu 2 lykkjum = 101 hálfir stuðlar. UMFERÐ 10: Í þessari umferð er heklað í aftari lykkjubogana. Heklið 3 loftlykkjur, heklið upp 1 lykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið upp 1 lykkju í 3. loftlykkju frá heklunálinni, heklið upp 1 lykkju í fyrstu lykkju í umferð (= sama lykkja og loftlykkjurnar komu frá) og heklið upp 1 loftlykkju í hvora af næstu 2 lykkjum = 6 lykkjur á heklunálinni. Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 6 lykkjurnar og heklið 1 loftlykkju (þessar mynda 1 «stjörnugat» á toppnum á 6 lykkjum sem heklaðar voru saman). * Heklið upp 1 lykkju í gatið, heklið upp 1 lykkju í hlið á síðustu af 6 lykkjum, heklið upp 1 lykkju í sömu lykkju og 6. lykkjan var hekluð upp í fyrri umferð, heklið upp 1 lykkju í hvora af næstu 2 lykkjum í umferð = 6 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar og heklið 1 loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju frá byrjun á umferð = 50 stjörnur í umferð. UMFERÐ 11: Heklið 2 loftlykkjur, heklið 2 hálfa stuðla í hvert stjörnugat umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju frá byrjun á umferð = 101 hálfir stuðlar. Stykkið mælist ca 42 cm að þvermáli. ÞÆFING: Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm. Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi. Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott. EFTIR ÞÆFINGU: Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott. Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (2)
Louise wrote:
Tour 5 : Je ne comprend pas comment on arrive à 45 demi-brides car il y a 22 étoiles dans lesquelles on crochète 2 demi-brides. Ça devrait donner 44 demi-brides. Aussi, est-ce qu'on doit faire 2 mailles en l'air entre chaque couple de demi-brides ou seulement au début du tour ? Merci !
20.12.2020 - 01:05DROPS Design answered:
Bonjour Louise, tout à fait, vous avez 2 demi-brides pour chacune des 22 étoiles = 44 demi-brides + les 2 mailles en l'air du début du tour = 45 demi-brides. Ces 2 mailles en l'air au début du tour remplacent la 1ère demi-bride. Bon crochet!
21.12.2020 - 07:54LillyS wrote:
Is it possible to get a chart/diagram? It is very hard to crochet following written text. Thank you, Nat!
11.11.2020 - 12:28DROPS Design answered:
Dear LillyS, we only have written explanations to this pattern, follow the pattern thoroughly, stitch after stitch, round after round. Happy crocheting!
11.11.2020 - 14:13